Á þriðjudag birtu nýsjálenskir lækna og lyfjafræðingar opið bréf um nauðsyn þess að rannsaka dauðsföll í kjölfar Covid-19 bólusetninga, og fram kemur að ítarlegri útgáfa sé í undirbúningi fyrir lögregluna.
NZDSOS er hópur lækna, tannlækna, lyfjafræðinga og dýralækna sem hefur myndað bandalag við aðra hópa bæði í Nýja-Sjálandi og á alþjóðavettvangi:
Við biðlum aftur til lögreglunnar, undir forystu Andrew Coster, og þingmanna okkar, um að grípa inn í til að vernda fólkið, segir NZDSOS í bréfi sínu sem ber yfirskritina Dauðsföll eftir C-19 bólusetningar.
Það er átakanlega mikið af dauðsföllum og veikindum í kjölfar Covid-19 bólusetninganna, í samanburði við allar aðrar lyflækningar eða bólusetningar seinni tíma. Við tilkynnum um fjölda tilvika sem krefjast ítarlegar rannsóknar, eins og gert er með öll lyf sem skortir öryggisrannsóknir.
Eftirlitskerfi okkar hafa verið gerð óvirk, til að fela umfang skaðans. Að tilkynna um aukaverkanir er ekki skylda og það eitt og sér grefur undan öllum tilraunum til að sýna fram á að bóluefnið sé öruggt.
Börn og ungmenni eru að deyja og þjást af hjartakvillum (þótt margir heilbrigðir aldraðir hafi einnig látist), og áhættan sem unga fólkinu stafar af Covid-19 er sérlega lítil. Við teljum að verið sé að ljúga að okkur.
Health Forum New Zealand, sem eru samtök heilbrigðis- og vísindamenntaðra sjálfboðaliða, hafa haldið úti gagnagrunni yfir dauðsföll og skaða í kjölfar Covid-bólusetninga. Gagnagrunnurinn hefur aðallega verið byggður á tilkynningum frá ættingjum, vinum og heilbrigðisstarfsmönnum um fólk sem hefur látist í kjölfar Covid-sprautunnar.
Nánar má lesa um málið hér.
000
Egilsstaðir, 30.05.2022 Jónas Gunnlaugsson
Frumkvæði og trygg samningsstaða aðalatriðið hjá Pútín?
000
Hefði ekki verið betra að hætta kolefnisvitleysunni, bólefna vitleysunni og nú stríðsvitleysunni.
Þarna sýnist mér að það sé verið að eyðileggja framleiðslu kerfið.
Er ekki betra að fá þjóðirnar til að vinna saman?
Haldið þið að það geti verið satt að einhver klíka vilji fækka fólkinu?
Kolefnisskattur Sameinuðu Þjóðirnar. Flensa til að loka... - jonasg-egi.blog.is
https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2278542/
Ekkert kjarnorkustríð, ekkert flensu svindl, og ekkert lífslofts, kolefnis svindl.
Við tökum Úkraínu og Rússland inn í stríðandi hópinn, með Bandaríkjunum, ESB, og viðhengjum.
Ekkert múður, við viljum vel og nú breytum við heiminum til góðra átta, strax í dag.
Auðvitað skömmumst við okkar fyrir stríðsæsinguna, og öll svindlin, og lögum allt.
Við viljum ekki eyða heiminum í kjarnorkustríði.
Læt þetta nægja nú.
Egilsstaðir, 12.05.2022 Jónas Gunnlaugsson