Farsímasendir tekinn niður við skóla í Kaliforníu – átta börn með krabbamein - Móðir drengs sem greindist með heilakrabbamein árið 2016, sagði við sjónvarpsstöðina CBS: „Þetta [sendirinn] er flokkað sem mögulega krabbameinsvaldandi.“

Frettin.is

Farsímasendir tekinn niður við skóla í Kaliforníu – átta börn með krabbamein

thordis@frettin.is15. maí 2022 8:07Erlent1 Comment 

https://frettin.is/2022/05/15/farsimasendir-tekinn-nidur-vid-skola-i-kaliforniu-fjoldi-barna-med-krabbamein/

Átta börn hafa greinst með krabbamein í einum grunnskóla í 14 þúsund manna bæ í Kaliforníu, nokkuð sem hefur valdið áhyggjum foreldra á því að farsímasendir við skólann gæti verið ástæðan.

Þeir nemendur sem orðið hafa fyrir áhrifum í grunnskólanum í bænum Ripon eru allir undir 10 ára aldri, hver og einn með mismunandi tegund krabbameins; í heila, nýrum, lifur og eitlum.

Það eru fáar vísbendingar um að farsímasendar séu raunveruleg hætta fyrir mannfólk, en jafnvel efasemdarmenn segja að fjöldi tilfella meðal barna í svo litlum bæ sé óvenjulegur.

Símafyrirtækið Sprint, sem á sendinn, hefur tekið hann niður þrátt fyrir að hafa haldið því fram að bylgjurnar séu 100 falt undir leyfilegum mörkum.

En mæður barnanna segja að rannsóknaraðili sem þær sjálfar fengu til að mæla styrkleikann hafi fundið mun hærra magn, en þó enn undir mörkum.

Móðir drengs sem greindist með heilakrabbamein árið 2016, sagði við sjónvarpsstöðina CBS: „Þetta [sendirinn] er flokkað sem mögulega krabbameinsvaldandi.“

„Það segir okkur að það eru einhverjar sannanir til staðar.“

„Við vitum að það gætu verið aðrir þættir, önnur umhverfisáhrif... en kjarni málsins er að sendirinn á ekki að vera þarna ef það er eitthvað sem bendir til þess að hætta gæti stafað af honum.“

Foreldrar annars nemanda við skólann sem greindist með krabbamein í nýrum árið 2016, hafa barist fyrir því í tvö ár að sendirinn yrði tekinn niður.

Eftir að hafa ráðið lögfræðinga fyrr á þessu ári var ákveðið að sendirinn yrði loks tekinn niður í mars sl.

Lögmenn þeirra halda því fram að mengun sé líklegasta orsök óvenju hárrar tíðni krabbameins meðal barna í þessum 14 þúsund manna bæ.

Samkvæmt bandarísku krabbameinssamtökunum fá um 411 Kaliforníubúar af hverjum 100.000 krabbamein á hverju ári sem samsvarar 0,0041 hlutfalli, og nær til fullorðinna einstaklinga, sem eru líklegri en börn til að fá krabbamein.

Faðir eins nemandans er ekki sannfærður um að sendirinn sé skaðlaus en telur einnig að annars konar mengun gæti verið orsökin, og gaf til kynna að Nestle verksmiðja gæti hafa lekið eiturefnum í jarðveginn í mörg ár.

„Eftir að hafa skoðað þúsundir blaðsíðna af skjölum get ég sagt að þetta [Nestle] veldur mér ekki áhyggjum,“ sagði lögmaðurinn Marcelis Morris við sjónvarpsstöðina Fox 40.

„Við þurfum að grafast fyrir um og komast að því hvað veldur öllu þessu krabbameini í bænum Ripon. Við viljum bjarga mannslífum. Við viljum koma í veg fyrir að þetta gerist.“

Daily Mail.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þá varð mér litið á hendurnar á mér, siggið hafði losnað, og á blettum komið upp hleypt skinn. Inni í upp hleypta skinninu, var ljósari kringla, kast kringla, eins og fljúgandi diskur, 3 til 5 stykki á mismunandi stöðum.

23.5.2022 | 11:36

Þurfum við öll í einhverskonar (hunda hreinnsun) hreinsun á öllum sníkjudýrum í líkamanum? 

Það besta virðist vera Ivermectin, sem er og hefur verið notað um alla Jörð undanfarin 35 ár 

á okkur öll spendýrin með mjög góðum árangri. 

Á regnsvæðunum í kring um miðbaug hefur Ivermectin verið nota og og önnur sníkjudýralyf. 

Sjáðu bláu svæðin á myndinni, Þar eru engin veikindi vegna inflúensunar, Covid-19. 

Þeir nota einfaldlega sníkjudýra lyfin sem virka vel. 

Þeir sem fundu Evermectin, fengu Nóbelsverðlaun fyrir verkefnið. 

Það gengur ekki að einkafyrirtæki sem er kallað, Vaf-Há-Oo og kennt við Sameinuðu Þjóðirnar, stjórni þjóðunum. 

Við kusum, að því að við héldum, vissum ekki að oft væri svindlað, og ætluðumst til að þeir kosnu leituðu að bestu lausnum fyrir okkur. 

Við gáfum engum leyfi til að framselja stjórnina til einkafyrirtækis. 

Verð að hlaupa. 

 

2022-03-08-cov-19

 

 

Vaknaði klukkan upp úr 6:00 föstudaginn, þann 22.04.2022. 

Flugur höfðu lent í rúllugardínu í glugganum ofan við eldhús vaskinn. Og var ég búinn að ákveða daginn áður að hreinsa hana.

Ég skrúfaði festinguna hægra megin lausa, og fór að hreinsa gardínuna sem er 1,9 metrar.

Ég hengdi gardínuna upp yfir baðinu, sprautaði heitasta hitaveitu vatninu til að losa óhreinindi.

Næst notaði ég, (Nota íslenskt) FAIRY original og svo uppþvotta bursta úr þvottahúsinu og grófann 15 cm bursta.

Ég nuddaði og nuddaði, berhentur og það kom að því að gardínan varð hrein.

Þá varð mér litið á hendurnar á mér, siggið hafði losnað, og á blettum komið upp hleypt skinn.

Inni í upp hleypta skinninu, var ljósari kringla, kast kringla, ekki hálf gul baun, ekki hálf hringur, hluti af hring, skorið utan af bauninni, ekki hálf.

Brúnin þar sem baunin var skorin fór í boga undir skurðflötinn.

Hvað, bara eins og fljúgandi diskur, 3 til 5 stykki á mismunandi stöðum.

2 til 3 til 4 mm á breidd, 1/2 mm til 1 mm á þykkt. 

Hefur setið á smá stöplli, rót eins og sést á myndinni, hvað, sveppur? 

klikka mynd, stærri 

snikjudyr

  mynd tekinn næsta dag, 23.04.2022. 

000

Liturinn og formið ekki ólíkt hringormi.

20220429_010740

20220429_010732

Við hugsum, sníkjudýr, hvaðan kemur það, hugsun, fyrir skáldsöguna mína.

Hún verður að vera krassandi, eitthvað sem er spennandi.

Er það fiskurinn eftir allt saman? 

Já svo sýnist.

Þetta er auðvitað sönn skáldsaga

Egilsstaðir, 23.04.2022   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 23.5.2022 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband