Fluga á vegg, endursagt.

 

 http://www.herad.is/y04/1/2010-10-07-fluga-a-vegg.htm

Fluga á vegg.

Endursagt.

Fluga á vegg.

17.3.2012 | 20:19

Þetta fer að sjálfsögðu eftir reglunum hverju sinni.

 

Stjóri:

 Heyrðu vinur, þú átt að taka miljarð að láni og leggja þá inn í bankann.

 Já vertu ekki með neitt múður, þú færð vexti af innlögninni.

 Auðvitað er lánið tryggt með láninu, lánið fer aldrei út úr bankanum.

 

Bankastarfsmaður:

Ég skil þetta ekki, lendi ég ekki í vandræðum í þessari flækju .

 

Stjóri:

Nei, nei, ég skal segja þér að bankinn stórgræðir á þessu.

Þegar þú leggur miljarðinn inn í bankann, þá lánum við hann út 10 sinnum,

og bankinn eignast 10 miljarða.

 

 Ef við látum 10 starfsmenn taka lán í bankanum fáum við 100 miljarða.

Síðan látum við þessa miljarða ganga hring eftir hring, og mölum gull á þessu.

 

Bankastarfsmaður:

En er þetta ekki ein hringavitleysa, ég skil ekkert í þessu.

 

Stjóri:

Það gerir ekkert til, fólkið skilur ekkert í þessu, það er bara betra.

 

Við búum til peninga og eignumst allt saman.

 

Í versta lagi skammar fólkið ríkistjórnina, en við höldum öllu í okkar höndum.

 

Fjölmiðlarnir okkar mata fólkið á þeim upplýsingum sem okkur henta.

 

Ef einhver stjórnmálamaðurinn vinnur ekki fyrir okkur,

þá kennum við honum um allt mögulegt og ómögulegt,

þá trúir fólkið því, og hann verður óvirkur.

 

Það er ekkert að óttast.

 

Heyrðu, þetta er bara okkar í milli.

 

Þakka þér fyrir að aðstoða bankann okkar, sjáumst á Árshátíðinni.

 

 

Trúlega er þetta skáldsaga.

Egilsstaðir, 07.10.2010 Jónas Gunnlaugsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband