Farsímasendir tekinn niður við skóla í Kaliforníu – átta börn með krabbamein - Móðir drengs sem greindist með heilakrabbamein árið 2016, sagði við sjónvarpsstöðina CBS: „Þetta [sendirinn] er flokkað sem mögulega krabbameinsvaldandi.“

Frettin.is

Farsímasendir tekinn niður við skóla í Kaliforníu – átta börn með krabbamein

thordis@frettin.is15. maí 2022 8:07Erlent1 Comment 

https://frettin.is/2022/05/15/farsimasendir-tekinn-nidur-vid-skola-i-kaliforniu-fjoldi-barna-med-krabbamein/

Átta börn hafa greinst með krabbamein í einum grunnskóla í 14 þúsund manna bæ í Kaliforníu, nokkuð sem hefur valdið áhyggjum foreldra á því að farsímasendir við skólann gæti verið ástæðan.

Þeir nemendur sem orðið hafa fyrir áhrifum í grunnskólanum í bænum Ripon eru allir undir 10 ára aldri, hver og einn með mismunandi tegund krabbameins; í heila, nýrum, lifur og eitlum.

Það eru fáar vísbendingar um að farsímasendar séu raunveruleg hætta fyrir mannfólk, en jafnvel efasemdarmenn segja að fjöldi tilfella meðal barna í svo litlum bæ sé óvenjulegur.

Símafyrirtækið Sprint, sem á sendinn, hefur tekið hann niður þrátt fyrir að hafa haldið því fram að bylgjurnar séu 100 falt undir leyfilegum mörkum.

En mæður barnanna segja að rannsóknaraðili sem þær sjálfar fengu til að mæla styrkleikann hafi fundið mun hærra magn, en þó enn undir mörkum.

Móðir drengs sem greindist með heilakrabbamein árið 2016, sagði við sjónvarpsstöðina CBS: „Þetta [sendirinn] er flokkað sem mögulega krabbameinsvaldandi.“

„Það segir okkur að það eru einhverjar sannanir til staðar.“

„Við vitum að það gætu verið aðrir þættir, önnur umhverfisáhrif... en kjarni málsins er að sendirinn á ekki að vera þarna ef það er eitthvað sem bendir til þess að hætta gæti stafað af honum.“

Foreldrar annars nemanda við skólann sem greindist með krabbamein í nýrum árið 2016, hafa barist fyrir því í tvö ár að sendirinn yrði tekinn niður.

Eftir að hafa ráðið lögfræðinga fyrr á þessu ári var ákveðið að sendirinn yrði loks tekinn niður í mars sl.

Lögmenn þeirra halda því fram að mengun sé líklegasta orsök óvenju hárrar tíðni krabbameins meðal barna í þessum 14 þúsund manna bæ.

Samkvæmt bandarísku krabbameinssamtökunum fá um 411 Kaliforníubúar af hverjum 100.000 krabbamein á hverju ári sem samsvarar 0,0041 hlutfalli, og nær til fullorðinna einstaklinga, sem eru líklegri en börn til að fá krabbamein.

Faðir eins nemandans er ekki sannfærður um að sendirinn sé skaðlaus en telur einnig að annars konar mengun gæti verið orsökin, og gaf til kynna að Nestle verksmiðja gæti hafa lekið eiturefnum í jarðveginn í mörg ár.

„Eftir að hafa skoðað þúsundir blaðsíðna af skjölum get ég sagt að þetta [Nestle] veldur mér ekki áhyggjum,“ sagði lögmaðurinn Marcelis Morris við sjónvarpsstöðina Fox 40.

„Við þurfum að grafast fyrir um og komast að því hvað veldur öllu þessu krabbameini í bænum Ripon. Við viljum bjarga mannslífum. Við viljum koma í veg fyrir að þetta gerist.“

Daily Mail.


Ef 90% af íbúum Maríupol tala Rússnesku er þá líklegt að Rússar neituðu þeim að fara úr borginni og nú að skjóta á landa sína og sprengja húsin? Er pestin og stríðið til að eyðileggja. Útlit að Republikanar vinni báðar deildir kosninganna.

Language structure in 2001[57]

LanguageNumber (person)Percentage (%)RussianUkrainianGreek (Mariupol Greek and Urum)ArmenianBelarusianBulgarianotherAll population
457,93189.64
50,6569.92
1,0460.20
3720.07
2660.05
550.01
5090.10
510,835100

Ef 90% af íbúum Maríupol tala Rússnesku er þá líklegt að Rússar  neituðu þeim að fara úr borginni og væru nú að skjóta á landa sína og sprengja húsin? Er pestin og stríðið til að eyðileggja? Vinna Republikanar báðar deildir næstu kosninga segja einhverjar skoðanna kannanir. 

000

Við berum saman Florida, sem Bandaríkin fengu, tóku? árið 1821 og að Rússar hafa haft yfirráð, yfir flotastöð, í Sevastopol, síðan 1783.

Jónas Gunnlaugsson | 16. febrúar 2022

Hvað eiga Rússar að gera? Mér skilst að meirihluti tali Rússnesku á Krím og í Austur-Héruðunum. Núna er einhvers konar stríð í austur héruðunum og Rússar tala um að verið sé að reka í burtu eða útrýma Rússnesk taland fólki. Eiga Rússar að styðja 

Moskva og Kænugarður gætu brátt komist að samkomulagi – Allir á fulla ferð að byggja upp Evrópu, Úkraína, Rússland og Evrópu löndin, byggi allt upp. Bankastríðunum ljúki og lærum af nýlendunum í Vestur-Heimi 1750 og hver noti sinn scrip. Skáldið sagði:

Jónas Gunnlaugsson | 13. mars 2022

slóð - Það var undir því peningakerfi sem amerískar nýlendur blómstruðu svo ríkulega að Edmund Burke gat skrifað þannig um þær: - Ekkert í sögu heimsins jafnast á við framfarir þeirra og áhrifin þar af leiddu til hamingju fólksins.“ 000 Greinin á

Alls ekki stríð. Að detta í hug að taka af Rússum svæði sem þeir hafa haft 239 ár að minnsta kosti? Við hugsum framtíðina. Við bjóðum Rússum upp á samstarf og byggjum framtíðina á samvinnu, ástúð og umhyggju. Stefnan gagnvart Rússlandi er röng.

Jónas Gunnlaugsson | 24. febrúar 2022

Við óskum að Úkraína komist sem allra best út úr þessum málum öllum, og geti blómstrað áfram í samvinnu við Rússland, Bandaríkin, ESB og löndin í heiminum. Hugsum, hvað hefði gerst ef eitthvert ríki í Bandaríkjunum hefði orði fyrir byltingu og sagt sig

 

mbl.is Freista þess að flytja óbreytta borgara frá Maríupol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. maí 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband