Hvítir hrafnar
4.3.2014 | 11:22
Hvítir hrafnar
Það var einu sinni maður að nafni Sigbjörn, sem var á gangi í hádeginu.
Þá sá Sigbjörn hrafn sem hafði komist í hveitipoka, og var hrafninn allur hvítur.
oooo
Þegar Sigbjörn kom í kaupfélagið, þá sagði hann viðstöddum
að hann hefði séð hvítan hrafn.
Þarna voru allir að flýta sér, svo að hann gat ekki klárað söguna.
oooo
Það vildi svo til að Sigbjörn var í pólitík, og nú sögðu andstæðingar hans,
að Sigbirni væri ekki treystandi, hann hefði sagt að hrafnar væru hvítir,
en allir vissu að hrafnar væru svartir.
ooo
Þegar Sigbjörn fór í viðtöl hjá fjölmiðlum sem voru undir áhrifum áhrifafesta,
þá var Sigbjörn stanslaust minntur á að, þú sagðir að hrafninn væri hvítur,
þannig að þér er ekki treystandi.
oooo
Þá reyndi Sigbjörn að segja alla söguna, en spyrjendur voru trúir áhrifafestum,
og gripu stanslaust fram í fyrir honum til að hlustandinn skildi ekki sannleikann í málinu.
oooo
Áhrifafestar sem fjármagna fjölmiðla, til að geta stýrt skoðunum fólksins,
stýrt því sem fólkið telur rétt og satt, eru aðeins að gera það
sem þeir hafa alltaf gert.
oooo
Það að Ríkisútvarpið, ÚTVARP ALLRA LANDSMANNA
skuli taka þátt í þessum leik er óþolandi.
oooo
Þurfum við að vita hverjir voru stjórnendur þessarar ófrægingar herferðar
hjá RÚV, það er Ríkiútvarpinu, til að svona geti ekki endurtekið sig.
Við látum þá stjórna með ástúð og umhyggju að leiðarljósi.
oooo
Þessir sömu aðilar segjast ekki vilja að Ríkisútvarpið sé pólitískt,
en vilja svo sjálfir ráðskast með skoðanir fólksins.
oooo
Trúlega er betra að Útvarpsráð sé pólitískt eins og áður var.
oooo
Núna virðist myndast klíka í RÚV,
sem hikar ekki við að reyna að beita Ríkisútvarpinu
til að koma sínum áhugamálum á framfæri.
oooo
Stýringin ætti helst að vera sú að Ríkisstjórn á hverjum tíma,
hefði málgagn þar sem hún gæti komið stefnu sinni
á framfæri við landsmenn.
oooo
Einnig væri gerð grein fyrir öðrum sjónarmiðum,
til dæmis sjónarmiðum stjórnarandstöðu.
oooo
Ég viðurkenni að þetta getur verið erfitt.
oooo
Ef til vill ættu fréttamenn og pólitíkusar að skrá allar boðsferðir
á vegum hagsmunaaðila.
oooo
Egilsstaðir, 04.03.2014 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.