C
Alþjóða heilbrigðisstofnunin(WHO) ráðleggur að Ivermectin skuli ekki notað nema í klínískum rannsóknum. Stofnun sem er í dag algjörlega stjórnað af hagsmunahópum. Sem betur fer eru þó nokkur lönd sem láta svona ráðleggingar sem vind um eyrun þjóta. Í Meira
000
17.6.2021 | 05:48
Hvað með Ivermectin?
Alþjóða heilbrigðisstofnunin(WHO) ráðleggur að Ivermectin skuli ekki notað nema í klínískum rannsóknum. Stofnun sem er í dag algjörlega stjórnað af hagsmunahópum.
Sem betur fer eru þó nokkur lönd sem láta svona ráðleggingar sem vind um eyrun þjóta. Í fyrsta lagi vegna þess að Ivermectin er ekki nýtt lyf og hefur verið notað í fjölda ára um allan heim svo reynslan á notkuninni er þegar til staðar. Í öðru lagi hafa nú þegar verið gerðar fjölmargar rannsóknir á notkun Ivermectin gegn Covid-19. Og í þriðja lagi það virkar framar björtustu vonum og er ódýrt. Ráðlegg öllum að lesa sér til um þetta lyf sem hefur verið að gera ótrúlega hluti í Indlandi, Mesíkó og víðar. Mexíkó borg tók sig til og setti upp sérstaka lyfjapakka fyrir alla þá sem greindust jákvæðir. Tveggja daga skammmtur 4 pillur af Ivermectin og faraldurinn stöðvaðist og hefur verið á niðurleið síðan sem er ótrúlegt. Margir læknar segja að lyfjagjöf í tvö daga er helst til of lítið og að 5 dagar væri betra en hvað sem því líður þá er það alveg ljóst að Ivermectin virkar mjög vel gegn covid.
Afhverju hefur þá WHO ekki gefið grænt ljós á notkun Ivermectin gegn Covid-19?
Lyf sem hefur eftirfarandi eiginleika ætti ekki að takmarka í heimsfaraldri eða hvað?.
1. Er mjög ódýrt.
2. Er mjög öruggt.
3. Virkar mjög vel.
4. Auðvelt í inntöku (pillur)
5. Hægt að gefa strax við jákvæða greiningu.
Hér er vandamálið sem Alþjóða heilbrigðisstofnunin er að glíma við. Vitandi það að að hún er ekki lengur sjálfstæð í ákvarðanatökum með stærstu lyfjafyrirtækin og hagsmunahópa á þeirra vegum í öllum starfshópum stofnunarinnar þá er það ekki nema von að ráðleggingarnar séu á skjön við heilbrigðisstefnu en samhljóða óskum hagsmunaaðila, lyfjarisanna, sem munu missa af gríðarlegum fjármunum ef svo mikið sem ein lítil ráðlegging breytir um áherslu eða orðalag.
Ef WHO ráðleggur notkun á Ivermectin gegn Covid-19 við jákvæða greiningu gerist tvennt.
1. Faraldurinn hverfur. Engar grímur, engar lokanir, engir bólupassar.
2. Lyfjarisarnir missa neyðarleyfið fyrir genatilraunirnar og covid bólusetningar verða óþarfar.
Nýtt lyf fyrir sjúklinga með Covid-19 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það má ekki tala um meðferðir því þá falla neyðarleyfi bóluefnanna úr gildi.
Nema auðvitað að þú sért í Indlandi:
https://journals.plos.org/plosone/article?id=10.1371/journal.pone.0247163
Eða Mexíkó:
https://www.sciencedirect.com/science/article/pii/S1201971221001004
Geir Ágústsson, 17.6.2021 kl. 08:38
Alþjóða heilbrigðisstofnunin er glæpastofnun, stjórnað af manni sem hefur ekki læknismenntun og situr undir ákærum um þjóðarmorð í eigin landi.
Hún er að stórum hluta til fjármögnuð af Bill Gates sem hefur heldur ekki læknismenntun, hefur sagt sína bestu fjárfestingu vera í bóluefnum, og að með þeim sé hægt að fækka mannkyninu um 10-15%, þetta er hægt að finna á netinu.
Sóttvarnarlæknir okkar hefur margsagt að hann fylgi tilmælum þessarar stofnunar, svo hvað segir það okkur?
Kristín Inga Þormar, 17.6.2021 kl. 11:22