Nú getur Ísrael stöðvað þessar eldflaugar með nýju laser vopni The Iron Beam, á 4 sekúndum. Kostnaður er 3,5 dollarar, eða 454 krónur á hvert skotmark. kostaði áður 80.000 dollara 10 þúsund % meira en skotmarkið.

Þarna eru ýmis vandamál sem ég ræði ekki nú.

 

ISRAEL Revealed Powerful Laser System - YouTube

https://www.youtube.com/watch?v=YoDB4YVIyhA 

Meira en 10 þúsund eldflaugum hefur verið skotið frá Gasa til Ísrael frá árina 2006.

Þessar eldflaugar voru af öllum gerðum og flestar ekki mjög dýrar, eða kostuðu nokkur hundruð dollara.

Til að verjast þessum eldflaugum, notuðu Israelar  meðal annars The Iron Dome, eldflaugar sem kostuðu  80 þúsund dollara. 

Vörnin kostaði 10 þúsund prósent meira en árásin.

Þetta var vonlaust efnahagslega.

Nú getur Ísrael stöðvað þessar eldflaugar með nýju laser  vopni The Iron Beam, á 4 sekúndum.

Kostnaður er 3,5 dollarar, eða 454 krónur á hvert skotmark.

Drægnin á laser geislanum er 7 kílómetrar. 

The Iron Beam þarf orkutengingu, 150 Kílówött.

Hraðinn á geislanum er 300 milljón metrar á sekúndu.

Það er hraði laser ljóssins, sem fer hraðast í veröldinni.

Ekkert vopn í veröldinni getur flúið þennan hraða og er árangur nær 100 %.

Maðurinn ræður ekki við að eltast við vopn sem fara á hljóðhraða í návígi.

The Iron Beam er algjörlega sjálfstýrður, metur skotmark, eltir það,  eyðir því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband