Færsluflokkur: Bloggar

Látum við spila með okkur?

Látum við spila með okkur?

Lögfræðingurinn Lee Buchheit kom til Íslands, þá vildi öll stjórnsýslan greiða íssave.

Lögfræðingurinn Lee Buchheit kemur aftur til Íslands, þá vill öll stjórnsýslan, leyfa einkabönkunum, fjárfestunum, hrægammasjóðunum að flytja ágóðan af „kreppusvindlinu“ í gjaldeyri til útlanda.

000

„Kreppusvindlið er:

Ísland, ríkið var að mestu skuldlaust 2008.

Þá gerðu menn skuld einkafjárfesta að skuld ríkisins.

Kreppufléttan skýrð af Tómasi Jefferssyni, var notuð af einkafjárfestum, („Sjóðum“), til að ná öllum eignum heimila og fyrirtækja.

Kreppufléttan, endurtekið

000

Sjónvarpsstöð var látin segja að lögfræðingurinn Lee Buchheit væri þyngdar sinnar virði í gulli.

Þyngdar sinnar virði í gulli fyrir hverja, spyrjum við?

Að sjálfsögðu fyrir einkabankana, fjárfestana og hrægammasjóðina, þá sem vilja koma Einkabanka, fjárfesta, hrægammasjóða og sjóða svindlinu til útlanda í Gjaldeyri.

000

Til að við samþykkjum þetta, þá ætla þessi fjármálafyrirtæki að skrifa (ca. Hugmynd) 1000 milljarða tölu í tölvuna og borga skatt til ríkisins.

Sagt er að skatturinn sé einn þriðji af ríkisskuldunum.

Þessi tala er aðeins tala í einkabankanum.

Einkabankarnir hafa peningasköpunarleyfi frá þér, frá ríkinu og ráða öllu peningabókhaldinu.

000

Lögfræðingnum Lee Buchheit, hefur þá tekist að fá svindltölurnar sem gjaldeyrir til útlanda.

Ísland situr þá uppi án þessa gjaldeyris og með hringl tölur í einkabankabókhaldinu.

000

Þarna ætla ég að blekkja þig, og þú ert syngjandi sæll og glaður.

Er hægt að láta fara svona með sig?

Tíndum við vitinu?

Sagt var, að ef við ljúgum nóg oft þá fari allir að trúa því.

Ég er að reyna að segja þér sannleikann nógu oft,

svo að þú farir að trúa sannleikanum.

Egilsstaðir, 16.06.2015 Jónas Gunnlaugsson


"Fjármálatrúboðinn?"

Fjármálatrúboðinn?

Í DV, 9.-11. Júní 2015, forsíða.

Hér leikur blaðamaðurinn sér að því, að láta líta svo út að „hópurinn“ sé að hlusta á fjármálatrúboðann, lögfræðinginn Lee Buchheit af mikilli innlifun.

Að sjálfsögðu er Lögfræðingurinn Lee Buchheit ekki boðandi á fjármálatrú, og ekki er hann dávaldur.

Blaðamaðurinn, hefur kímnigáfu, og lætur sem við horfum upp til „drottins.“

Nú liggur mikið við.

Laga síðar, verð að hlaupa.

Ekki veit ég hvort ég má auglýsa DV svona, ef ég er að gera rangt, eða misskil eitthvað, þá laga ég það.

 IMG_7306

 

Egilsstaðir, 13.06.2015 Jónas Gunnlaugsson 

Við græðum allir á því að leita sannleikans,

og laga allt, ég meina allt.


Eldur og brennisteinn

Ég hitti Kolbein kaptein í morgun.

Hann sagði „eldur og brennisteinn“ og urraði gríðarlega.

 

Þú ætlar ekki að láta þér segjast og láta af heimskunni.

Hvaða læti eru þetta maður, sagði ég.

 

Það stendur í Dagblaðinu, þann 11.06.2015 að Kröfuhafar gefi eftir mörg hundruð miljarða,

og að „Stöðugleikaskattur“ myndi skila 850 miljörðum.

Einnig er sagt að skuldir ríkissjóðs gætu lækkað um þriðjung.

Og svo kom þetta venjulega hjá Kolbeini kapteini, „eldur og brennisteinn, urr.

 

Þetta eru ekki skuldir ríkisjóðs, þetta eru skuldir einkabankana sem voru settar yfir á ríkið.

 

Nú þykjast einkabankarnir ætla að greiða í skatt upp á 850 miljarða, „eldur og brennisteinn.“

 

Banki getur aldrei greitt skatt, fjármálastofnunin skrifar bara bókhaldstölu, sem er ávísun á þína vinnu og þinn gjaldeyrir, „eldur og brennisteinn.“

 

Þú ert þöngulhaus, „eldur og brennisteinn.“

 

Ég Kolbeinn kafteinn sjálfur, leit í DV frá því ´12.-15.06.2015, og þar stendur.

000

Framlag „hrægammasjóða“ til ríkissjóðs, allt að 700 miljarðar, „eldur og brennisteinn.“

Hvernig getur „hrægammasjóður“ sem hringlaði í peningabókhaldi, og hugarskilningi þínum, borgað eitthvað, með bókhaldi, sem er ávísum á þinn gjaldeyrir og þína vinnu, „eldur og brennisteinn.“

000

Ekki nóg með það.

Þú seldir einnig „Hrægammasjóðunum“ bankana og þá gátu „Hrægammasjóðirnir búið til bókhald sem var ávísun á þína vinnu og þinn gjaldeyrir, þú kallar það „peninga,“ „eldur og brennisteinn.“

000

Þarna skrifuðu bankarnir, „hrægammasjóðirnir“ hundruð eða þúsundir miljarða bókhald fyrir þig, til að leggja veg, byggja höfn, byggja fjölda hótela, og öll voru þessi verkefni harla góð, „eldur og brennisteinn.“

000

Allt þetta „peningabókhald“ varð þá eign bankana, sem þú „seldir,“ gafst hrægammasjóðunum.

000

Þú getur aldrei selt banka, hann skrifar töluna aðeins í bókhaldið, og krónutalan er aðeins ávísun á þína vinnu og þínar eignir.

Og síðan heldur bankinn áfram að prenta bókhald, og vill að sjálfsögðu fá allan gjaldeyri sem þú getur skapað með sjávarútveginum, ferðaþjónustunni, stóriðjunni og líka allan gjaldeyri sem þú tekur að láni.

000

Þú ættir að þekkja þetta.

Það var allt hirt af þér 2008.

000

Skuldir einkabankana voru settar á ríkið.

Eignir heimilanna og fyrirtækjanna voru hirtar með Kreppufléttunni.

000

Kreppufléttan, endurtekið

Hvað þarf ég að tyggja þetta lengi í þig, „eldur og brennisteinn“

000

Æ, heyrðu mig Kolbeinn kapteinn.

Ég skal reyna að læra þetta, og ég skal líka fara með faðirvorið mitt og biðja um meiri skilning.

Urr, urr, „eldur og brennisteinn.“

Laga seinna.

Egilsstaðir, 12.06.2015 Jónas Gunnlaugsson

 


Breytum fjármálakerfinu.

Breytum fjármálakerfinu.

Björn Jónsson skrifar.

Skjaldborg um spilaborg

Þarna virðast einkafjármálafyrirtæki hafa neytt almenning í hinum ýmsu löndum til að taka á sig skuldir einkafjármálafyrirtækjanna.

Skuldirnar voru til komnar vegna svindl verðbréfa sem einkafjármálafyrirtækin höfðu selt fram og til baka.

Það voru engin verðmæti á bakvið bréfin, þau voru aðeins leikflétta, það er spilapeningar.

000

Til viðbótar við verðbréfasvindlið, beitti fjármálakerfið svika kreppufléttunni sem Tómas Jeffersson, skýrði fyrir okkur, til að ná eignum heimila og fyrirtækja.

Kreppufléttan, endurtekið

Þetta hefur orðið til þess að margir hafa lesið sér til um fjármálakerfið, og skilja það betur en áður.

000

Nú sjáum við að vel er hægt að breyta fjármálakerfinu þannig að það vinni fyrir fólkið, en ekki fyrir einhver brask fyrirtæki.

000

Þá bregður svo við að einkafjármálafyrirtækin segjast geta skrifað tölur í bankabókhaldið,* sem við getum notað til að greiða skuldir sem einkafjármálafyrirtækin svindluðu á ríkiskassa þjóðanna, það er fólkið.

000

Þetta er að sjálfsögðu gert til að reyna að koma í veg fyrir,

að við breytum núverandi svindl kerfi.

000

Auðvitað breytum við fjármálabókhaldinu.

Frost Sigurjónsson virðist vera eini þingmaðurinn sem hefur tekið upp hanskann fyrir fólkið í landinu.

000

Nú skulum við öll læra um fjármálasvindlið, og breyta svo fjármálakerfinu.

Hugsa fyrst vel og vandlega og breyta svo.

000

Peningakerfið, peningabókhaldið er mjög einfalt.

Ég flæki það af ásettu ráði til að enginn skilji það.

000

Ungmennafélagsvitundin, breytti ýmsu á Íslandi.

Við eigum að nota sama anda til að endurskapa fjármálakerfið á Íslandi.

 

Egilsstaðir, 12.06.2015 Jónas Gunnlaugsson

*Við vitum að peningur er aðeins bókhald.


Evrópa verður að fá "íslenskt orkuverð," ekki okurverð frá Íslandi

Athugasemd sett við „þanka“ Péturs Blöndal í internets pistlum Morgunblaðsins.

Einhverra hluta vegna, gengur mér illa að koma þessari athugasemd inn.

Athuga það á morgun hjá Morgunblaðinu.

http://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/peturb/1789108/

Evrópa verður að fá "íslenskt orkuverð," ekki okurverð frá Íslandi

Við verðum að taka með í reikninginn að hátt orkuverð í Evrópu er að setja Evrópu á hausinn.

Evrópsk heimili og fyrirtæki, vöruframleiðslan í Evrópu, verður að fá "íslenskt orkuverð " það er orku á lágu verði.

Evrópa í rústum eftir skammsýna fjárfesta, borgar ekki hátt raforkuverð til framtíðar.

Evrópa á að setja sína hugsuði, sína "skapara" í að hugsa upp nýja Evrópu.

"Skaparinn," hugsuðurinn skapar gnægð með mun minni tilkostnaði.

Fjárfestinum nægir oftast að skapa sér meira "bókhald" með tölutilfærslum.

Stundum er það kallað að selja verðbréf fram og til baka.

Þessir þankar eins og Pétur Blöndal kallar sína umfjöllum eru bráð nauðsynlegir, til að við gleymum ekki að skapa heiminn sem við viljum búa í.

Egilsstaðir, 10.06.2015 Jónas Gunnlaugsson

 


Ég hirti af þér allar eignir í landinu.

Ég hirti af þér allar eignir í landinu.

Ég skrifaði bókhaldstölu 1000 miljónir króna.

Ég vil að þú látir mig hafa gjaldeyrir fyrir þessar 1000 miljarða króna.

Ég vil fá gjaldeyririnn sem þú færð fyrir fiskinn, orkuna og ferðaþjónustuna.

Nú segi ég þér að þú getir fengið skatt frá mér upp á 1000 milljarða í krónum.

Þá er ég að segja þér að ég skrifa 1000 miljarða tölu á tölvuna.

Þessi tala er bókhaldstala.

Þessi bókhaldstala er ávísun á þína vinnu og þínar auðlindir.

Það er, ég þykist borga þér skatt, með því að ávísa á þig.

Skilur þú þetta ekki?

Þá skalt þú fara með faðirvorið þitt og biðja um skilning.

Ég hef sagt þér þetta allt áður og hér ættu að koma slóðir.

Hef ekki tíma.

000

Ég fjárfestirinn, tók allar eignirnar með „KREPPUFLÉTTUNNI“ hans Tómasar Jefferssonar.

Kreppufléttan, endurtekið

Ég hef peningaprentunina í bönkunum, fjármálastofnunum.

Ég keypti bankana, Landsbankann með láni, bókhaldi frá Búnaðarbankanum og Búnaðarbankann með láni, bókhaldi frá Landsbankanum.

Þá skuldar Búnaðarbankinn Landsbankanum og Landsbankinn Búnaðarbankanum sömu upphæð.

Með öðrum orðum, ég jafna það í huganum, það er að það er engin skuld.

Skuldin, bókhaldið fyrir bankakaupin er fyrir þig, til að þú trúir að ég hafi greitt fyrir bankana.

Ég spila alltaf á þig.

Ert þú sáttur?

Kanntu ekki að skammast þín?

Er ég þú eða ert þú ég?

 Ekki fyrir löngu hafði fjármálafyrirtæki "grætt" 12 eða 13 miljarða USD

(13 billion)

á svindli með verðbréf, og greiddi svo 550 miljónir USD í sekt.

Þarna hafði verið velt vöngum um að þeir væru ekki sóttir til saka fyrir svindl.

Þeir drifu því í því að láta sekta sig, til að sýna að þeir yrðu líka að fara eftir lögunum.

Að vísu var sekti aðeins brot af gróðanum, svindlinu.

Bankinn bjó til bókhaldstöluna úr engu á augnabliki og borgaði sektina með því að leggja hana, 550 miljónir dollara inn á reikning stílaðan á trúlega ríkið.

Þá gat bankinn að sjálfsögðu eftir lögunum lánað upphæðina inn á reikninga annarra viðskiptavina, og svo annarra og svo annarra, og áfram endalaust.

Ég á þetta einhversstaðar og ætla að leita.

SLÓÐIR

Aflátssala, vegna stóru bankanna 

Heimsbankarnir??

 

Egilsstaðir, 09.06.2015 Jónas Gunnlaugsson


Landsvirkjun er - samvinnufyrirtæki - fólksins í landinu.

 

Landsvirkjun er “samvinnufyrirtæki“ fólksins í landinu.

000

Sett á bloggið: Bjarni Már Gylfason

http://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/bjarnigylfason/1767225/

000

Landsvirkjun skapar fólkinu og fyrirtækjunum sem fólkið vinnur í, raforku á „kostnaðarverði“ + endurnýjunar og framþróunarkostnað.

Ef við ætlum að gera svonefndum “fjárfestum“ mögulegt að bæta svo sem 30% ofan á okkar íslenska orkuverð , þá minnka ráðstöfunartekjur fólksins, heimilanna og fyrirtækjana.

Heimilin yrðu að kaupa minni bíl eða spara á öðrum sviðum.

Fyrirtækin yrðu að spara, til dæmis í launum, og lækka laun í landinu á móti hækkun á orkuverði.

Þá væri komið sama ástand á Íslandi og í Evrópu, það er svo hátt orkuverð að hlutar af framleiðslunni flyttist út úr landinu.

Það þekkist að heilu kynslóðirnar lifi á bótum, og hafi aldrei fengið atvinnu.

Aldrei að borga fjárfestum fyrir að skrifa tölu, bókhald, við gerum það sjálfir.

Kennum Evrópu að vera sjálfbjarga með orkuvinnslu, og að fá íslenskt verð á orkuna.

Við verðum að sjálfsögðu að bjóða samkeppnishæft orkuverð.

Evrópa verður einnig að bjóða samkeppnishæft orkuverð.

Það er enginn orkuskortur,

Orka, vistvæn.

http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1698882/

Það er enginn orkuskortur, ef við notum heilann, hugsunina, andann.

http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1384696/

Egilsstaðir, 03.06.2015 Jónas Gunnlaugsson


Stjórnun orkuframleiðslu í íslenskum höndum.

Stjórnun orkuframleiðslu í íslenskum höndum,

og atvinnuuppbyggingu í einkaframkvæmd,

hefur reynst vel.

000

Gott innlegg í umræðuna um orkuöflun á Íslandi

000

Landsvirkjun í uppnámi

Friðrik Daníelsson

Grein í Morgunblaðinu, 23.05.2015 bls. 24

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1554399/?item_num=0&t=851664537&_t=1433060358.85

000

Vindorkuver

Guðna Á Haraldsson

Grein í Morgunblaðinu, 23.05.2015 bls. 23

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1554463/?item_num=1&searchid=a6055829d0efd6184749d59b07990f4d1a1358c5

000

Hvaðan eiga þúsund megawött að koma?

Bjarni Már Gylfason

http://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/bjarnigylfason/1767225/

000

Erum að vinna með eilífðarvélar

Hörður Arnarsson

http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1555133/?item_num=0&searchid=a6055829d0efd6184749d59b07990f4d1a1358c5

000

Orka, vistvæn.

Íslensk orka

Egilsstaðir, 31.05.2015 Jónas Gunnlaugsson

 


Misjafnar eru talenturnar.

Misjafnar eru talenturnar.

Sett á bloggið hjá Halldóri Jónssyni

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1761898/#comment3574266

Ég er seinn að lesa, og þá kemur einhver snillingurinn og fræðir mig í fáum orðum.

Til dæmis ert þú Jón Valur að fræða mig um Biblíuna, og nefnir bókmenntaform, lagabálka, sagnfræði, ferðasögur, ljóð og ljóðabálka, fræðslurit, bréfaformið, dæmisöguformið, ævisöguformið, kraftaverkasögur, ræður, og „Opinberunarbókarformið.“

Þarna hefur þú lært ýmislegt sem er gaman og gott fyrir mig að læra af þér.

Einhvern tíman var sagt að Coce auglýsti fjórum sinnum á ári. Þá var talið að fróðleikurinn rynni út úr heilabúinu þannig að auglýsandinn varð að fylla á heilann með hæfilegu millibili.

Þetta segir okkur að þið sem hafið tileinkað ykkur hinn ýmsa fróðleik, verðið að fylla á okkur hina ca. Fjórum sinnum á ári.

Ef þið fyllið ekki á heilan hjá okkur, með ykkar hugmyndafræði, þá gerir einhver annar það með sinni hugmyndafræð.

Ekki er öll hugmyndafræði jafn góð.

Þú þarft að fylla á heilana okkar af kurteisi, með ást og umhyggju að leiðarljósi.

Og þú Mofi, þetta er til þín líka.

Við þurfum líka fræðara í dag.

Hér á að koma bros.

Egilsstaðir, 29.05.2015 Jónas Gunnlaugsson


Velt vöngum um Bíblíuna. Tönn fyrir tönn. Fyrirgefning fyrir fyrirgefningu. EINFALT

Sett á bloggið

http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1761898/#comments

hjá Halldóri Jónssyni

Þið veltið vöngum um Bíblíuna.

000

Fyrst skoðum við Gamla testamenntið.

Þar finnið þið boðunina, „tönn fyrir tönn.“

000

Næst skoðum við Nýja testamenntið, og finnum þetta.

Matteusarguðspjall 5

17Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. 18Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu uns allt er komið fram. 19Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það mun kallast minnstur í himnaríki en sá sem heldur þau og kennir mun mikill kallast í himnaríki. 20Ég segi yður: Ef réttlæti yðar ber ekki af réttlæti fræðimanna og farísea komist þér aldrei í himnaríki.

000

Og síðast skoðum við Faðirvorið.

Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, 10til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. 11Gef oss í dag vort daglegt brauð. [1]

Eða: brauð vort til dagsins á morgun.

12Fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. 13Og eigi leið þú oss í freistni heldur frelsa oss frá illu. [2]

Eða: frá hinum vonda. [Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.] [3]

Vantar í sum handrit.

000 14Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. 15En ef þér fyrirgefið ekki öðrum mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.

000

Þegar við skoðum þetta í samhengi, sjáum við að lögmálið er alltaf hið sama.

Það er , „tönn fyrir tönn.“ og

14Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. 15En ef þér fyrirgefið ekki öðrum mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.

 

Það er, ef við fyrirgefum öllum allt, þá er okkur fyrirgefið allt.

Ef við fyrirgefum ekki öllum allt, þá er okkur ekki fyrirgefið allt.

Það er, við dæmum okkur sjálfir.

000                   

Hatur fals og ílska kemst ekki inn í Himnaríki.

Hvað gerum við þá, fullir af hatri ílsku og falsi?

000 Lúkasarguðspjall 18:27 24Jesús sá það og sagði: „Hve torvelt er þeim sem auðinn hafa að ganga inn í Guðs ríki. 25Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“ 26En þeir sem á hlýddu spurðu: „Hver getur þá orðið hólpinn?“ 27Hann mælti: „Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð.“

000

Er þetta eðlisfræði, að eiginleikar haturs, ílsku og fals, komist ekki inn í Himnaríki?

Egilsstaðir, 28.05.2015 Jónas Gunnlaugsson

Jóhannesarguðspjall, Kafli 14, vers 6


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband