Jón Valur Jensson hefur verið sem einn af landvættunum, óþreytandi við að vinna Íslandi gagn og þá að lýsa upp brautina fyrir okkur hina, bera sannleikanum vitni. Nú verða allir sem geta, að reyna að fylla skarðið sem Jón Valur lætur eftir sig.

 

Jón Valur Jensson

Þessari síðu hefur verið lokað.

https://jvj.blog.is/blog_closed.html

Jón Valur Jensson hefur verið sem einn af landvættunum, óþreytandi við að vinna Íslandi gagn og þá að lýsa upp brautina fyrir okkur hina, bera sannleikanum vitni.

Hefði einhver átt að búa til heimasíðu til sýna hvernig Landvættir vinna?

Nú verða allir sem geta, að reyna að fylla skarðið sem Jón Valur lætur eftir sig.

Ungu karlar og konur. Lesið ykkur til um hvernig okkur er stjórnað eins og gripum í fjósi, og mjólkuð eins og önnur húsdýr.

Peningur er aðeins bókhald, og stríðin eru til að fá að skrifa tölurnar, bókhaldið, og segjast svo hafa lánað fólkinu bókhaldið.

000

Setjist í kring um borðið, einn fiskimaður, einn fjárbóndi, einn kartöflubóndi, einn iðnaðarmaður og einn bókhaldari.

Kartöflubóndinn vill fá fisk frá fiskimanninum fyrir kartöflur, en fiskimaðurinn segist eiga svo mikið af kartöflum, að hann geti ekki tekið meira af þeim.

Menn hugsa og velta vöngum, hvað sé skinsamlegt að gera.

Aðilar koma sér saman um að búa til færanlegt bókhald, það er fyrirfram prentaðar nótur með mismunandi upphæðum.

Bókhaldarinn fær starfið við að láta prenta bókhaldsnóturnar sem við köllum peninga.

Fyrirfram prtentuðu bókhaldsnóturnar eru settar inn í læst herbergi og er dyrunum læst.

Þessar nótur verða í eign fólksins, og þarf ekki að greiða neinum vexti af þeim.

Hugsanlega þarf einhvern umsýslukostnað, til dæmis 0,2% og svo 0,8% í ríkisframkvæmdir.

Ef til vill er betra að hafa engar flækjur í peningabókhaldinu, en að það verði sér bókhald fyrir allar gerðir, umsýsluna og ríkið.

Þá skrifar Ríkið tölurnar fyrir gerðirnar, ef einhversstaðar er laus starfskraftur, hugur eða hönd.

Meira verð að fara.

Egilsstaðir, 13.01.2020 Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Sæll Jónas. Þarna hittirðu einmitt naglann á höfuðið. Það er vel að orði komist að Jón Valur heitinn hafi verið sem einn af landsvættunum.

Það er satt að hann hafi lýst okkur veginn bæði hvað varðar siðferðismál. Má þar nefna baráttan gegn fósturvígum , áherslan á hreinleika hjónabandsins sem stofnun Guðs og með því að benda á að þjóðkirkjan eigi að standa óhögguð og standa fast við það sem orð Guðs kennir. Einnig lýsti hann okkur veginn með því vera vel á verði gagnvart ýmsum hættum sem steðja að íslensku þjóðinni og efnahagsmálum hennar. Má þar nefna Icesave baráttan, andstaðan gegn ESB aðild og öðru sem getur skert sjálfstæði þjóðarinnar og yfirráð yfir auðlindum hennar eins og Orkupakkarnir.

Nú ættu allir þjóðhollir menn og konur sem trúna á Guð aðhyllast að fylla í skarðið sem Jón Valur skildi eftir.

Steindór Sigursteinsson, 13.1.2020 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband