Aðallinn
1.4.2014 | 20:06
Aðallinn
(Þetta er smá grin með sannleiksívafi.)
Ég er latte-lepjandi íslendingur.
Ég vil þægilega vinnu, vel borgaða.
Það er blessun að þeir eru til sem hafa vilja, kraft og getu,
til að veiða fiskinn, rækta landbúnaðarvörur, vinna byggingavinnu,
taka á móti ferðamönnum, framleiða málma, smíða brýr,
bora göng og leggja vegi.
oooo
Mér nægir ekki að allir borgi venjulega skatta.
oooo
Ég latte-lepjandi íslendingur, vil fá aukaskatt af öllum þessum
sem eru svona duglegir.
Ég ætla að kalla það auðlindaskatt.
Ég nenni ekki að vinna skítverkin.
oooo
Reyndar voru það hvótagreifarnir og fjárfestar, sem komu með þessa hugmynd.
Hluta af fiskinum veiddu þeir ekki sjálfir,
heldur leigðu kvótann sín á milli.
oooo
Þarna tóku þeir einskonar auðlindagjald,
leigu sem varð fyrirmyndin
að auðlindagjaldinu.
Oooo
Þetta gjald varð þá til að hægt var að veðsetja kvótann, mun meira.
Þó að aðeins brot af kvótanumm væri selt á milli aðila,
nægði það til að setja ákveðið verð á kvótann.
oooo
Nú reynir hver sem betur getur, að rukka fyrir eitthvað,
en vill helst ekki veita þjónustu í staðinn.
Oft fer þessi rukkun öll í kostnað við innheimtuna.
oooo
Þetta er ekki ólíkt fjárfestunum, sem hafa komist upp með að vera milliliðir,
og lána okkur peninga út úr sjóði 0.
oooo
Ég trúi því að við finnum góðar lausnir á þessu öllu.
oooo
Egilsstaðir, 01,04.2014 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.