Svona er hægt að búa til peninga, bókhald, peningar eru aðeins bókhald. Þetta er , bara, svona grín, eins og þessi gamla færsla. Fluga á vegg.
14.10.2016 | 17:34
Að búa til peninga, til eignar fyrir sig.
000
RÚF segir:
Opnuðu tvær milljónir reikninga án samþykkis
15.09.2016
Rannsókn er hafin á stórbankanum Wells Fargo vegna umfangsmikilla svika starfsmanna bankans. Wall Street Journal greinir frá því að tvær milljónir reikninga hafi verið opnaðar í bankanum án vitundar viðskiptavina.
000
Hér kemur skáldskapur, sem er stundum sannur eins og sannleikurinn.
Þetta er trúlega gert til að hægt sé að leggja 100 miljónir inn á reikninginn.
Reglurnar eru eitthvað í þá áttina að ef innlögn er 1 króna þá mátt þú búa til aðrar 10 krónur til eignar fyrir þig.
Til að auka framleiðnina á peningum, fyrir sig, hættu bankarnir að treysta á að einstaklingar legðu inn peninga.
Þess vegna drifu aðilar sig í að sjá um innlögnina sjálfir.
Til að auka framleiðnina enn meir var búið til forrit sem gat lagt sjálfvirkt inn á reikningana og til dæmis fært sjálfvirkt á milli reikninga, slembi tölur, tilviljunarkenndar tölur.
Auðvelt er að stilla forritið á mismunandi tölur, og mismunandi tíma á milli innlagna og yfirfærslu yfir á annan reikning.
Svona er hægt að búa til peninga, bókhald, peningar eru aðeins bókhald.
Þetta er , bara, svona grín, eins og þessi gamla færsla
17.3.2012 | 20:
Við látum alltaf spila með okkur.
Egilsstaðir, 14.10.2016 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.