Frá bloggi: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir - thordisb.blog.is
000
30.4.2021 | 19:09
Heilbrigðisþjónusta eða ólögmæt lyfjatilraun á börnum!
Bóluefni Pfizer/BionTech er skráð fyrir 16 ára og eldri hjá Lyfjastofnun Evrópu og bandaríska lyfjaefitrlitinu en frá þeim aldri eru börn sjálfstæð varðandi heilbrigðisþjónustu og þurfa ekki samþykki foreldra til að leita hennar né læknar eða aðrir heilbrigðisstarfsmenn til að veita hana. Þetta kemur fram í svari Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur smitsjúkdómalæknis fyrir fyrirspurn konu sem undrast að hún þurfi ekki að samþykkja boðun 16 ára sonar síns í bólusetningu við Covid-19."
Ekkert af þessum bóluefnum" er með markaðsleyfi, heldur eru þau með skilyrt leyfi (neyðarleyfi). Látið ekki blekkjast. Um er að ræða tilraun með líftæknilyf (mRNA) sem aldrei hefur verið leyft á mannfólki fyrr. Og enginn veit um langtímaáhrif á. Krakkarnir eru þannig að taka þátt í tilraun með nýtt lyf og þá gilda alls konar reglur um upplýst samþykki o.fl.
Að kalla þessa ólöglegu tilraun heilbrigðisþjónustu er út í hött og sýnir að stjórnvöld eru ekki með öllum mjalla. Foreldrar, verndið krakkana fyrir siðblindingjum sem augljóslega hafa náð tökum á íslenskum stjórnmálamönnum og sóttvarnaryfirvöldum, ekki bara á Íslandi heldur víðsvegar um heiminn. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta!!
Hópurinn Mín leið - mitt val hefur nú formlega stofnað félag. Ýmislegt stendur til í kærumálum o.fl.
Björn Þorri Viktorsson hæstaréttalögmaður með meiru (vann m.a. fyrsta málið fyrir Hæstarétti vegna ólöglegra gengistryggðra lána) er hér í viðtali við Arnþrúði á Útvarpi Sögu og fjallar um leyndina á bóluefnasamningum ríkisin o.fl.
Sláist í hópinn og stöndum saman gegn yfirgangi og frekju stjórnvalda og Kára Stefánssonar bóluefnasala og forstjóra ÍE/Amgen. Látið skilaboðin ganga.
Mæli líka með þessu viðtali við Guðmund Karl lækni sem segir að þessi bóluefni virki illa á ný afbrigði.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.