Orkubyltingin
13.7.2015 | 10:04
Orkubyltingin
Kjartan Garðarsson skrifar í Morgunblaðið, bls. 27, 11.07.2015.
000
Þarna skrifar Garðar um lausnir Skaparanna, í stað stöðnunar eða afturfarar hjá Nú staðreynda trúar fólkinu. *jg
Fleiri slóðir
Skapararnir og Nú staðreynda trúar fólkið. Jg
Það er enginn orkuskortur, ef við notum heilann, hugsunina, andann. jg
Ég hefði helst viljað birta greinina í heild, fyrir þá sem hafa ekki tækifæri til að lesa, það frábæra blað, Morgunblaðið. jg
000
Garðar skrifar:
Orkubyltingin mikla er að hefjast.
Það sem er sérstakt við þessa kjarnaofna er að þeir geta notað þóríum, úran og plútón sem eldsneyti og breyta allt að 99% orkunnar í varma í stað 2-3% nýtingar eins og hún er í dag.
Og það þarf ekki að auðga úranið.
Það þýðir að þessir kjarnaofnar eru allt að 100 sinnum betri en þeir sem notaðir eru í dag og margfalt umhverfisvænni.
Úrganginn frá þeim þarf einungis að geyma í fáeina áratugi í stað tugþúsunda ára.
Og það sem meira er:
Úrganginn frá núverandi kjarnaofnum ásamt kjarnorkuvopnum má vel nýta sem eldsneyti.
Það er stórt, vistvænt framfaraskref út af fyrir sig.
***
Breytt staða
Frumefnið þóríum heitir í höfuðið á norræna þrumuguðinum Þór.
Það er kannski táknrænt að þóríum mun væntanlega hafa mikil áhrif hér á Sögueyjunni.
Í mínum huga er það þannig að við höfum um þrjú ár til að fá hingað orkusækinn iðnað.
Eftir það fer varla nokkur norður í Ballarhaf til að ná sér í orku.
Enginn veit því fyrir víst í hvaða stöðu við verðum til að semja um raforkuverð eftir nokkur ár.
Þetta skrifar Kjartan Garðarsson.
000
slóð
Frosti Sigurjónsson
Þóríum kjarnorka
http://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/frostisig/1248624/
000
* Við erum vonandi allir, með báða þessa eiginleika,
"Skaparann" og "Nú staðreyndatrúar" manninn.
Egilsstaðir, 13.07.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.