Þegar bændur væru komnir á hausinn, þá getur Bónus byrjað að selja dýrt kjöt fullt af sjúkdómum, pensilíni og aukaefnum.

Bændur og Bónus

Við megum ekki láta Bónus knésetja bændur.

Það tekur áratugi að búa til bændur, en aðeins nokkur ár að setja þá á hausinn.

Bónus getur þá byrjað á því að selja ódýrt kjöt í nokkur ár,

kjöt fullt af sjúkdómum, pensilíni og aukaefnum.

 

Þegar bændur væru komnir á hausinn,

þá gæti Bónus byrjað að selja dýrt kjöt

fullt af sjúkdómum, pensilíni og aukaefnum.

 

Ódýr matur, ódýrt vinnuafl - ódýrt ASÍ

„Snýst um að verja samvinnu stétta“

Hvernig verður fyrirtæki til sem stýrir verðlagningunni?

Slóðin kemur fljótlega. 

Ætli Bónus ætli nokkuð að selja dýrt kjöt

fullt af sjúkdómum, pensilíni og aukaefnum?

Ég skil það svo að málið snúist um verðið og fleira.

Egilsstaðir, 04.03.2016 Jónas Gunnlaugsson

 

0000000000

Hvernig verður fyrirtæki til sem stýrir verðlagningunni?

Fyrst verð ég að ná töluverðri markaðshlutdeild.

Það geri ég með því að selja á lágu verði og semja við aðra um sameiginleg innkaup.

Næst segi ég við heildsalann.

Ég vil fá afslátt.

Heildsalinn segir að álagningin sé svo lág að ekki sé hægt að veita meiri afslátt.

Þá segi ég að ef þú ætlar að hafa viðskipti við okkur vil ég fá 5% lægra verð en aðrir viðskiptavinir hjá þér.

Heildsalinn sagði Nei það gengur ekki, það er ekki sanngjarnt.

Þá fór ég annað og fékk vörurnar þar og fékk ef til vill engan afslátt þar.

Fyrri heildsalinn kom og vildi fá viðskiptin aftur og ég fékk 3% í afslátt.

Ég hélt áfram að segja að ég vildi fá 20% lægra en aðrir viðskiptavinir.

Þetta endaði með því að heildsalarnir stilltu verðið þannig að ég fékk vörurnar á 20% lægra verði en aðrir viðskiptavinir.

Þarna var ég búinn að neyða heildsalana til að selja samkeppnisaðilum mínum, vöruna á 20 % til 30% hærra verði.

Núna get ég alltaf selt vöruna á lægra verði en aðrir.

Það er ekki ég sem minkaði álagninguna eða gróðann hjá mér.

Ég neyddi heildsalana til  að hækka um 20% eða 30% hjá samkeppnisaðilum.

Er ég ekki sniðugur?

Allir klappa mér á bakið og segja að ég sé einn af burðarstólpum þjóðarinnar.

Eru þetta sanngjarnar leikreglur?

Fólkið sækir sér þekkingu til að ég geti ekki spilað svona á fólkið.

Ég set hér fram prósentur til skýra málefnið, en upphæðir veit ég ekki um.

Þarna er verið að reyna að gera sér grein fyrir hvernig liggur í málinu.

Egilsstaðir, 04.03.2016  Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband