Trump, fer yfir stöðuna frá sínu sjónarhorni, Munum að Bandaríkin tóku völdin frá Súníska minnihlutanum, og með kosningum fékk Shía meirihlutinn völdin. Íslenskan komin.

Ávarp Donald Trump Bandaríkjaforseta 8. janúar 2020

https://www.youtube.com/watch?v=LLTDTVEqOXo

 

Svo lengi sem ég verð forseti Bandaríkja Norður Ameríku þá verður Íran aldrei leyft að eiga kjarnorkuvopn.

Góðan daginn. Það er með ánægju sem ég tilkynni ykkur, Bandaríkjamönnum, þið ættuð að vera einstaklega þakklát og ánægð. Engir Bandaríkjamenn urðu fyrir skaða síðastliðna nótt í árás íranskra valdhafa. Engir féllu, allir hermenn okkar eru öruggir og herstöð okkar varð aðeins fyrir lítilsháttar skaða. Okkar stórkostlegi ameríski herafli er búinn undir hvað sem er.
Íran virðist vera að hörfa, sem er gott fyrir alla hlutaðeigandi aðila og mjög gott fyrir heimsbyggðina. Hvorki bandaríks né írösk líf glötuðust vegna varúðarráðstafana sem gripið var til. Dreifing herafla og viðvörunarkerfi sem virkuðu mjög vel.
Ég fagna ótrúlegri hæfni og hugrekki Ameríkumanna og -kvenna í einkennisbúningum.

Allt of lengi, nánar tiltekið alveg frá árinu 1979, hafa þjóðir umborið eyðileggjandi og óstöðuga hegðun Írans í Austurlöndum nær og víðar. Þeir dagar eru liðnir. Íran hefur verið leiðandi stuðningsaðili hryðjuverkastarfsemi og eftirsókn þeirra í kjarnorkuvopn er ógn við hinn siðmenntaða heim.
Við látum það aldrei gerast.
Í síðustu viku tókum við ótvíræða ákvörðun um að stöðva vægðarlausa hryðjuverkamenn frá því að ógna amerískum lífum. Að minni skipan tók bandaríski herinn einn helsta hryðjuverkamann í heimi, Quasem Soleimani, af lífi.
Sem yfirmaður kúrdíska hersins bar Soleimani persónulega ábyrgð á hryllilegum grimmdarverkum. Hann þjálfaði hryðjuverkahermenn, þ.á m. Hezbollah, og skipaði fyrir um hryðjuverkaárásir gegn almennum borgurum. Hann kynti undir blóðugar borgarastyrjaldir víðs vegar á svæðinu. Hann særði og myrti á grimmilegan hátt þúsundir bandarískra hersveita, m.a. með því að koma fyrir sprengjum í vegköntum sem limlesta og örkumla fórnarlömbin. Soleimani skipaði fyrir um nýafstaðna árás á bandaríska starfsmenn í Írak sem særði illa fjóra starfsmenn og drap einn Ameríkumann og hann stýrði ofbeldisfullri árás á sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad.

Síðastliðna daga var hann að skipuleggja nýjar árásir á amerísk skotmörk en við stöðvuðum hann. Soleimani og handbendi hans voru útötuð bæði í amerísku og írönsku blóði. Það hefði átt að vera búið að ryðja honum úr vegi fyrir löngu síðan.
Með því að fjarlægja Soleimani höfum við sent öflug skilaboð til hryðjuverkamanna: Ef þú metur þitt eigið líf þá ógnar þú ekki lífi okkar fólks.

Þar sem höldum áfram að meta valkosti til að svara yfirgangssemi Írans munu Bandaríkin strax koma á viðbótarviðskiptaþvingunum við Íran. Þessar miklu þvinganir standa þar til Íran breytir hegðun sinni.
Á síðustu mánuðum hefur Íran sent skip á alþjóðleg hafsvæði, hafið tilefnislausa árás á Saudi Arabíu og skotið niður tvo bandaríska dróna. Fjandskapur Írans hefur aukist talsvert eftir að heimskulegi íranski kjarnorkusamningurinn var undirritaður árið 2013 og þeir fengu 150 milljarða dollara, að ekki sé minnst á 1,8 milljarða dollara í reiðufé. Í staðinn fyrir að þakka Bandaríkjunum fyrir sig kyrjuðu þeir dauði yfir Ameríku. Reyndar kyrjuðu þeir dauði yfir Ameríku daginn sem samningurinn var undirritaður.  Svo fór Íran í herför sem var fjármögnuð með peningunum úr samkomulaginu og skapaði helvíti á jörð í Jemen, Sýrlandi, Líbanon, Afghanistan og Írak. Það var greitt fyrir flugskeytin, sem síðustu nótt var varpað á okkur og bandamenn okkar, með fé sem síðasta ríkisstjórn lagði fram.

