Gamla sagan.
Skýrð.*
Betri skýring.**
*Lána, það er ég færi bókhald fyrir þig.
Ég lána þér 100% í fasteign.
Þú greiðir af láninu vexti og afborganir í 5 ár.
Á þessum tíma, set ég á þig kreppufléttuna hans Tómasar Jefferssonar og næ verði hússins niður og hjálpa engum að kaupa, og þá getur þú ekki selt.
Þú missir vinnuna og fyrirtækið þitt missir viðskiptavini.
Þá geta einstaklingar og fyrirtæki ekki greitt af lánum sínum og ég get látið bjóða fasteignirnar upp í nauðungarsölu.
Ég get keypt fasteignirnar á 1% af upprunalega verðinu, og þá skuldar þú áfram 99%
Þú missir einnig það sem þú hefur greitt yfir árin, í niðurgreiðslu og vexti.
Þú verður að muna að ég lánaði þér ekki neitt, ég hélt aðeins bókhald fyrir þig.
Ég er ekki alltaf svona slæmur, get gert betur við vini mína.
000
Betri skýring.**
Íbúðin var keypt á heila milljón
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/05/02/budin_var_keypt_a_heila_milljon/
Ég hef aldrei tekið þátt í jafn miklum skrípaleik og þegar dómari og co mættu til okkar með hamarinn sinn. Þeir vildu alls ekki koma nema inn í forstofuna. Durturinn frá Íbúðalánasjóði var fljótur að bjóða í íbúðina þegar dómari spurði hvort það væru einhver tilboð. Hann bauð heilar 1.000.000 krónur. Hamrinum var lyft, honum barið í einhverja bók og slegið. Já íbúðin var keypt á heila MILLJÓN.
000
Kerfið hefur algjörlega brugðist
- Þetta er gamla sagan,
- ég lána þér pening, og hirði peninginn af þér.
- Þá hef ég það sem ég lánaði þér og þú skuldar það líka.
- Og það besta, ég lánaði þér ekki neitt.
- Það hringsnýst allt fyrir augunum á þér.
- og þú skilur ekki neitt.
- Hef ég ekki kennt þér, veist þú ekki hvert vandamálið er?
- Viltu öskra , berja í potta,
- væri ekki nær að biðja guð um að hjálpa sér,
- að hreinsa glýjuna úr augunum, og skítinn úr eyrunum.
- Þá er líklegt að þú getir gætt hagsmuna þinna.
000
Og það besta, ég lánaði þér ekki neitt.
Thomas Jefferson sagði okkur þetta allt saman.
000
Egilsstaðir, 08.06.2016 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.