Fjölmiðla veikin, RÚV veikin, OKKAR RÚV veikin,
Auðvitað getur inflúensa verið hættuleg, og ekki síst ef HEILSUGÆSLAN bannar notkun á meðulunum sem lækna veikina næstum 100%.
Er RÚV með tvær sjónvarpsstöðvar, og tvær útvarpsstöðvar?
RÚV er gott. En er RÚV notað til að avegleiða lýðinn?
OKKAR RÚF, er það fjölmiðill fólksins?
Getur þetta verið satt?
Af hverju ættu fölmiðlar að spila á fólkið?
Einhver skýri það fyrir okkur.
Væri þetta hægt nema allt stjórnkerfið léti það viðgangast?
Gæti þetta leitt til svokallaðra Nurenberg réttarhalda yfir þeim sem standa fyrir þessu?
Nurenberg réttarhöldin voru haldin yfir svokölluðum stríðs glæpamönnum.
Stríðsglæpamenn eru þeir oft kallaðir sem tapa orustunni.
Gæti gamla stjórnsýslan tapað orustunni?
Endilega skýrið þetta fyrir okkur.
000
Sett á blogg: Kristín Inga Þormar
KIÞ svarar.
Kristín Inga Þormar, 19.11.2021 kl. 23:04
000
Frá bloggi: Kristín Inga Þormar
Engin myndi fara í bólusetninguna ef...
fjölmiðlarnir segðu jafn mikið
frá áverkum og dauða
vegna bólusetninganna
og þeir gera vegna Cornavírusinns.
000
Eru fjölmiðlar ábyrgir? jg
000
"Á bilinu 6 til 40 einstaklingar greinast með jákvæða niðurstöðu úr hraðprófum á dag vegna kórónuveirusýkingar, að sögn Ingibjargar Salóme Steindórsdóttur, verkefnastjóra sýnatöku hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Aðsókn í hraðpróf hefur aukist síðustu daga í kjölfar hertra sóttvarnaaðgerða. Þá hafa fleiri einkennalausir greinst með jákvæða niðurstöðu úr hraðprófum samhliða hækkandi smittíðni í samfélaginu."
Það er búinn að vera gríðarlegur skimunarfaraldur undanfarið, sem þýðir eðlilega að fleiri "smit" finnast. Þannig er hægt að viðhalda hræðsluáróðrinum til að koma sem flestum í sprauturnar.
000
Egilsstaðir, 19.11.2021 Jónas Gunnlaugsson
Sæll Jónas,
Ég hætti að hlusta og horfa á íslenska fjölmiðla fyrir meira en ári síðan þegar mér var farið að ofbjóða alla þessa einhliða og skaðlegu umræðu sem þar fór fram. Nú fer ég inn á vefmiðlana og skoða bara það efni sem mér hugnast.
RÚV, sem segist vera okkar allra, er langt frá því að vera það, og virðist vera stjórnað af glóbalistunum sem eru núna að fækka mannkyninu með þessum eitursprautum, og það með fínum árangri.
En það ætti að vera öllum þeim ljóst sem nenna að leita sér upplýsinga, að það er verið að brjóta öll lög sem voru samin eftir síðari heimstyrjöldina, með þessum lyfjatilraunum á mannkyninu með þessum svokölluðu bóluefnum sem eru enn í tilraunafasa til 2023 sem verið er að framkvæma núna.
Allt ráðafólk og allir embættismenn sem stjórna þessum "farsóttarmálum" hér á landi eru búin að fá ótal gögn um skaðsemi þessara efna, jafnvel í ábyrgðarpóstum, en viðbrögðin hafa verið í skötulíki.
Meira að segja er líka búið að senda gögn til fjölda blaðamanna, en ekkert er fjallað um neitt nema "ný smit" og hversu margir liggi á spítala þann daginn.
Flestir fjölmiðlar hafa fengið fína ríkisstyrki undanfarið, en voru þeir einhverjum skilmálum um efnistök háðir?
Þegar stórt er spurt, fást yfirleitt engin svör.