Stjórnvöld hertu einnig tangarhaldið í sínu eigin landi, drápu meira að segja nýlega 1500 manns í þeim mörgu mótmælum sem eiga sér stað um gervallt Íran.
Hinn mjög svo gallaði kjarnorkusamningur við Íran rennur hvort sem er út fljótlega og þá er gata Írans að kjarnorkuútrás greið. Íran verður að falla frá kjarnorkuáætlunum sínum og hætta stuðningi sínum við hryðjuverkamenn.
Það er kominn tími til að Bretland, Þýskaland, Frakkland, Rússland og Kína viðurkenni þessa staðreynd. Núna verða þessi lönd að slíta því sem eftir er af kjarnorkusamningi stórveldanna við Íran og við verðum öll að vinna saman að samkomulagi við Íran sem gerir heiminn að öruggari og friðsamari stað. Við verðum líka að gera samning sem gerir Íran kleift að þrífast og dafna og nýta sér gríðarlega ónýtta möguleika sína.

Íran getur verið stórkostlegt land. Friður og stöðugleiki getur ekki ríkt í Austurlöndum nær svo framarlega sem Íran heldur áfram að kynda undir ofbeldi, óróa, hatri og stríði. Hinn siðmenntaði heimur verður að senda skýr sameiginleg skilaboð til írönsku stjórnarinnar. Hryðjuverkaherferð ykkar með morðum og fyrirgangi mun ekki líðast lengur. Þessu verður ekki leyft að halda áfram.

Í dag ætla ég að biðja NATO að taka mun meiri þátt í málefnum Austurlanda nær. Síðustu þrjú ár, undir minni forystu, er efnahagurinn sterkari en nokkru sinni fyrr þar sem Ameríka hefur afrekað að verða sjálfstæð í orkumálum. Þessi sögulegi árangur skyggir á hernaðarlegan forgang okkar. Þetta er árangur sem enginn hélt að væri mögulegur og val í Austurlöndum nær varð að veruleika. Nú erum við fremsti framleiðandi olíu og jarðgass á heimsvísu. Við erum sjálfstæð og við þurfum ekki á olíu frá Austurlöndum nær að halda.

Undir minni stjórn hefur ameríski herinn verið algerlega endurbyggður fyrir 2,5 milljarða dollara. Herafli Bandaríkjanna er sterkari en nokkru sinni fyrr. Flugskeyti okkar eru stór, öflug, nákvæm, banvæn og skjót. Fjöldinn allur af hljóðfráum flugskeytum er í framleiðslu. Sú staðreynd að við höfum þennan stórkostlega her og búnað þýðir hins vegar ekki að við þurfum að nota hann. Við viljum ekki þurfa að nota hann.
Amerískur styrkur, bæði hernaðarlegur og efnahagslegur, er besti hemillinn.

Fyrir þremur mánuðum, eftir að við þurrkuðum Íslamska ríkuð (ISIS) algerlega út og svæðisbundið kalífadæmi þeirra, drápum við grimman leiðtoga ISIS, al-Baghdadi, sem bar ábyrgð á svo mörgum dauðsföllum, þ.á m. fjöldaaftökum á kristnum, múslímum og öllum þeim sem stóðu í vegi hans. Hann var ófreskja. Al-Baghdadi var að reyna að endurbyggja Íslamska ríkið og honum mistókst. Tugir þúsunda ISIS-liða hafa verið felldir eða fangaðir í minni stjórnartíð. Íslamska ríkið er náttúrulegur óvinur Írans. Eyðing Íslamska ríkisins er góð fyrir Íran og við ættum að vinna saman að þessu og öðrum sameiginlegum forgangsverkefnum.

Að lokum til fólksins og leiðtoga Írans: Við viljum að þið eigið framtíð og þá stórkostlegu framtíð sem þið eigið skilið, framtíð með velmegun heima fyrir og sátt og samlyndi við þjóðir heimsins. Bandaríkin eru reiðubúin til að fagna friði með öllum þeim sem leita hans.

Ég vil þakka ykkur og Guð blessi Ameríku, þakka ykkur kærlega fyrir, takk fyrir, takk fyrir.

000 

Egilsstaðir, 11.01.2020  Jónas Gunnlaugsson 


Bloggfærslur 11. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband