Að hafa stjórn á stjórninni.
16.3.2012 | 23:45
Published: 08/23/10
http://www.israelnationalnews.com/News/News.aspx/139264
Israel Police said on Monday it will recommend that former Prime Minister Ehud Olmert
be indicted for alleged bribery in the Holyland project.
Alltaf þegar einhver er orðinn forsetisráðherra í Ísrael er dómsvaldinu sigað á hann,
til að hann viti að ef hann lætur ekki að stjórn,
fær hann engan frið fyrir lögsóknum.
Þarna átti að neyða forsætisráðherrann til að fallast á eitthvað sem hann taldi óráð.
Vonandi er ekki verið að aðvara núverandi forsætisráðherra.
USA virðist ráða dómskerfinu í Ísrael
Til íhugunar
Bloggar | Breytt 17.3.2012 kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
The Tobin tax
16.3.2012 | 23:42
http://www.herad.is/y04/1/2010-08-25-the-tobin-tax.htm
August 25, 2010
The Tobin Tax: The Deficit-Busting Levy Wall Street Hates
http://moneymorning.com/2010/08/25/tobin-tax-2/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Presenting the American Monetary Act
16.3.2012 | 23:41
http://www.herad.is/y04/1/2010-08-23-monetary.htm
Presenting the American Monetary Act
(as of July 18, 2009)
contemplate, íhuga
http://www.monetary.org/32pageexplanation.pdf
contemplate
http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/debtslavery/debtslavery.html
http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/debtbased/debtbased.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Handgenginn konungi.
16.3.2012 | 23:40
http://www.herad.is/y04/1/2010-08-03-Handgengin-Konungi.htm
Þegar Ísland var að missa sjálfstæði sitt fyrir 1000 árum,
lét konungur þá sem voru að vinna fyrir hann,
senda sonu sína í fóstur til sín.
Þá þótti líklegra að konungsmenn á Íslandi gerðu það sem þeim var sagt.
---------
Fyrir áratugum var John Foster Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Allen Dulles bróðir hans yfirmaður CIA,
(Central Intelligence Agency).
Seinna las ég grein, ef til vill í Readers Digest, Newsweek, Time, eftir mann sem var
settur, kosinn, yfirmaður ef til vill í þinginu.
Nú er ég að tala um það sem er í heildar minni, þegar smáatriði eru gleymd.
Þessum nýja manni í efsta lagi stjórnsýslunar, var boðið í mat með yfirmanni CIA.
Nú skálda ég, (heildarmynni) Nú ert þú orðinn einn af okkur, við verðum að gæta þín,
vegna mikilvægis þíns í stjórnsýslunni.
Það er margt að varast og margir sem reyna að koma þrýstingi á þig.
Þetta er nú meiri mæðan hjá okkur.
Heyrðu mig, var ekki dóttir þín í eiturlyfjum fyrir tveim árum,
já þetta er nú meira vesenið.
Já, og þú lentir í þessu máli fyrir 14 árum, þetta er erfitt.
Svona gekk þetta og þegar fundinum var lokið, vissi greinarhöfundur að allt hans líf,
og allra í hans fjölskyldu, allir hans vinir, alt sem leynt átti að vera, var á vitorði CIA.
Ef til vill væri best að hafa sig hægan, og láta lítið á sér bera.
Þetta bender til að allir í aðal stjórnsýslu veraldar, og allir,
sem hugsanlega gætu lent í mikilvæg embætti,
séu á skránni.
Auðvelt er að búa til senur sem virka eins og tjóður, fyllerí eiturlyf, kynlíf.
Ungir menn fá skólastyrk, til útlanda.
Mikið eruð þið sniðugir þarna á Íslandi, notið hitan í jörðinni, til að skaffa ykkur hita og ljós.
Mikið væri gaman að eiga mynd af þessu. Þakka þér fyrir myndirnar, þetta er meiri háttar,
og nú líða 6 ár og fullt af myndum, fylleríum og fjöri.
Nú vantar mig mynd af flugvellinum og þessu og þessu, og vertu nú ekki með múður.
Þú ert búinn að vera upplýsingamaður okkar í 6 ár, þetta er flott.
Allar upplýsingar sem áður voru hjá Stasi, eru nú hjá Evrópusambandinu.
Nú er bara að hlýða, það erum við sem ráðum........
Eina ráðið nú er Faðirvorið.
Egilsstaðir, 03-08-2010 jg
Bloggar | Breytt 17.3.2012 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aflátssala, vegna stóru bankanna
16.3.2012 | 23:36
http://www.herad.is/y04/1/2010-08-02-Goldman-Sachs-greidir-domssatt.htm
Goldman Sachs bankinn greiðir fyrir brot, gerir dómssátt, vegna að því að virðist,
ólöglegrar aðferðafræði við sölu húsnæðislána.
Áður greiddu menn kirkjunni, það var kölluð aflátssala,
dómssátt vegna væntanlegra synda eða brota.
Sennilega borga viðskiptavinir Goldman Sachs sektir bankans.
Áður svindlaði Goldman Sachs á viðskiptavinum sínum þannig,
að þeir töpuðu miklum fjármunum, segir fréttin.
Trúlega lætur Goldman Sachs viðskiptavinina greiða sektina,
til dæmis með því að láta þá greiða 0,1 %,
á allar færslur viðskiptamanna.
(fróðlegt væri að vita hve lengi Goldman Sachs er að fá upp í sektina,
10 daga, 30 daga, 365 daga?)
Með öðrum orðum, þá virðist Goldman Sachs láta viskiptavini sína,
greiða fyrst tapið og síðan fyrir sektina.
Trúlega greiddi Goldman Sachs eigendum sínum,
tekjurnar af svindlinu.
(2011-01-07 sá ég grein eftir "By Keith Fitz-Gerald, Chief Investment Strategist, Money Morning Talk about a social media bubble!"
þar sem gefið er í skin að, "that Goldman booked more than $13 billion in the process").
http://www.herad.is/y04/1/2011-01-07-worldbank-goldmansachs.htm
-
Egilsstaðir, 02.08.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórgróðieigenda, notenda, almennings, af orkufyrirtækjum á Íslandi
16.3.2012 | 23:33
http://www.herad.is/y04/1/2010-08-01-Storgrodi-eigenda.htm
Stórgróðieigenda, notenda, almennings,
af orkufyrirtækjum á Íslandi
Ágóðieigenda, notenda, almennings, af orkufyrirtækjum á Íslandi
Athuga hver salan er á orku síðustu tíu ár og einnig hvert ár fyrir sig,
í krónum á verðgildi krónu í dag.
Athuga hvað sama orka hefði kostað í olíu síðustu tíu ár,
og einnig hvert ár fyrir sig, á verðgildi krónu í dag.
Draga frá greiðsluna fyrir orkuna á hverju ári,
frá kostnaðinum ef notuð hefði verið olía.
Ágóðinn er þá mismunurinn, á að greiða orkuna á olíuverði,
eða greiða kostnaðarverð frá orkuveri,
sem við eigum sjálf.
Þessar tölur, og efnahagsstærðir á að kenna í skólunum,
þannig að enginn fari þar í gegn án þess að hafa fengið kennslu,
í hagstæðum rekstri þjóðfélagsins.
-----
Við þurfum að greiða það sama fyrir orkuna í dollurum og við gerðum fyrir hrun 2008,
það er helmingi fleiri krónur en fyrir hrun.
-----
Ef við gerum það ekki, ná aðrir orkuveitunum,
og láta okkur greiða olíuverð.
Það yrði mun dýrara fyrir okkur
***
Það þekkist í þorpum í stórum löndum, að einstaklingar eiga brunna og selja vatn,
oft mengað, til nálægra hverfa í byggðinni.
Þar fæst ekki samstaða um vatnsveitu vegan hagsmuna brunneigenda.
Egilsstaðir, 02.08.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það skiptir öllu að eiga orkulindirnar
16.3.2012 | 23:32
Það skiptir öllu að eiga orkulindirnar, og geta valið nýtingu sem er best fyrir Ísland.
http://www.herad.is/y04/1/2010-07-23-tad-skiptir-ollu-ad-eiga-orkulindirnar.htm
Ef einkaaðili hefði átt Kárahnjúkavirkjun, og hann hefði fengið gott tilboð um kaup á virkjuninni,
til dæmis frá útlöndum, áður en samið var um orkusölu.
Þá hefði sá aðili ef til vill getað samið um sölu á rafmagni, til Evrópu á þreföldu verði,
við það sem álverið greiðir.
Hugsum okkur að, einn þriðji (það sem álverið var tilbúið aðgreiða), fari í að greiða niður virkjunina,
einn þriðji fari í að greiða niður kapalinn til Evrópu,
og einn þriðji til eigenda.
Þá hefðum við 10 til 20 manns sem ræki virkjunina, og þeirra kaup yki veltu á Íslandi.
Allt annað kæmi fram sem tekjur í útlandinu, öll önnur vinna og þjónusta, og allur arður af virkjuninni,
sem hér er hugsaður einn þriðji af orkuverðinu.
Ef við seljum orkuna til álvers, þá fáum við veltuna af 500 til 1000 mönnum hér á Íslandi
En í hinu tilfellinu fáum við veltuna af 10 til 20 mönnum.
Það skiptir öllu að eiga orkulindirnar, og geta valið nýtingu sem er best fyrir Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endurhanna bankana
16.3.2012 | 23:30
Taka þarf saman hvað íslenska þjóðin hefur þurft að greiða, til að halda
þessu alþjóðlega bankakerfi gangandi á Íslandi.
Það hefur sýnt sig að gallarnir á þessu kerfi, eru meiri en það
sem við viljum sætta okkur við.
Þegar þetta pókerspil bankanna er komið í ógöngur, þá heimtar þeir að þjóðirnar,
verði að greiða úr öllu saman, til að þegnarnir geti keypt vörur og þjónustu áfram.
Síðan heimta þeir að eftir þessa lagfæringu skuldi þjóðirnar,
kostnaðinn við lagfæringuna til bankakerfisins.
Alþjóða bankakerfið þarf að endurskipuleggja greiðslukerfið,
á milli einstaklinganna og þjóðanna.
Ef bankarnir geta ekki tryggt sanngjarna dreifingu á vinnuafli, vörum og þjónustu,
á milli einstaklinga og þjóða, þá er ekki annað til ráða en leggja þá niður.
Helsta verkefni bankanna er að hver einstaklingur, geti afhent vinnu handa sinna og huga,
til að framleiða vöru og þjónustu.
Fyrir þessa vinnu og þjónustu þarf greiðslu, til að einstaklingarnir,
geti keypt þessar vörur og þjónustu.
Ef bankarnir geta ekki tengt saman einstaklingana, framleiðsluna,
neysluna og þjónustuna, er þá eitthvert gagn að þeim?
Peningar eru tenglar eða rör, sem tengja á milli einstaklingana og framleiðslunnar,
neyslunnar og þjónustunnar.
Ekki er minnsta skynsemi í að nýta ekki hvern hug og hönd.
Að læra, að vinna, að gera gagn, og fá greiðslu fyrir,
til að fá aðgang að framleiðslu og þjónustunni,
á að vera réttur og skylda,
þó með mýkt og skynsemi.
Egilsstaðir, 28.05.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Midbankinn, Ég skrifa tölu í gjaldeyri í tölvuna mína og lána upphæðir um alla veröld.
16.3.2012 | 23:27
http://www.herad.is/y04/1/2010-05-20-Midbankinn.htm
Ég skrifa tölu í gjaldeyri í tölvuna mína og lána upphæðir um alla veröld.
Þeir byggja borgir, vegi, brýr, hafnir, samgöngutæki, verksmiðjur, orkuver
og nýta auðlindir og svona er hægt að halda áfram.
Þetta er allt í skuld hjá mér, ég á þetta allt saman.
Fjármálakerfið byggir á að ég veiti þér lán, þú stritar og ég á allt saman. Gáfulegt?
Ef mig langar að auka völd mín, þá hætti ég að skrifa tölur og lána út.
Þá myndast ekki lengur lausafé.
Þá kemur kreppa, þá þurfa allir að selja, og þá lækkar verðið á eignunum.
Þá eiga fæstir veð fyrir skuldunum, og þá get ég tekið til dæmis orkulindirnar,
til mín upp í skuld.
Orkulindirnar gefa mikið vald.
Fólkið í löndunum þar sem ég er að leysa auðlindirnar til mín, sér ekki hvað ég er að gera.
Það hamast við að berja hvert annað fyrir að hafa orsakað kreppuna.
Eru íslendingar ekki að selja orkulindirnar núna?
Þú þarft leiðsögn, við þurfum leiðsögn, hvar skildi hún vera?
Egilsstaðir, 17.05.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi.
16.3.2012 | 23:25
http://www.herad.is/y04/1/2010-03-16-Ber%20er%20hver%20a%f0%20baki.htm
Ber er hver að baki,
nema sér bróður eigi.
You'll always be exposed
without a good friend for your blind side.
Natural resources, energetic hands, innovative ideas
Náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur og hugmyndir
*
Help Icelanders use their natural resources, innovative ideas and energetic hands
to develop a sustainable country which can contribute
to humanity and the world.
Help them to do this themselves.
*
Help Afghans use their natural resources, innovative ideas and energetic hands
to develop a sustainable country which can contribute
to humanity and the world.
Help them to do this themselves.
*
This is what President Barack Obama and Secretary of State Hillary Clinton
should proclaim to the world.
*
Hjálpið Íslendingum til að nýta náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur
og hugmyndir til sjálfsbjargar, svo að þeir verði
nýtir þegnar jarðarinnar.
*
Hjálpið Afgönum til að nýta náttúruauðæfi, vinnufúsar hendur
og hugmyndir til sjálfsbjargar, svo að þeir verði
nýtir þegnar jarðarinnar.
*
Þetta er það sem forsetinn, herra Obama,
og utanríkisráðherrann, frú Clinton,
eiga að þruma yfir heiminn.
Egilsstaðir, 07.03.2010
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ICESAVE leikurinn
16.3.2012 | 23:23
Núna á öðru ári eftir hrunið er farið að skrifa um að bankarnir í Evrópu,
séu búnir að borga icesave, eftir þeim reglum sem við átti.
Þeir höfðu lagt peninga inn á reikning
og ávaxtað það sem verðbréf hjá sér.
Þegar hrunið verður, er gengið á stjórnmálamenn um hvað eigi að gera.
Þeir kalla á ráðgjafana og spyrja, hvað á ég að segja, gera.
Allir spinna þeir eitthvað sem aðilum fannst gáfulegt á þeim tíma.
Reynt er að kenna einhverjum um, leiða athyglina frá sér,
og þá kom icesave upp í hendurnar á stjórnendum.
Fjölmiðlar voru leiddir fram og til baka í umræðum um icesave,
og stjórnendur gátu látið líta svo út að þeir væru að leysa málin.
Að sjálfsögðu komu þeir ekki nálægt neinu sem skipti máli og skildu ekkert.
Við getum leitt hugann að lögum um banka, trúlega eru 10 eða 20 lög um banka,
og óteljandi reglugerðir.
Þegar lög eru samin fær einhver stofnun fyrirmæli um að semja lögin.
Ekki dugar að lögin séu þessar fjórar setningar sem um var talað.
Hver getur sent háann reikning fyrir það.
Það er búin til skýrsla og skýrslu skýrsla, lögin verða 5000 síður.
Þá er þetta eitthvað merkilegt og hægt að senda háann reikning
fyrir svona umfangs mikið verkefni.
Þegar stjórnmálamennirnir og ráðgjafar þeirra eiga að svara hvað eigi að gera strax eftir hrunið,
hafa þeir ekki hugmynd um hvað lögin og reglugerðirnar eru margar, til dæmis 10, 20 ,30.
Þá getum við ímyndað okkur til dæmis 10 sinnum 5000 eða 50.000 síður.
Þetta gæti verið mun meira.
Bankarnir, þó þeir muni trúlega eftir verðbréfunum sem átti að nota til að greiða vegna fallins banka,
eru ekki að flýta sér að mynna á reglurnar, þeir eru í miklum vandræðum vegna kreppunnar
og gott að ríkin greiði þetta sjálf.
Líklegt er að oft séu vandamál leyst eftir einhverjum lögum, og þá þegi stjórnsýslan um aðra lausn,
önnur lög sem eru henni síður að skapi.
Velt vöngum, Egilsstaðir, 16.03.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 17.3.2012 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Árás Breta, ýmissa Evrópu þjóða og Evrópusambandsins á Ísland
16.3.2012 | 23:22
Árás Breta, ýmissa Evrópu þjóða og Evrópusambandsins á Ísland
http://www.herad.is/y04/1/2010-03-07-aras-breta.htm
Með hryðjuverkalögunum tóku Bretar traustataki eigur tveggja af þremur stærstu bönkum Íslands í London
og einnig eignir Seðlabanka Íslands og gull og gjaldeyrisvarasjóð Íslands sem geymt var í London.
Þetta hafði þær afleiðingar að bankakerfið á Íslandi hrundi.
Þá stóðu íslendingar frammi fyrir því að þeir gætu ekki greitt fyrir mat, lyf , eldsneyti og aðrar nauðsynjar.
Þá komu Bretar og Evrópusambandið með minnismiða, (letter of understanding)
og sögðu að ef íslendingar skrifuðu undir að þeir væru reiðubúnir
að greiða fyrir mistök Evrópska bankakerfisins,
þá fengu þeir aðgang að eigin gjaldeyri
til að kaupa mat, lyf og nauðsynjar.
Íslendingar gáfust auðvitað strax upp, báðu um miskunn, og skrifuðu undir
að þeir skulduðu Bresku og Evrópsku handrukkurunum
geysilegar upphæðir.
Þá fengu íslendingar aðgang að eigin gjaldeyrisvarasjóði,
til að greiða fyrir matvæli.
Ekkert af þessum fjárhæðum voru skuldir Íslands,
samkvæmt Evrópulögum.
Fjármálaveldið var skelfingu lostið,
ef ríkistjórnir greiddu ekki skuldir einkageirans,
yrði að skipuleggja allt upp á nýtt.
Nokkur lönd í Evrópu hafa lánað einkageiranum í ýmsum löndum miklar fjárhæðir,
og eru nú orðin hrædd um að fá þá fjármuni ekki til baka.
Þá er reynt að búa til fordæmi á Íslandi, hvernig slík dæmi skuli leyst,
það er að láta alþýðu landanna borga með sköttum,
mistök og spilamennsku fjármagnseigenda.
Nú fellum við gamla rotna fjármálakerfið og skipuleggjum allt upp á nýtt.
Egilsstaðir, 07.03.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ICESAVE SAMNINGAR
16.3.2012 | 23:21
ICESAVE SAMNINGAR
http://www.herad.is/y04/1/2010-02-22-icesavesamningar.htm
Þegar samið er við óvana er mjög gáfulegt að setja fram gagntilboð með tiltölulega ósanngjörnum vöxtum.
Þá fara hinir óvönu að slást við þessa ósanngjörnu vexti, og svo þegar þeir hafa náð þeim niður finnst þeim óvönu,
að þeir hafi unnið mikinn sigur.
Þá gleymist að það var engin skuld.
Jg
Íslenskir samningamenn þurfa að hafa mat frá virtum erlendum matsmönnum um,
hver kostnaður Íslands er af því að Bretland felldi íslensku bankanna,
einn, tvo eða ef til vill þrjá.
Einnig kostnaðinn af að frysta allt íslenska bankakerfið og gjaldeyris forðann.
Þegar Lehman Brothers voru settir á hausinn, lentu íslensku bankarnir í vandræði með endurfjármögnun.
Þá höfðu þessir vinir okkar nægan tíma til að hjálpa okkur með þessa endurfjármögnun,
og þá aðra endurskipulagningu, en tími gafst ekki til þess, þegar Bretar réðust á okkar banka.
Þessi hugmynd að taka innlán í gegn um internetið var mun kostnaðarminni en að vera með mörg kostnaðarsöm útibú.
Var þetta ef til vill ástæðan til að okkar bankakerfi var knésett.
Vegna þessarar árásar á Íslensku bankana, rýrnuðu eignir þeirra.
Með öðrum orðum, þá voru það Bretar, sem eyðilögðu veðin fyrir innlánunum.
Eiga Íslendingar að fara að greiða það sem Bretar eyðilögðu.
Auðvitað viljum við hjálpa Evrópu við að leysa þessi vandamál.
Nú er betra að athuga vel um hvað málið snýst, áður en við skrifum undir ábyrgðir á tapi sem Bretar ollu.
Ekki réðist Evrópa á Bandaríkin til að láta Bandaríkjamenn með skatttekjum,
greiða töpuð innlán Evrópubúa í Lehman Brothers???
22.02.2010 JG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bónus greiðslur til bankamanna.
16.3.2012 | 23:20
Bónus greiðslur til bankamanna.
http://www.herad.is/y04/1/2010-02-15-bankabonus.htm
Bankinn hefur 5000 miljarða til umsýslu.
Bankinn á 50 miljarða
Eigendur bankanna, segja við starfsfólkið að ef þeir hækki eignirnar,
upp í 500 miljarða, þá fái þeir 5 miljarða til að skipta á milli sín.
Ef einhver vill ekki fá margfalt kaup þá fer hann.
Starfsmaðurinn á aðeins að auka eignirnar.
Þegar eignir hafa lækkað í verði, og vextir náð öllum tekjum einstaklinga og fyrirtækja,
er byrjað að innheimta.
Það er að þeir einstaklingar og fyrirtæki sem skulda bankanum skulu greiða skuldina
að svo miklu leiti sem að þeir geta, þá er ekki meira af þeim að hafa.
Þá tekur bankinn eignirnar og selur til annarra.
Bónusinn er til að starfsfólkið missi ekki sjónar á því að ná öllum eignum af sem flestum,
þótt áhöld geti verið um hvernig skuldin er til komin.
Eignir sem áður tilheyrðu hinum ýmsu aðilum, enda sem eign bankaeigenda,
til að eign þeirra hækki úr 50 miljörðum í 500 miljarða.
Þá fá bankastarfsmennirnir sína 5 miljarða til að skipta sín í milli.
Þessir bónusar hafa í gegn um árin reynst vel, til að starfsmenn,
geri það sem þeim er ætlað.
Snjall starfsmaður getur fengið venjuleg laun allstaðar,
þú verður að borga honum vel,
til að hann vinni
FYRIR ÞIG.
Egilsstaðir, 15.02.2010 jg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bankastarfsmaður á bónus, sem er búinn að kaupa sér villu í Ölpunum,
16.3.2012 | 23:18
http://www.herad.is/y04/1/2010-02-15-Bankastarfsmadur-bonus.htm
Bankastarfsmaður á bónus, sem er búinn að kaupa sér villu í Ölpunum,
aðra á Krít og þá þriðju í Karabíska hafinu.
Fjölskyldan og vinirnir dásama hann, en rekstrarkostnaðurinn er mikill.
Þetta þýðir það að strax í janúar á nýju ári, er hann búinn að færa 500 milljarða
af reikningum viðskiptavina yfir til eigenda, til að fá greiddann bónusinn sinn.
Því eyðslusamari sem hann er, verður hann betri starfsmaður
fyrir bankaeigandann.
Bankaeigandinn vill alltaf greiða starfmanni sínum bónus,
það er sama hvort gróði eða tap er á rekstrinum.
Eigandinn hefur ekki áhuga á að fá tapið til sín.
Ef bankinn fer á hausinn er betra að auka bónusinn.
Enginn kröfuhafi fer fram á að lækka kaup slitastjórnar,
slitastjórnin getur haft áhrif á ,
hvað hver kröfuhafi
fær í sinn hlut.
Að sjálfsögðu borga viðskiptavinirnir allt saman.
Banka eigandi er ekki það sama og hlutabréfa eigandi í banka,
eigandinn hefur ráðandi hlut.
Velt vöngum, 15.02.2010
jg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðbankinn
16.3.2012 | 23:12
Miðbankinn
http://www.herad.is/y04/1/2010-01-20-Midbankinn.htm
Miðbankinn skrifar tölu í tölvuna og lánar það svo til fólksins í veröldinni.
Fólkið byggir borgir, verksmiðjur, umferðarmannvirki og samgöngutæki,
nefndu það, allt sem nöfnum tjáir að nefna.
Allt er þetta skráð í skuld aðila í miðbankanum,
þótt hann hafi aðeins skrifað töluna.
Síðan kemur kreppa, vegna heimsku okkar,
eða hún er búin til af ásettu ráði.
Þá falla allar eignir í verði, og nú dugar veðið í eignunum,
ekki lengur fyrir skuldinni.
Þá tekur bankinn allt sem hinir ýmsu fyrri eigendur eiga upp í skuldina,
af þeim er ekki meira að hafa.
Nú selur hann eignirnar öðrum í hendur, þeim sem honum líkar við,
og er allt áfram að láni frá honum.
Hér er reynt að einfalda málið, við höfum minni einingar,
af miðbönkum.
Egilsstaðir, 20.01.2010
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veraldarbankinn, pókerspil
16.3.2012 | 23:11
http://www.herad.is/y04/1/2009-11-29-veraldarbankareglurnar.htm
Það er rétt að Íslendingar tóku þátt í pókerspili í alþjóða bankakerfinu.
Þetta pókerspil virðist vera algengt í bankastarfssemi,
sem var sett upp af Veraldarbankanum,
USA, EB og öðrum stærri þjóðum.
Bankarnir settu upp bótasjóði, til að leysa málið ef banki lenti í vandræðum
og í þeim reglum var tekið fram að ríki og sveitarfélög mættu ekki styðja við bankana,
það myndi skekkja samkeppni.
Vegna þessarar bankakreppu nú, voru settar nýjar reglur, vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Ekki virðist mögulegt að smá ríki geti uppfyllt þessar reglur.
Trúlega var smá minnimáttarkennd þegar, íslensku bankarnir voru settir á hausinn,
út í þessa nýríku einkabankaeigendur sem höfðu borist mjög á.
Að sjálfsögðu þurftu Íslendingar að fá hjálp, til að laga íslensku bankanna .
Íslendingar þurfa að læra til að koma á traustum bankarekstri.
Íslendingar þurfa aðstoð þeirra sem hafa meiri skilning á hagstjórn.
Minn skilningur er, að framleiða vörur eða þjónustu sem einhver þarfnast.
Að selja bréf fram og til baka framleiðir ekkert, en getur safnað í sjóð.
Ef sjóðurinn er notaður til að framleiða vörur og þjónustu,
orku framleiðslu og samgöngumannvirki,
er líklegt að gagn verði að.
Það myndi þá virka eins og tryggingasjóðirnir í Bandaríkjunum,
sem hjálpuðu til að gera Bandaríkin að stórveldi.
Nýríkir einstaklingar eru oft að reyna að láta bera á sér,
þá vantar reynslu og fyrirhyggju, og margur verður af aurum api.
Ekki fæddust allir fullkomnir.
Við Íslendingar ætlum að reyna að vinna okkur út úr þessum vanda,
og erum að sjálfsögðu tilbúnir í samstarf, til að hjálpa okkur sjálfum,
og öðrum þjóðum að bæta ástandið.
Egilsstaðir, 29.11.2009 Jónas Gunnlaugsson
http://www.ismennt.is/not/jonasg/jg/jg06/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjárlög 3
16.3.2012 | 23:10
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjárlög 2
16.3.2012 | 23:08
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ályktun, fjárlögin eru 40% lægri 2009 en 2008 í dollurum og evrum.
16.3.2012 | 23:01
Mismunur á fjárlögum 2008 og 2009
http://www.herad.is/y04/1/2009-11-18-Mismunur-fjarlaga-2008-2009-05.htm
Ályktun, fjárlögin eru 40% lægri 2009 en 2008 í dollurum og evrum.
Er nauðsyn að lækka þau meira?
Að sjálfsögðu þarf að auka tekjurnar, framleiðsluna.
Hvern einasta mann í vinnu, ungan sem gamlan, strax.
Það skiptir máli við hvaða tímabil er miðað, dagsetningar, en þetta er hugsað sem sýnishorn.
Fjárlögin 2009 lækka í dollurum og evrum en standa í stað með neysluvísitölu
Fjárlögin 2009 eru 102% af fjárlögunum 2008 í verðtryggðum krónum
Fjárlögin 2009 eru 59% af fjárlögunum 2008 í dollurum
Fjárlögin 2009 eru 65% af fjárlögunum 2008 í evrum
***************************
Nota hér vísitölu og gengi ca. 17.11.2009
Fjárlögin 2009 eru 102% af fjárlögunum 2008 í verðtryggðum krónum
Fjárlögin 2009 eru 59% af fjárlögunum 2008 í dollurum
Fjárlögin 2009 eru 59% af fjárlögunum 2008 í evrum
***************************
Krónan hefur hjálpað okkur að lækka laun allra í dölum í 59%
Krónan hefur hjálpað okkur að lækka laun allra í evrum í 59%
Það hefur hjálpað okkur að auka útflutning og minnka innflutning.
Síðan höfum við reynt að bæta aðeins kjör hinna verst settu.
Einnig höfum við reynt að hjálpa öllum að halda heimilum sínum,
á næstu 3-5 árum geta þeir lagað hagi sína að aðstæðum.
Ekki er gott að hafa fjölskyldur í reyðuleysi.
Ekki er gott að hafa fasteignir í reyðuleysi.
Þeim fjölskyldum sem við höfum splundrað í þessu fárviðri,
viljum við styðja mjög vel, til að bæta sinn hag.
Við skulum ekki gleyma því.
Alltaf er betra að laga það sem fór í vitleysu.
Margt er hægt, líka að reysa fjölskyldur úr rústum.
Sumt er utan okkar skilnings.
Trúin getur flutt fjöll.
Þetta eru aðeins gömul sannindi,
sem við höfum oft heyrt,
en skellt skollaeyrum við.
Nú er lag að framleiða vörur sem einhver þarfnast,
og veita þjónustu sem er til gagns.
Þá fáum við tilgang með lífinu, atvinnu.
Það er skynsemi að nýta hvern hug og hönd,
annað er að sóun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)