Ég heyrði í konu á miðjum aldri segja að það væri hörmung að horfa upp á það hvernig væri farið með ungu fjölskyldurnar. Foreldrarnir þræluðu sér út við að reyna að standa sig, til að koma sér upp íbúð og sjá fyrir fjölskyldunni.

Mér kom þetta í hug þegar ég las hugleiðingu læknisins.

Ég heyrði í konu á miðjum aldri segja að það væri hörmung að horfa upp á það hvernig væri farið með ungu fjölskyldurnar. (2008 +/- 2?)

 Foreldrarnir þræluðu sér út við að reyna að standa sig, til að koma sér upp íbúð og sjá fyrir fjölskyldunni.

Svo væri fjármálakerfið stillt þannig að það hirti allt af fjölskyldunum.

Þá finnst foreldrunum að þeir hafi ekki staðið sig, og þau í þekkingarleysi sínu kenna sér um ófarirnar.

Oft endar þetta með skilnaði.

Ísland var sett í þessa fjármálahakkavél 2008, Venesúela er í fjármálahakkavélinni í dag.

Nú í dag hækkaði fjármálakerfið íslensku krónuna til að almenningur gæti keypt meira en landið hefur efni á, og verði þá áfram skuldug fjármálafyrirtækjunum.

Vegna háa gengisins á krónunni, fá útflutningsfyrirtækin færri krónur fyrir gjaldeyririnn, og geta þá síður greitt af lánum sínum.

Þá er fjármálakerfið búið að koma í veg fyrir að heimili og fyrirtæki greiði töluna, bókhaldið, peninginn, frá bankanum til baka.

Þá er næsta skrefið að segja að bankinn sé tómur, bankinn er alltaf tómur, og að nú verði allir að borga skuldina og enginn fái ný lán, það er að peningabókhaldið sem heldur öllum viðskiptum gangandi fer inn í bankann og ekkert peningabókhald kemur í staðinn.

Þá stöðvast þjóðfélagið, og þá missa heimili og fyrirtæki tekjurnar og geta ekki greitt lánin.

Þá reyna allir að selja, en bankinn lánar engum til að kaupa.

Þá reyna allir að selja á fyrst 80% og síðan á 50% en engin getur keypt, fjármálafyrirtækin, bankinn neita að lána, skrifa peningabókhald, það er stöðva öll viðskipti.

Nú segir bankinn að aðilar séu að bjóða eignirnar á 50% og að þá sé eign fólksins í íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði farin.

Þið getið ekki greitt af lánunum ykkar, svo að við fjármálafyrirtækin verðum að taka eignirnar, íbúðarhúsnæðið og atvinnuhúsnæðið til okkar.

Svona tekur fjármálafyrirtækið, íbúðirnar og atvinnuhúsnæðið til sín á 50% verði, eða á uppboði á til dæmis 2%...

Þegar fjármálafyrirtækið hefur náð eignunum með þessari fjármálafléttu, KREPPUFLÉTTUNNI, þá lætur fjármálafyrirtækið endurmeta eignirnar upp í 100%, eða bygginga kostnað á nýjum eignum.

Finnst þér gaman að láta spila með þig?

Talan frá bankanum, var ekkert, og ef þú endurgreiðir töluna, þá fær bankinn, töluna sem var og er EKKERT til baka.

Fjármálafyrirtækið verður að ná af þér afraksturinn af vinnu huga og handa, annars fær fjármálastofnunin ekkert, enda lánaði fjármálastofnunin ekkert.

Egilsstaðir, 07.09.2017  Jónas Gunnlaugsson

Peningar, seðlar.

 

Hent upp í hillu A4 blað

Kreppufléttan, endurtekið

 


mbl.is Svaf ekki þriðju hverja nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Eg man ekki annað en við sem nú erum í ruslflokki höfum lika orðið að leggja nótt við dag til að koma þaki yfir höfuðið- án hjalpar.

 Enginn vorkenndi okkur.

 Það er slæmt ef dekurliðið þarf að vinna !

Erla Magna Alexandersdóttir, 7.9.2017 kl. 17:53

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þetta er rétt hjá þér Erla Magna Alexandersdóttir, þetta var erfitt.

Margir misstu fótana.

Vinna fyrir alla og læra og þjálfa huga og hönd allt lífið.

Það er sagt að engin verði óbarinn biskup.

Hvernig verður hægt að láta alla hafa allt og að þeir geti þrátt fyrir það, leitað yfir í "the core," kjarnann eins og Nicola Tesla gerði.

Leggjumst við bara í svallið og hættum að hugsa.

Ég vil trúa því að við getum haft góða daga og leitað samt yfir í nýjar víddir og og nýjar lausnir.

Gangi þér allt í haginn Erla Magna Alexandersdóttir

Egilsstaðir, 07.09.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 7.9.2017 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband