Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2015
Nótur, kvittanir, peningur er færanlegt bókhald.
27.2.2015 | 07:37
Nótur, kvittanir, peningur er færanlegt bókhald.
(Kredit og debit korta bókhald er rauntímabókhald.)
Peningur
Bókhald, nóta, kvittun.
Við köllum peninginn nótu, kvittun.
Hvernig við hugsuðum bókhaldið, peninginn, nótuna, kvittunina.
ooo
(Við á Íslandi notum krónur, hér = nótur)
Við bjuggum til nótur af hinum ýmsu stærðum.
1 nóta, 5 nótur, 10 nótur, 50 nótur, 100 nótur,
allt málm nótur.
ooo
Síðan prentuðum við seðla, seðilnótur,
Í stærðunum,
500 nótur, 1000 nótur, 5000 nótur,
og 10000 nótur.
Þú manst að nótur eru peningar, kvittanir, bókhald.
Ooo
Þarna vorum við búnir að búa til nótur með föstu gildi.
Það er færanlegt bókhald, sem var til staðar hvar sem viðskipti voru gerð.
ooo
Hvert land, ríki lét slá myntina, málmnóturnar, og prenta seðilnóturnar.
Það að slá myntina og prenta peninginn, kostaði, en bæði myntin og seðilnóturnar, mátti nota aftur og aftur.
ooo
Magnið af mynt, og seðilnótum var jafn mikið og þurfti til að nota við öll viðskipti í landinu.
Það er til að nýta allt vinnuafl og auðlindir.
Hver nóta hafði ekkert verðgildi sjálf, en var kvittun fyrir efni eða vinnu.
Landið, þjóðin, ríkið afhenti nóturnar, úr SJÓÐI-0 fyrir vinnu og þjónustu hjá sér.
OOOO
Central-banks ----
Slóð á Benjamin Franklin
OOOO
Sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn, iðnaðurinn og ferðaþjónustan öfluðu gjaldeyris,
sem nýttist til kaupa á erlendum vörum.
ooo
Fyrir þennan erlenda gjaldeyrir greiddi SJÓÐUR-0 með nótum,
sem sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn, iðnaðurinn og ferðaþjónustan,
notaði í reksturinn hjá sér.
ooo
Þarna var kominn erlendur gjaldeyrir og nótur frá SJÓÐI-0 sem mátti nota til að greiða,
fyrir jarðgöng, hafnir, brýr og skóla eða það sem þjóðfélagið þarfnaðist.
ooo
Þessi verkefni og greiðslur fóru eftir því hvað laust var af vinnuafli, eða hægt var að losa,
af vinnuafli, og hve mikill erlendur gjaldeyrir var til ráðstöfunar á hverjum tíma.
ooo
Skinsamlegt getur verið að hafa endurgreiðslu á einhverjum árafjölda til að verkefnin verði frekar valin af skinsemi.
ooo
En,
aðal málið er að þetta verði einfalt,
og að sem flestir geti haft yfirsýn yfir fjármálin,
DEBIT og KREDIT,
SJÓÐ-0
---- SJÓÐUR "0"---- Gaman ---- Spuni ----
Ooo
Ekki kássu eða grautar fjármál,
sem eru gerð til þess að enginn
geti haft yfirsýn.
ooo
Grín
Í dag notum við kredit kort, og þá getur kortafyrirtækið,
hugsað upphæðina sem útlánlán inn á reikning aðila,
og innborgun inn á reikning aðila,
og ef leyfilegt er að lána út 10 sinnum innlán,
þá má kortafyrirtækið búa til og lána út tífald þessa upphæð.
Ef til vill í tvígang.
Það væri góð framleiðni.
Er grín, grín?
Ooo
Ég ætla ekki að prjóna meira við þetta núna, enda aðrir betur til þess færir.
Egilsstaðir, 26.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 11.7.2018 kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bankamenn
25.2.2015 | 22:43
Bankamenn.
Við viðskiptamenn bankanna, viljum að hlutabréfin okkar hækki.
Þið eigið að selja tapbréfin til "annarra." (?)
ooo
Vinnan ykkar var að færa gróða til okkar, punktur.
ooo
Ef þið kunnið ekki að láta gróðann koma til okkar,
og láta tapið gufa upp, það er fari á ríkið,
þá rekum við ykkur.
ooo
Nú dæmum við ykkur í fangelsi, fyrir að vinna vinnuna ykkar.
Jú ef við hefðum grætt þá hefðu þið fengið orðu.
ooo
Þið fóruð eftir reglunum, en þær eru ólöglegar þegar ég tapa.
Þegar ég græði eru reglurnar útsjónarsemi og árangurinn til fyrirmyndar.
ooo
Við vitum að fjármálakerfið er ******, ég meina lasið.
ooo
En, er ekki ráð að laga fjármálakerfið?
Egilsstaðir, 25.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 26.2.2015 kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Landakröfur Kínverja
23.2.2015 | 10:43
Landakröfur Kínverja.
Forvitnilegt.
Kína vill færa sína landhelgi 800 km suður að ströndum
Indonesiu, Malasiu, Brunei, og Filipseyja.
Egilsstaðir, 23.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Það er betra að hafa augun opin
Jónas Gunnlaugsson | 29. ágúst 2013
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1320280/
---
Höfn og flugvöllur á milli Heimskautssvæðisins, Evrópu og Ameríku
Jónas Gunnlaugsson | 28. ágúst 2013
---
Jónas Gunnlaugsson | 16. júlí 2012
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1310558/
---
Jónas Gunnlaugsson | 18. mars 2012
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1310767/
---
Væntanleg herbækistöð á Grímstöðum á Fjöllum.
Jónas Gunnlaugsson | 12. maí 2012
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1239481/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Úkraína, baráttan um jarðgasið.
21.2.2015 | 11:55
Úkraína, baráttan um jarðgasið.
Stærstu orkufyrirtæki heimsins eru að ýtast um jarðgasið.
slóð
Ég set hér slóðir.
Læra og kynna sér um hvað máli snýst.
Ég vona að ég megi nota þessar myndir.
Ef ég geri eitthvað rangt, þá laga ég það að bestu manna yfirsýn.
ooo
Jarðefna eldsneyti í Úkraínu, fjólublátt
---
Dniper Donets basin, 1,34 trillion m3,.
----
http://en.wikipedia.org/wiki/Shale_gas
---
---
http://www.energynomics.ro/en/ucraina-clinches-10-billion-usd-deal-with-chevron-for-its-shale-gas/
ooo
Energy Issues in the Ukrainian Crisis
Submitted by Martin W. Lewis on March 27, 2014 7:32 am Source: http://www.geocurrents.info/place/russia-ukraine-and-caucasus/energy-issues-ukrainian-crisis#ixzz3SNYUQpOc
http://www.geocurrents.info/place/russia-ukraine-and-caucasus/energy-issues-ukrainian-crisis
Egilsstaðir, 21.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
laga?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Get ég flúið frá sannleikanum?
19.2.2015 | 02:10
Til umhugsunar.
Birt 27. nóv. 2014
In an unapologetic speech at the United Nations,
Israeli Ambassador Ron Prosor tells European countries:
"You failed us in the 1940s, in 1973
and
you are failing us again today."
"Admit It, You are Against Israel"
https://www.youtube.com/watch?v=n-Xh9GzvrxM
ooo
Hvers vegna samþykkti ég ekki á Alþingi
að Kúrdar ca. 30 miljónir,
fengju land í Tyrklandi, Sýrlandi, og Íran?
Nú svo eru það öll hin þjóðabrotin.
Var ég ekkert að hugsa um þjáða?
Var ég að hugsa um að koma höggi á Israel?
Hata ég menn andans og hugsjónanna , skaparana?
Get ég flúið frá sannleikanum?
Egilsstaðir, 19.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
31.7.2014 | 23:24
Israel, 29.01.2009. endurtekið
16.3.2012 | 18:05
Judea og Samaría, að ógleymdri Jerúsalem
ÍSRAEL
(íbúar 1979, 3.654.000.)
http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/israel6.html
Í upphafi var orðið, orðið var guð. Hugmyndin varð efni.
Barnið er fullt af trúnaðartrausti, horfir upp til föður og móður,
og reynir að framkvæma eftir fyrirmyndinni.
---
Síðar fara Adam og Eva að velta vöngum, ættum við að gera þetta eða hitt, hvort er rétt.
Þau átu af skilningstré góðs og ills, og voru rekin út úr aldingarðinum Eden.
Þau höfðu sjálfstæðan vilja og leituðu leiða. Þróun, stökkbreyting, stjórnun, aðleitun eða þrá.?
Lífveran fer úr hreiðrinu þegar hún hefur aldur til.
---
Í náttúrunni virðast þeir sem hafa nautna og sykurslefu í skilningarvitunum,
síður varast umhverfi sitt.
Yfir fengitímann varast dýrin síður rándýrið.
Sá sem er með sykurslefu finnur ekki annað bragð svo vel sé.
Í Nóaflóðinu, náttúruhamförum, og öðru slíku, varast menn betur ef öll skilningarvit eru í lagi.
Ef hávaðinn er mikill heyrist viðvörunarflautið ekki.
Nói hafði eyra að heyra, og bjargaðist á Örkinni.
---
Babelsturninn var reistur, fólkið gat gert mikla hluti, og oftast tókst einum að reyra sína skoðun á alla.
En fjarlægðin og samskiptaleysið varð þess valdandi, að tungumálin tóku að þróast sitt í hverja áttina,
og þá urðu til margskonar menningarheildir, sem kepptu hver við aðra, og flýttu þróun.
---
Abraham kom nokkru eftir 4000 fyrir Krist,
frá Úr í Kaldeu (Irak?) til Kanan, nú Israel. (Nat.Geographic kort,des.1989)
Hann eignaðist soninn Ismaiel með Hagar Egypskri konu.
Af Ismaiel eru Arabar komnir.
--
14 árum síðar eignaðist Abraham soninn Isak, með konu sinni Söru.
Af Ísak eru Gyðingar komnir.
Arabar og Gyðingar kalla Abraham ættföður sinn.
---
Landið sem nú er Israel var fyrir Krist undir yfirráðum
Egypta 1450, Davíðs/Salomons 950, Assyríu 650, Babiloníu 550, Persíu 500,
Alexanders 323, Ptolemies 300, Seleucids 198, Rom 63,.
---
Eftir Krist,
Byzantine (Kristið) 450, Umanyads (Múhamedstrú) 740, Abbasids 850,
Krossfarariddarar (Kristnir) 1140, Mamluks (Múhamedstrú) 1450,
Ottomans 1550, Bretar 1920.
---
Eftir fyrra stríð 1918, voru Gyðingar í Palestinu, og dreifðir um mörg lönd.
Þegar mjög var þrengt að þeim, og þeir myrtir í hinum ýmsu löndum,
fóru þeir að reyna að fá sitt eigið sjálfstjórnarsvæði.
---
Þegar þeir flýðu undan nasistum, var þeim oftast vísað frá flestum löndum,
og aftur inn í gasofna nazista.
Þeir voru drepnir í miljónatali.
---
Árið 1946 slepptu Bretar Palestínu,*
og fengu Múhameðstrúarmenn Jórdaníu, landið austan við ána Jórdan,
en landið vestan við ána Jórdan átti að vera sameiginlegur bústaður
Gyðinga, (Kristinna) og Múhameðstrúarmanna.
---
Einræðisherrar Arabaþjóðanna í nálægum löndum, sem reyndar höfðu mörg hundruð miljóna íbúa,
sögðust ætla að reka Gyðinga i hafið, og báðu alla Múhameðstrúarmenn
að flýja út úr Israel á meðan.
---
Gyðingar hröktust frá eignum sínum í mörgum Araba löndum
og reyndu að koma sér til Israel.
---
Egyptar náðu Gasasvæðinu, og Jórdaníumenn vesturbakkanum**, vestan Jórdanár,
en þar stýrði Jórdanska hernum, sem var byggður upp af Bretum,
Glubb phjassa eða Gordon, breskur hershöfðingi,
sem hafði gift dóttur sína Hússein Jórdaníu kóngi.
---
Þarna höfðu Palestinumenn hrakist til Jórdaníu og Egyptalands og Gyðingar til Israel.
---
Palestinumenn sem farið höfðu til Jórdaníu,
reyndu að steypa Hussein Jórdaníu kóngi, en hann hrakti þá út úr landinu,
og Líbanon þá friðsamt land, 56% Kristið og 44% Múhameðstrúar,
(St.Nord.Konv.Leks.1920), tók við Palestinumönnum.
---
Áður en langt um leið kröfðust Múhameðstrúarmenn meiri valda í Líbanon,
nú væru þeir örugglega orðnir meirihluti íbúana.
---
Síðan hefur verið stanslaus styrjöld í Líbanon.
--
Eftir nokkrar styrjaldir á milli Araba og Israelsmanna, hafa herir Araba dregið sig út úr Ísrael.
---
Ísraelar sem áður voru drepnir í miljónatali í gasofnum,
reyna að styrkja stöðu sína, því þeir geta ekkert farið,
og eru hræddir um að verða leiksoppur annarra.
---
Ef litið er á ástandið í löndunum umhverfis Ísrael, þekkist það að Kúrdar, sem þó eru Múhameðstrúar,
séu drepnir í þúsundatali á eiturgasi, en þeir búa þar í nokkrum löndum.
---
Bahajar og ýmsir trúarhópar þola miklar ógnir, stundum brenndir lifandi.
---
Í Ísrael er staðan mjög erfið og miklar ógnir á milli Múhameðstrúarmanna og Gyðinga og fátt til ráða.
---
Nú hafa þjóðir jarðarinnar færst saman, vegna tækniframfara í samgöngum og fjarskiptum,
öfugt við það sem var á dögum Babelsturnsins.
---
Allt bendir til að tungumálin þróist saman, einkum andlega, og stórar menningarheildir nái að myndast.
---
Nú ríður á að kynna allt það besta frá hverri menningarheild fortíðarinnar, til sköpunar á framtíðinni.
---
Helst væri að hugmyndagreina trúarhugmyndirnar:
Allah = Jave = God = Guð = ,.
Kærleiksboðskapurinn = það besta í Múhameðstrú = það besta í Gyðingdómi = ,.
Já á Hebresku = yo = já á Arabisku = já = yes = nai = amen =.
---
Ekki búa til kássu, en já sé já, nei sé nei, Guð sé Guð, amen.
---
Hann skyldi þó aldrei vera þarna, karlinn með skeggið, Hinn Alvaldi, Himnafaðirinn, Hinn Eilífi,
sá andskoti sem oft er á vörum þínum, þegar þú gerir verstu verkin þín.
---
Guð minn, hjálpaðu mér, vertu mér syndugum líknsamur.
---
Hvar eru gömlu (réttu) göturnar, leið þú mig.
Heldur þú þig geta fundið mig, með speki þinni, hugsun og klækjum.
Leita þú, knúðu á, fyrir þér mun upplokið verða.
---
Fóturinn í gifsinu stirðnar og rýrnar.
Þegar hann getur æft sig aftur liðkast hann og styrkist.
Íþróttamaðurinn liðkast og styrkist, verður stærri og sterkari, fær það sem hann sækist eftir.
Sá sem ekki æfir, ekki leitast við að bæta sig, notar ekki það sem honum var gefið, tapar því.
Jafnvel það sem hann hefur verður frá honum tekið, hann rýrnar.
---
Leita þú, knúðu á, fyrir þér mun upplokið verða.
Æfðu ástúðina og umhyggjuna og settu eitthvað mýkjandi á hatrið.
*Palestinu Arabar fengu 74% af Palestinu frá Bretum ca. 1921,
sem sjálfstjórnarsvæði, og full yfirráð ca, 1946
---
**Það er Júdea og Samaría, landið sem Gyðingarnir eru kenndir við.
Þess vegna nota ég alltaf orðið "Vesturbakkinn" til að allir
gleymi því að "Júðarnir" sem við höfum ofsótt í árþúsundir,
bjuggu í "Júdeu" og "Samaríu," það er "Vesturbakkanum.
---
Jónas Gunnlaugsson Egilsstöðum, fyrir 04.09.1988
jonasg@ismennt.is
Bloggar | Breytt 23.11.2015 kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki gleyma KREPPUFLÉTTUNNI.
17.2.2015 | 09:08
Ekki gleyma kreppufléttunni.
Ertu stoltur af því að láta hlunnfara þig?
Sett á blogg hjá Halldóri Jónssyni
http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1623748/#comment3558607
Kreppufléttan náði eignum fólksins í fasteignum og fyrirtækjum.
Kreppufléttan er einföld og auðskilin.
Við kennum kreppufléttuna við Tómas Jeffersson.
Okkur var talin trú um að skuldin héldi verðgildi,
en eignin okkar í húsinu gufaði upp.
Þarna var leikið á okkur.
Við munum komast að því að allir peningar eru aðeins bókhald,
það er ávísun á huga og hendur Jóns og Gunnu.
Egilsstaðir, 17.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 17.2.2015 kl. 08:45
12
Mikið er gaman ef við látum reyna á
KREPPUFLÉTTUNA.
Það er, fyrst verðbólga og síðan verðhjöðnun.
Með verðhjöðnuninni er þín eign látin hverfa.
Ertu STOLTUR af þvi að láta hlunfara þig?
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1330952/
Egilsstaðir, 17.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Draumóramenn? Bjarni Jónsson
14.2.2015 | 22:37
Draumóramenn?
Sett á bloggið hjá Bjarna Jónssyni
http://bjarnijonsson.blog.is/blog/bjarnijonsson/entry/1603491/
ooo
Þarna er hugsjónamaðurinn, skaparinn, Bjarni Jónsson, sá sem sér í huganum lausnir, þannig að vandamálið hverfur.
Slóð Verum fulltrúar gnægta, lausna.
ooo
Hann sér einnig að nóg er til ef allir fá að gera gagn, búa til vörur og framkvæma þjónustu, og fá kvittanir, bókhald, peninga frá SJÓÐI-0
Slóð SJÓÐUR "0"
til að þeir geti einnig framfleytt sér og sínum.
Ooo
BJ skrifar
...Félagslega markaðshagkerfi - Die Soziale Marktwirtschaft, sem Dr Ludwig Erhard mótaði á 6. áratugi 20. aldarinnar, er það hlutverk ríkisvaldsins að fylgjast með og kippa í spottana.....
....Á þessu 30 ára tímabili hefur orðið mikill hagvöxtur í BNA, og miðstéttin virðist fara varhluta af honum. ......
......Ávinningurinn af framleiðniaukningunni, sem á hlut í hagvextinum, virðist ekki lenda hjá launþegunum í BNA, heldur hjá fjármagnseigendunum. Þetta er ósanngjarnt og er tekið að valda þjóðfélagsóróa í "Guðs eigin landi.". .... BJ skrif hingað
ooo
Egilsstaðir, 13.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Ef ofnotkun er á auðlindum jarðarinnar, þá neytum við einungis fæðu úr plönturíkinu,
og ef einhver vill endilega hafa húsdýr, þá verði það gerlar sem éta afganginn,
af ávöxtunum, korninu og grænmetinu.
Gerlarnir tvöfalda þyngd sína á tveim klukkutímum.
Þú leggur í gerlasúpu eftir hádegið og býrð svo til bollur úr því, í kvöldmatinn.
Að sjálfsögðu framleiðir þú ekki eldsneyti úr mat, korni, þannig að þú fáir minni orku,
en þú eyðir í framleiðsluna, eins og nú er gert.
Hér ættu að koma slóðir, en þær eru á blogginu mínu.
Egilsstaðir, 13.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggið þitt er læsilegt og fullt af hugmyndum og atorku.
Egilsstaðir, 13.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skattaskjóls listarnir
14.2.2015 | 11:41
Skattaskjóls listarnir.
Sett á blog Ómars Geirssonar
http://omargeirsson.blog.is/blog/omargeirsson/entry/1619162/#comment3558020
Allir sem ráða yfir sæmilegri tölvu tækni hafa alla þessa lista,
það er leyniþjónustur og mafíur.
Það eru aðeins alþýðan, Jón og Gunna sem vita ekkert.
ooo
Skildi einhver vilja vilja kaupa listann, og stinga honum undir stól?
Einhver gæti keypt listann og birt nafnlaus gögn til að byrja með,
en selt svo ríkinu eitt og eitt nafn.
Fjölmiðill gæti komi þar við sögu.
Trúlega getur ekkert komið í veg fyrir að listinn verði opinberaður.
Fjöldi fólks getur lagt út þessa upphæð til að kaupa listann.
Hér er ég að segja að engin stjórnmálamaður getur komið í veg fyrir að listinn verði birtur.
Egilsstaðir, 13.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórþjóð getur keypt flest á Íslandi á fáum árum.
13.2.2015 | 15:26
Nú er að læra að hugsa.
Stórþjóð getur keypt flest á Íslandi á fáum árum.
Smáþjóð getur keypt örlítið hjá stórþjóðinni.
Nú setjum við jafnræðis reglur um að íslendingar megi ekki kaupa nema 2%
af landi og eignum í heiminum. (Cirka prósenta)
Á sama hátt, má heimurinn ekki kaupa meira en 2% af landi og eignum á Íslandi.
Við verðum einnig að sjá til þess að ekki sé hægt að nota leppa til að ná eignunum frá fólkinu í landinu.
Við verðum að tengja landið og eignirnar við þarfir fólksins á hverjum tíma.
Einhverstaðar heyrði ég að land í Kína gengi til ríkisins á 70 ára fresti.
Við megum ekki vera svo bláeygir að við vöknum upp við það
að einhver lönd eða fyrirtæki geti sagt að þeir eigi þetta
allt saman og hvort við viljum ekki gera svo vel
að færa okkur af eignunum sem þeir eigi núna.
Hér er ekki verið að hugsa í vinstri eða hægri, sameign eða einkaeign.
Aðeins, að stjórna umhverfinu okkar, öllum til hagsbóta.
Við eigum fullt af góðu fólki sem getur hugsað þetta fyrir okkur.
Egilsstaðir, 13.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er allt til sölu?
13.2.2015 | 01:58
Er allt til sölu?
Voru einhverjir að reyna að selja lífeyrissjóðunum Landsvirkjun?
Ef lífeyrissjóðirnir vinna eins og fjárfestir, er þá allt falt fyrir rétt verð?
ooo
Guðni Ágústsson segir okkur að Framtakssjóður Íslands,
það eru íslensku lífeyrissjóðirnir, séu búnir að selja til dæmis
fiskútflutningsfyrirtækið Icelandic til útlanda.
ooo
Guðni bendir á að Framtakssjóðurinn hafi einnig selt
fiskútflutningsfyrirtækið Icelandic.
En þá kemur stóra bomban eins og köld vatnsgusa yfir mann
Fólkið í landinu á fyrirtækið, helmingseigandi er Landsbankinn, ríkisbanki.
Hinn helminginn á Framtakssjóður Íslands og fólkið á þann sjóð í gegnum lífeyrissjóðina.
ooo
Hvað er hér í gangi?
Við virðumst halda að Bókhald það er Peningar geti komið í stað eigna,
það er lands, húsnæðis og framleiðslutækja.
Bókhaldið, peningurinn, getur orðið verðlaus.
ooo
Nú er að fá hugsuðina okkar til að skoða málið.
Egilsstaðir, 12 .02.2015 Jónas Gunnlaugsson
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1343560/
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1331532/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)