Flateyri - Þegar þeir höfðu fundið þennan stað, þá tóku menn til hendinni og byggðu sér ból, á skriðunni sem kom úr giljunum í fjallinu. Svona gekk þetta í árana rás, byggt og búið, snjóflóðin eyddu öllu, jafnvel sáust lítil ummerki, eða engin.

Leita að veilum í fjöllunum

Leita að heitu vatni á öllu svæðinu

Flateyri, fólkið kom fyrir árhundruðum, skoðaði fjörðinn og allt umhverfið.

Hvar var hægt að taka sér bólfestu, hvar var besta skipalægið, hvar var best að draga bátana upp í skjól og til viðgerða?

Hvaðan var styst út á miðin? Allt miðaðist við tækni þeirra tíma.

Betra var að vera í skjóli fyrir norðan áttinni, og hafa sólina frá suðri þegar hún var hæst á lofti og þá sem mest af deginum.

Þegar þeir höfðu fundið þennan stað, þá tóku menn til hendinni og byggðu sér ból, á skriðunni sem kom úr giljunum í fjallinu, og hafði myndað skjól fyrir öldunni sem kom inn fjörðinn.

Svona gekk þetta í árana rás, byggt og búið, snjóflóðin eyddu öllu, jafnvel sáust lítil ummerki, eða engin.

Næsti hópur kom og kannaði aðstæður, og mat það á sama máta, eftir tækni möguleikum síns tíma.

000

Hvar hefðu þeir tekið sér bólfestu, ef þeir hefðu haft tæknina í dag?

Þá hefðu þeir ekki þurft að horfa til fjarlægðar á miðin, þeir hefu getað valið víðara svæði, þeir hefðu getað valið höfninni stað sem næst bygginga svæðinu eftir aðstæðum.

Einnig mætti keyra að höfninni og nota fjarmyndavéar.

Huga að sjávarflóðum, að öðru jöfnu, byggðin má vera  tölvert yfir sjó.

Hvað gerum við nú, þegar við höfum getu  til að greina verkefnið svo að við getum fundið bestu lausnina.

Ekki flana að neinu, gefa sér tíma til að hugsa.

Það eru byggingasvæðin, það er suðursólin, það er höfnin, það er ferðaþjónustan, það er vegir sem ekki eru á snjóflóðasvæði og þá í jarðgöngum, þá er auðveldara að leysa skólamálin og ferðaþjónustan verður öruggari og stöðugri.

Þetta kom upp í hugan, alltaf að hugsa, rannsaka og skoða vel það sem lengi skal standa.

Ný byggð gæti alltaf notast sem ferðaþjónusta og atvinnu vegur, fyrir þá sem verða vítt og breytt um landið sem nokkurskonar landvættir sem hafa eftirlit með landinu.

Hugsið ykkur fjölskyldurnar, sem gátu ekki  valið bestu staðsetninguna yfir tíðina, en nú höfum við þekkinguna og getuna.

Hvað hefðu forfeðurnir og formæðurnar gert?

Svarið liggur í augum uppi.

Egilsstaðir, 18.01.2020  Jónas Gunnlaugsson

 


Bloggfærslur 18. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband