Að tala um þessa undirstöðulofttegund í gufuhvolfinu, byggingarefni sjálfs lífsins sem mengun, eins og gróðurhúsatrúarmenn gera í ofstæki sínu og fáfræði. Af 400 grömmum í tonni andrúmslofts eru kannski 10 grömm manngerð, hugsanlega miklu minna.

Þá er ótalið allt það, sem hefur streymt frá því í árdaga af þessari ósýnilegu, lyktarlausu lofttegund upp úr jörðinni úr öllßum lág- og háhitasvæðum jarðar ofansjávar og neðan auk þess sem eldfjöllin leggja öðru hvoru til. Jafnvel í ýmsum jarðfræðilega „köldum" löndum eru víða ölkeldur og loftop, sem koldíoxíð streymir upp um allan sólarhringinn, alla daga.

Auk þess ná eldvirkir neðansjávarhryggir um 50 þús. kílómetra í mörgum hlykkjum umhveris jörðina og á þeim eru hunduð þúsunda eða milljónir loftventla og eldgíga sem koldíoxíð streymir úr. Þetta er óskaplegt magn, sem nánast aldrei er talað um.

000

Við ýmsir þurfum að greina í sundur hugmyndirnar, til að við grípum þær, þessvegna skýri ég greinina svona. Ég vona að þetta sé í lagi.

Athugasemd.

Þessi grein þín ætti að vera skyldulesning í öllum skólum landsins. Nú grínast ég, en við busarnir verðum hugsi, um hvað þetta er frábært hjá þér.

En hvað á að gera þegar víxlararnir, þá hugsa ég, púkinn í okkur, vill búa til peningafléttu, og hefur nær alla fjölmiðla landana.

Mér verður hugsað til barnakrossferðana, sem einhverjir, spurning, óprúttnir, égar, komu af stað, þegar ég heyri til unglingana sem nú eru settir í fjölmiðla, til að predika yfir stjórnmálamönnum um hlýnun, eða nú um veðrabreytingu.

Þessi bakstjórn hefur sett upp svona peningafléttur til að ná vinnu og framleiðslu fólksins til sín.

slóð

Víxlararnir útbúa starfsumhverfi fyrir sig, mengunar greiðslur orkupakka, skrifa fjármálabókhald sem þeir síðan segjast lána fólkinu. Allt er þetta til að sópa verðmætum frá fólkinu til Víxlarana, spila á fólkið. Sköpum nýja tíma og nýja siði, lögum allt. 28.2.2019 | 14:41

Egilsstaðir, 06.03.2019  Jónas Gunnlaugsson

000

Frá bloggi:   Vilhjálmur Eyþórsson

Miðvikudagur, 6. mars 2019

Enn um þá lofttegund, sem er hin raunverulega undirstaða lífsins

 Of fáir virðast vita, að það er koldíoxíð, ekki súrefni, sem er hin raunverulega undirstaða alls lífs á jörðinni.

 Þegar jörðin var ung, fyrir um fjórum milljörðum ára, áður en lífs varð vart, virðist það hafa verið yfir 20% gufuhvolfsins. Það hefur streymt úr iðrum jarðar æ síðan og ef lífsins nyti ekki við væri það nú örugglega meginuppistaða gufuhvolfsins eins og á systurplánetu jarðar, Venusi. En á Venusi er ekki fljótandi vatn, svo líf getur ekki þrifist. 

Hér hefur koldíoxíðið, ásamt vatni og með því að tengjast ýmsum frumefnum myndað þær gífurlega flóknu keðjur kolvetnissambanda sem eru lífið sjálft.

Það er fráleitt og beinlínis fáránlegt að tala um þessa undirstöðulofttegund í gufuhvolfinu frá upphafi og byggingarefni sjálfs lífsins sem „mengun”, eins og gróðurhúsatrúarmenn gera í ofstæki sínu og fáfræði.

Réttara væri að tala um óbundið súrefni og hið þrígilda afbrigði þess, ósón, sem „mengun”, því óbundið súrefni er ekki upprunalegt í gufuhvolfinu og ekki nauðsynlegt lífi, heldur úrgangsefni frá jurtalífinu sem dýrin, sumar bakteríur, allir sveppir (og maðurinn) nýta sér. Þessi „saur jurtanna”,  þ.e. hinn helmingur koldíoxíðsameindarinnar, myndar nú 20,9% gufuhvolfsins en koldíoxíðið, sjálf undirstaða lífsins, var komið nokkurn veginn í jafnvægi, þ.e. niður undir ca. eitt kíló í hverju tonni gufuhvolfsins á fyrstu ármilljörðum lífsins, löngu fyrir daga risaeðlanna. Það er nú um 0.038% eða ca 400 grömm í tonni andrúmslofts.

Það er rúmlega fimmtíu sinnum meira af því  í  höfunum, (sem eru basísk og geta því ekki orðið súr).

 Af þessum 400 grömmum í tonni andrúmslofts eru kannski 10 grömm manngerð, en vel hugsanlega miklu minna.

Raunar mælist koldíoxíð mjög mismikið eftir landsvæðum og árstíðum og tímum sólarhrings, eykst á nóttinni, minnkar á daginn.

Koldíoxíð kemur að sjálfsögðu að hluta frá andardrætti manna, dýra, fugla, fiska (neðansjáar). skordýra (gífulegt magn, sem alltaf gleymist) og ekki síst kemur það frá sveppagróðri og aeróbískum (ildiskærum) bakteríum. 

Allt sem deyr ofansjávar og neðan breytist að miklu leyti í koldíoxíð fyrir tilverknað þessarra örvera. Menn ættu að hafa í huga að örverur eru meira en helmingur lífmassa jarðar og þetta magn er gífurlegt (sbr. t.d. framræsla mýra).

Þá er ótalið allt það, sem hefur streymt frá því í árdaga af þessari ósýnilegu, lyktarlausu lofttegund upp úr jörðinni úr öllßum lág- og háhitasvæðum jarðar ofansjávar og neðan auk þess sem eldfjöllin leggja öðru hvoru til. Jafnvel í ýmsum jarðfræðilega „köldum" löndum eru víða ölkeldur og loftop, sem koldíoxíð streymir upp um allan sólarhringinn, alla daga.

Auk þess ná eldvirkir neðansjávarhryggir um 50 þús. kílómetra í mörgum hlykkjum umhveris jörðina og á þeim eru hunduð þúsunda eða milljónir loftventla og eldgíga sem koldíoxíð streymir úr. Þetta er óskaplegt magn, sem nánast aldrei er talað um.

Mætti halda að margir sem titla sig „vísindamenn“ viti ekki af þessu.

Allar jurtir, ofansjávar og neðan eru að miklu leyti úr kolefni, oft 30-50% og bókstaflega allt þetta kolefni kemur úr koldíoxíði. Menn og dýr eru líka að miklu leyti úr kolefni, sem upphaflega hefur komið úr koldíoxíði gufuhvolfsins gegnum jurtalífið og fæðuna.

Jurtirnar þurfa gífurlegt magn koldíoxíðs á hverjum degi til að vaxa og dafna, mynda nýjar frumur og vefi og nýtt súrefni. Þessi hringrás tekur aðeins fáein ár.

Raunar byggir C 14 aldursgreining fornleifafræðinga einmitt á þeirri staðreynd, að þetta er hringrás sem sífellt endurnýjast, koldíoxíð eyðist og nýtt tekur við á innan við tíu ára fresti.  Þannig hefur þetta verið í milljarða ára, síðan jörðin var ung.

Í samanburði við þessa risavöxnu hringrás sem nær til allra jurta og þörunga í öllum löndum og höfum verður brölt mannanna heldur lítilfjörlegt og beinlínis hjákátlegt.

 Þegar „umhverfisverndrsinninn“ hefur upp raust sína í heilagri vandætingu og bölvar þessu voðalega „mengunarefni“, veit hann örugglega ekki, að um 19% líkama hans er kolefni, sem allt er upprunnið úr koldíoxíi (gegnum jurtaífið og fæðuna): Þegar hann hrópar spýr hann reyndar sjáfur nýju koldíoxíði út í gufuhvolfið og þegar hann andar aftur að sér dregur hann súrefni ofan í lungun, en bókstaflega allt súrefnið er fyrrverandi koldíoxíð.

Hugsið um það! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband