Pabbi og mamma

Pabbi og mamma

Fluga á vegg árið 2020

Pabbi, við vorum að læra í skólanum, að árið 2015 hafi Alþingi, Alþingismenn gefið hrægammasjóðum, fjárfestum, einhverjar þúsundir miljarða í krónum.

Þeir fjárfestarnir, hrægammarnir höfðu náð flestum eignum á Íslandi með „Kreppufléttunni“*

Kreppufléttan, endurtekið

 

000

Þessir hrægammar, fjárfestar, fengu svo gjaldeyrir frá sjávarútveginum, stóriðjunni og ferðaþjónustunni og fluttu það til útlanda.

000

Einnig lét Alþingi og Alþingismenn, hrægamma, það er einkafjármálastofnanir, einkabanka, búa til alla peninga í þjóðfélaginu.

000

Við vitum núna, allir krakkarnir í bekknum mínum, að peningur er aðeins bókhald.

000

Þegar einhver kom og vildi byggja stærsta hótel á Íslandi, fór hann í einkabankann og bað um lán fyrir Hótelinu.

000

Þá hugsaði bankastjóri einkabankans.

Ef ég skrifa töluna tíuþúsund miljónir og set það á reikninginn hjá hótelbyggjaranum, og tek veð í hótelinu, þá hef ég eignast stærsta hótel á Íslandi.

000

Af því að þeir, Alþingismennirnir, létu mig, einkabankann, hrægamminn, fá peningaprentunina, Þá eignast ég allt sem gert er á Íslandi.

000

Og áfram hugsar bankastjórinn.

Mikið er ég sniðugur.

Ég held aðeins bókhaldið, þeir koma með vinnuna og efnið.

000

Þeir, fólkið sem framkvæmir og fólkið sem skapar gjaldeyririnn, það er sjávarútvegurinn, stóriðjan og ferðaþjónustan og fleiri, skapar allt sem gert er.

000

Og, pabbi.

Svo skrifuðu, hrægammasjóðirnir 1000 miljarða í skatt, þeir færðu bara í bókhaldið 1000 miljarða, sem var bara ávísun á þína vinnu og þinn gjaldeyrir.

000

Vegna þessa „skatts,“ þessarar plat tölu, fengu hrægammasjóðirnir, einkafjárfestarnir að hafa peningaprentunina, fjármálabókhaldið áfram.

000

Þetta var alveg geggjað, (mig vantar slanguryrðin árið 2020) pabbi.

000

Já heyrðu Stína mín, við, ég mamma þín og hann pabbi þinn vorum mikilsmetnir þingmenn 2015.

000

Ert þú að segja mér að þú mamma mín og þú pabbi minn, hafið láti fara svona með okkur?

000

Skiljið þið þetta virkilega ekki ennþá, núna árið 2020.

000

Heyrið þið mamma og pabbi,

Það er komin þekking og tækni svo að ég get farið aftur til ársins 2015.

Ég kenni ykkur þetta á 15 mínútum.

000

Það er mun meira gaman að eiga mömmu og pabba sem leystu þessa þrælkun, þessa heimsku, þetta skilningsleysi af þjóðinni.

000

Þessi nýi skilningur myndi leysa hinar þjóðirnar úr álögunum líka.

000

En mamma og pabbi.

Við skulum ekki gleyma því, að fjárfestarnir, bankamennirnir, við öll skildum almennt ekkert í peningabókhaldinu.

Ef einhver fór að efast um fjármálakerfið var hann strax gerður að ljóta andarunganum, hann var öðruvísi og heimskur.

000

Nú leysum við fjármálakerfið úr fjötrum.

Engin vandamál, bara lausnir.

Egilsstaðir, 25.06.2015 Jónas Gunnlaugsson

En pabbi, af hverju létu Alþingismenn þetta yfir sig ganga, árið 2015.

*„Kreppusvindlið er:

Ísland, ríkið var að mestu skuldlaust 2008.

Þá gerðu menn skuld einkafjárfesta að skuld ríkisins.

Kreppufléttan skýrð af Tómasi Jefferssyni, var notuð af einkafjárfestum, („Sjóðum“***), til að ná öllum eignum heimila og fyrirtækja.

Thomas Jefferson sagði okkur þetta allt saman.

Kreppufléttan, endurtekið 

*** Lífeyrissjóðum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband