Ekkert af þessum ""bóluefnum" er með markaðsleyfi, - eru - með skilyrt leyfi (neyðarleyfi). Látið ekki blekkjast. - er - tilraun með líftæknilyf (mRNA) - aldrei - leyft á mannfólki fyrr. - enginn veit um langtímaáhrif á.

Frá bloggi:   Þórdís Björk Sigurþórsdóttir 

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir - thordisb.blog.is 

000

Heilbrigðisþjónusta eða ólögmæt lyfjatilraun á börnum!

Bólu­cultefni Pfizer/Bi­onTech er skráð fyr­ir 16 ára og eldri hjá Lyfja­stofn­un Evr­ópu og banda­ríska lyfja­ef­itr­lit­inu en frá þeim aldri eru börn sjálf­stæð varðandi heil­brigðisþjón­ustu og þurfa ekki samþykki for­eldra til að leita henn­ar né lækn­ar eða aðrir heil­brigðis­starfs­menn til að veita hana. Þetta kem­ur fram í svari Kamillu Sig­ríðar Jós­efs­dótt­ur smit­sjúk­dóma­lækn­is fyr­ir fyr­ir­spurn konu sem undr­ast að hún þurfi ekki að samþykkja boðun 16 ára son­ar síns í bólu­setn­ingu við Covid-19."

Ekkert af þessum bóluefnum" er með markaðsleyfi, heldur eru þau með skilyrt leyfi (neyðarleyfi). Látið ekki blekkjast.  Um er að ræða tilraun með líftæknilyf (mRNA) sem aldrei hefur verið leyft á mannfólki fyrr. Og enginn veit um langtímaáhrif á. Krakkarnir eru þannig að taka þátt í tilraun með nýtt lyf og þá gilda alls konar reglur um upplýst samþykki o.fl. 

Að kalla þessa ólöglegu tilraun heilbrigðisþjónustu er út í hött og sýnir að stjórnvöld eru ekki með öllum mjalla. Foreldrar, verndið krakkana fyrir siðblindingjum sem augljóslega hafa náð tökum á íslenskum stjórnmálamönnum og sóttvarnaryfirvöldum, ekki bara á Íslandi heldur víðsvegar um heiminn. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta!!

goig

Hópurinn Mín leið - mitt val hefur nú formlega stofnað félag. Ýmislegt stendur til í kærumálum o.fl.

Björn Þorri Viktorsson hæstaréttalögmaður með meiru (vann m.a. fyrsta málið fyrir Hæstarétti vegna ólöglegra gengistryggðra lána) er hér í viðtali við Arnþrúði á Útvarpi Sögu og fjallar um leyndina á bóluefnasamningum ríkisin o.fl. 

Sláist í hópinn og stöndum saman gegn yfirgangi og frekju stjórnvalda og Kára Stefánssonar bóluefnasala og forstjóra ÍE/Amgen. Látið skilaboðin ganga.

Mæli líka með þessu viðtali við Guðmund Karl lækni sem segir að þessi bóluefni virki illa á ný afbrigði.

 

mbl.isÞurfa ekki samþykki foreldra vegna bólusetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband