Eldur og brennisteinn
12.6.2015 | 14:26
Ég hitti Kolbein kaptein í morgun.
Hann sagði eldur og brennisteinn og urraði gríðarlega.
Þú ætlar ekki að láta þér segjast og láta af heimskunni.
Hvaða læti eru þetta maður, sagði ég.
Það stendur í Dagblaðinu, þann 11.06.2015 að Kröfuhafar gefi eftir mörg hundruð miljarða,
og að Stöðugleikaskattur myndi skila 850 miljörðum.
Einnig er sagt að skuldir ríkissjóðs gætu lækkað um þriðjung.
Og svo kom þetta venjulega hjá Kolbeini kapteini, eldur og brennisteinn, urr.
Þetta eru ekki skuldir ríkisjóðs, þetta eru skuldir einkabankana sem voru settar yfir á ríkið.
Nú þykjast einkabankarnir ætla að greiða í skatt upp á 850 miljarða, eldur og brennisteinn.
Banki getur aldrei greitt skatt, fjármálastofnunin skrifar bara bókhaldstölu, sem er ávísun á þína vinnu og þinn gjaldeyrir, eldur og brennisteinn.
Þú ert þöngulhaus, eldur og brennisteinn.
Ég Kolbeinn kafteinn sjálfur, leit í DV frá því ´12.-15.06.2015, og þar stendur.
000
Framlag hrægammasjóða til ríkissjóðs, allt að 700 miljarðar, eldur og brennisteinn.
Hvernig getur hrægammasjóður sem hringlaði í peningabókhaldi, og hugarskilningi þínum, borgað eitthvað, með bókhaldi, sem er ávísum á þinn gjaldeyrir og þína vinnu, eldur og brennisteinn.
000
Ekki nóg með það.
Þú seldir einnig Hrægammasjóðunum bankana og þá gátu Hrægammasjóðirnir búið til bókhald sem var ávísun á þína vinnu og þinn gjaldeyrir, þú kallar það peninga, eldur og brennisteinn.
000
Þarna skrifuðu bankarnir, hrægammasjóðirnir hundruð eða þúsundir miljarða bókhald fyrir þig, til að leggja veg, byggja höfn, byggja fjölda hótela, og öll voru þessi verkefni harla góð, eldur og brennisteinn.
000
Allt þetta peningabókhald varð þá eign bankana, sem þú seldir, gafst hrægammasjóðunum.
000
Þú getur aldrei selt banka, hann skrifar töluna aðeins í bókhaldið, og krónutalan er aðeins ávísun á þína vinnu og þínar eignir.
Og síðan heldur bankinn áfram að prenta bókhald, og vill að sjálfsögðu fá allan gjaldeyri sem þú getur skapað með sjávarútveginum, ferðaþjónustunni, stóriðjunni og líka allan gjaldeyri sem þú tekur að láni.
000
Þú ættir að þekkja þetta.
Það var allt hirt af þér 2008.
000
Skuldir einkabankana voru settar á ríkið.
Eignir heimilanna og fyrirtækjanna voru hirtar með Kreppufléttunni.
000
Hvað þarf ég að tyggja þetta lengi í þig, eldur og brennisteinn
000
Æ, heyrðu mig Kolbeinn kapteinn.
Ég skal reyna að læra þetta, og ég skal líka fara með faðirvorið mitt og biðja um meiri skilning.
Urr, urr, eldur og brennisteinn.
Laga seinna.
Egilsstaðir, 12.06.2015 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 13.6.2015 kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Breytum fjármálakerfinu.
12.6.2015 | 07:52
Breytum fjármálakerfinu.
Björn Jónsson skrifar.
Þarna virðast einkafjármálafyrirtæki hafa neytt almenning í hinum ýmsu löndum til að taka á sig skuldir einkafjármálafyrirtækjanna.
Skuldirnar voru til komnar vegna svindl verðbréfa sem einkafjármálafyrirtækin höfðu selt fram og til baka.
Það voru engin verðmæti á bakvið bréfin, þau voru aðeins leikflétta, það er spilapeningar.
000
Til viðbótar við verðbréfasvindlið, beitti fjármálakerfið svika kreppufléttunni sem Tómas Jeffersson, skýrði fyrir okkur, til að ná eignum heimila og fyrirtækja.
Þetta hefur orðið til þess að margir hafa lesið sér til um fjármálakerfið, og skilja það betur en áður.
000
Nú sjáum við að vel er hægt að breyta fjármálakerfinu þannig að það vinni fyrir fólkið, en ekki fyrir einhver brask fyrirtæki.
000
Þá bregður svo við að einkafjármálafyrirtækin segjast geta skrifað tölur í bankabókhaldið,* sem við getum notað til að greiða skuldir sem einkafjármálafyrirtækin svindluðu á ríkiskassa þjóðanna, það er fólkið.
000
Þetta er að sjálfsögðu gert til að reyna að koma í veg fyrir,
að við breytum núverandi svindl kerfi.
000
Auðvitað breytum við fjármálabókhaldinu.
Frost Sigurjónsson virðist vera eini þingmaðurinn sem hefur tekið upp hanskann fyrir fólkið í landinu.
000
Nú skulum við öll læra um fjármálasvindlið, og breyta svo fjármálakerfinu.
Hugsa fyrst vel og vandlega og breyta svo.
000
Peningakerfið, peningabókhaldið er mjög einfalt.
Ég flæki það af ásettu ráði til að enginn skilji það.
000
Ungmennafélagsvitundin, breytti ýmsu á Íslandi.
Við eigum að nota sama anda til að endurskapa fjármálakerfið á Íslandi.
Egilsstaðir, 12.06.2015 Jónas Gunnlaugsson
*Við vitum að peningur er aðeins bókhald.
Bloggar | Breytt 14.6.2015 kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)