Hópur lækna, tannlækna, lyfjafræðinga dýralækna - myndað bandalag í Nýja-Sjálandi og alþjóðlega - Við biðjum lögregluna, undir forustu Andrew Coster, og þingmanna, að vernda fólkið, segir NZDSOS í bréfi sínu - Dauðsföll eftir C-19 bólusetningar.

FRÉTTIN

Nýsjálenskir læknar biðja lögreglu að rannsaka dauðsföll og veikindi eftir bólusetningar

thordis@frettin.is30. maí 2022 9:39ErlentLeave a Comment 

https://frettin.is/2022/05/30/nysjalenskir-laeknar-bidja-logrelgu-ad-rannsaka-daudsfoll-og-veikindi-eftir-bolusetningar/ 

Á þriðjudag birtu nýsjálenskir lækna og lyfjafræðingar opið bréf um nauðsyn þess að rannsaka dauðsföll í kjölfar Covid-19 bólusetninga, og fram kemur að „ítarlegri útgáfa sé í undirbúningi fyrir lögregluna.“

NZDSOS er hópur lækna, tannlækna, lyfjafræðinga og dýralækna sem hefur myndað bandalag við aðra hópa bæði í Nýja-Sjálandi og á alþjóðavettvangi:

„Við biðlum aftur til lögreglunnar, undir forystu Andrew Coster, og þingmanna okkar, um að grípa inn í til að vernda fólkið,“ segir NZDSOS í bréfi sínu sem ber yfirskritina „Dauðsföll eftir C-19 bólusetningar.“

„Það er átakanlega mikið af dauðsföllum og veikindum í kjölfar Covid-19 bólusetninganna, í samanburði við allar aðrar lyflækningar eða bólusetningar seinni tíma. Við tilkynnum um fjölda tilvika sem krefjast ítarlegar rannsóknar, eins og gert er með öll lyf sem skortir öryggisrannsóknir.

„Eftirlitskerfi okkar hafa verið gerð óvirk, til að fela umfang skaðans. Að tilkynna um aukaverkanir er ekki skylda og það eitt og sér grefur undan öllum tilraunum til að sýna fram á að bóluefnið sé öruggt.

„Börn og ungmenni eru að deyja og þjást af hjartakvillum (þótt margir heilbrigðir aldraðir hafi einnig látist), og áhættan sem unga fólkinu stafar af Covid-19 er sérlega lítil. Við teljum að verið sé að ljúga að okkur.

Health Forum New Zealand, sem  eru samtök heilbrigðis- og vísindamenntaðra sjálfboðaliða, hafa haldið úti gagnagrunni yfir dauðsföll og skaða í kjölfar Covid-bólusetninga. Gagnagrunnurinn hefur aðallega verið byggður á tilkynningum frá ættingjum, vinum og heilbrigðisstarfsmönnum um fólk sem hefur látist í kjölfar Covid-sprautunnar.

Nánar má lesa um málið hér.  

000

Egilsstaðir, 30.05.2022   Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eigum við ekki bara að bíða sallaróleg og sjá hvað kemur út úr þessari rannsókn?

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 30.5.2022 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband