Nú tökum við höndum saman, og hættum öllu svindli og svínaríi. Sagt er að 1000 ára Ríki skálksins í okkur sé að ljúka, og að nú sé best að taka sér ljónið til fyrirmyndar, og fara að éta gras, það er að hætta að vera rándýrið í hjörðinni.

Biblían segir: Jes 65:25 Úlfur og lamb munu vera saman á beit, og ljónið mun hey eta sem naut, en moldin skal vera fæða höggormsins.

000

Hugleiðing, að hluta á blogg: Bjarni Jónsson

Kúvending Bandaríkjanna

Áður en fjárfestar, náðu af okkur bestu fisksölufyrirtækjunum, með, fyrst verðbólga, og síðan verðhjöðnun, og seldu þau til Kanada, þá seldu fyrirtækin fiskinn okkar á hæsta verði í hágengis landinu, Bandaríkjunum.

Síðan keyptum við vörurnar, sem við þurftum að nota í lággengis löndum, á lægsta hugsanlega verðinu.

Þannig gátum við selt á háu verði og keypt á lágu verði.

Bandaríkin létu þetta afskiptalaust.

Sjálfsagt að hjálpa þessari smáþjóð.

Skinsamar þjóðir, reyna að hafa lágt gengi hjá sér, til að þjóðin geti sem minnst keypt frá útlöndum.

Og þá eru launin höfð lægri en í hágengislandinu, og þá er hægt að búa til vörur sem eru ódýrari en í hágengislandinu.

Á þennan máta er búin til viðskipta ójöfnuður á milli hágengis landsins, og lággengis landsins.

Þennan ójöfnuð hefur Trump einsett sér að laga.

Getur það gengið til lengdar, að viðskiptajöfnuður sé óhagstæður á milli landa?

Þá verður önnur þjóðin endalaust skuldugri en hin safnar inneign.

Ég sé ekki betur, en að Trump Bandaríkja forseti, hafi einsett sér að koma á að mestu viðskiptajöfnuði á milli þjóða.

Allir, sem hafa vanist því, að geta selt í Bandaríkjunum, en kaupa lítið þaðan, eru heldur súrir.

000

Hinsvegar er það bankinn, The Bank for International Settlements, í Basel í Sviss sem er höfuð banki í fjármálakerfi heimsins.

Þar hafa forsetar Bandaríkjanna, og nú Trump, verið í baráttu við eigendur Federal Reserve, svokallaðan seðlabanka Bandaríkjanna, nú 80% stjórnað af SádiArabíu.

Við vitum allir, að bankar skrifa aðeins bókhald, en Federal Reserve, þykist lána dollara, og þá líka til fólksins Bandaríkjunum.

Þeim mun meiri umsvif, því duglegri sem þjóðin er, því meira þarf þjóðin af bókhaldi um og til þeirra sem vinna verkin og búa til vörurnar.

Þá geta þeir sem unnu verkin, og bjuggu til vörurnar, framvísað seðlunum, bókhaldsnótunum, sem þeir fengu fyrir að vinna verkin og búa til vörurnar til að kaupa sínar nauðsynjar.

Einnig þarf ríkistjórnin, Forsetinn og Þingið að byggja upp innviði þjóðfélagsins, og þá var landstjórnin, látin taka lán hjá einkabankanum Federal Reserve, sem skrifaði aðeins bókhaldstöluna, og þóttist lána stjórnvöldum.

Nú hafa þessar svindl tölur hlaðist upp, og vextirnir eru orðnir himinháir, og eru nánast ógreiðanlegir.

Það þarf að hætta þessari vitleysu,

eins og Trump virðist vilja,

eins og Sesar sem var drepinn,

eins og Jesú sem rak víxlarana út úr musterinu, og var drepinn,

eins og Abraham Linkoln sem prentaði bókhalds töluna, peninginn beint frá Ríkinu og var drepin,

eins og Kennedy, sem prentaði silfur dollar beint frá Ríkinu og var drepinn,

og margir fleiri hlutu sömu örlög fyrir sömu sakir.

000

Nú tökum við höndum saman, og hættum öllu svindli og svínaríi.

Sagt er að 1000 ára Ríki skálksins í okkur sé að ljúka, og að nú sé best að taka sér ljónið til fyrirmyndar, og fara að éta gras, það er að hætta að vera rándýr í hjörðinni.

Biblían segir: Jes 65:25 Úlfur og lamb munu vera saman á beit, og ljónið mun hey eta sem naut, en moldin skal vera fæða höggormsins.

Framtíðin | Bibleinfo.com

Allir inn í ljósið og litina.

Egilsstaðir, 08.08.2018 Jónas Gunnlaugsson


Bloggfærslur 8. ágúst 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband