Kostir og gallar
10.1.2013 | 00:18
Kostir og gallar
http://www.herad.is/y04/1/2013-01-10-kostir.htm
Við skulum ekki gleyma því að kostir The fractional Reserve System,
fjármálakerfis John Law´s voru ekki síst að þá gátu bankarnir fjármagnað
allar þær hugmyndir sem voru líklegar til að standa undir sér.
Ef til vill þorðu 20 bankar ekki að fjármagna dæmið,
en sá 21 tók það að sér.
Ef að hugmyndin reyndist illa, og allt fór á hausinn,
þá afskrifaði bankinn töluna
og vandamálið var úr sögunni.
Ef fyrirtækið gekk vel þá eignaðist bankinn verðmæti.
og þjóðin varð ríkari, af vinnu, vörum og fasteignum.
Þetta kerfi, The Fractional Reserve System,
fjármagnaði*** iðnbyltinguna og allt sem gert hefur verið,
til vorra daga.
Þetta á ég að segja öðruvísi.***
The Fractional Reserve System var og er bókhaldskrefi
fyrir peningaprentunina, og hefur að mörgu leyti reynst vel.
Allir með góða hugmynd höfðu möguleika á að fá,
hugmyndina framkvæmda, og þannig urðu góðu hugmyndirnar
að auðæfum þjóðanna.
En það eru gallar á The Fractional Reserve System.
Það verða til í bókhaldinu 100% af fjármagninu,
2% eru notuð fyrir framleiðslu á vörum, þjónustu og þjóðarauði,
en 98% eru umsýsla með pappír og gjaldeyrir sem framleiðir ekkert.
Það verður að taka það með í reikninginn, að þegar einn eða fáir,
sæmilega skynsamir aðilar ná að safna miklum peningum,
þá geta þeir framkvæmt ýmislegt gott sem heildin skilur ekki,
en verður svo til góðs,
Að sjálfsögðu geta hlutirnir einnig farið á verri veg,
og þá skulum við vona að við höldum því góða en stöðvum það slæma.
Það virðist vera nauðsynlegt að við reynum að skilja fjármálabókhaldið.
http://www.worldtrans.org/whole/monetarysystem.html
Á meðan Ríkið átti bankana, þá var að jafnaði
stöðugur uppgangur á Íslandi.
Ef það kom upp flækja í fjármálakerfinu, bókhaldskerfinu,
þá var hægt að henda tölunum að hluta.
Lesa Bóndabær
Verð að hætta núna.
***skýring viðbót eftir 13 klst.
Þetta kerfi, The Fractional Reserve System, fjármagnaði*** ekki neitt,
en peningaleyfið, lánið, hugmyndatalan, peningaseðillinn,
leyfið til að nota seðlana sem voru ekkert,
gerði framkvæmda aðila kleift að leiða saman,
verkmanninn, vörusalann og verktakan.
Verkmaðurinn, vörusalinn, verktakinn og framkvæmdaaðili,
komu með allt verðmætið, vinnuna, vörurnar
og framkvæmda aðili hélt utan um verkefnið.
Þá gátu þeir skipulagt framkvæmdina, og gátu notað seðlana þannig,
að hver og einn fékk það sem hann þurfti til að klára verkið
og fá sitt lífsviðurværi um leið.
Egilsstaðir, 10.01.2013 jg
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.