Ekki er líklegt að Framsókn fái fylgisaukningu út á það, að vinna með fjármálakerfinu við að fella Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Trúlega hefði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átt að hlusta betur á sína gömlu félaga í baráttunni.

Við höfum fylgst með því hvernig reynt er að ryðja Sigmundi Davíð út úr pólitík.

Ekki sýnist það gæfulegt, að hjálpa fjármálakerfinu, við að berjast við þá einstaklinga sem reyna að laga fjármálakerfið.

Að sjálfsögðu erum við skítugir á fótunum við að vaða drulluna.

Ekki er eytt tíma í að reyna að upplýsa skítinn á milli tánna á okkur minni spámönnunum.

Aftur á móti er reynt að fella forustu mennina.

Ekki er líklegt að Framsókn fái fylgisaukningu út á það, að vinna með fjármálakerfinu við að fella Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

Trúlega hefði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átt að hlusta betur á sína gömlu félaga í baráttunni.

Öll gamla fjármála stjórnin hefur reynt að afvegleiða uppgjörið við fjármálakerfið.

Ég hef það fyrir satt, að margar þjóðir séu nú þegar farnar að laga fjármálin hjá sér.

Framsóknarmenn fari í gott fótabað, og hreinsi af sér fjármálaskítinn, og haldi áfram ótrauðir við að skapa nýja og betri veröld.

Ég er hugsi yfir þessari vinstri, hægri skýringu, og er aðeins farinn að nota nústaðreyndatrúrmenn, sem trúa á vísindi samtímans, einskonar akademisk trú.

7.8.2016 | 11:26

Var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson farinn að láta bankana greiða fólkinu til baka?

Egilsstaðir, 14.09.2016 Jónas Gunnlaugsson


mbl.is Gagnrýna ummæli Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Vel orðað hjá þér Jónas. Það verður ekki Framsókn til framdráttar ef það tekst að koma Sigmundi frá sem formanni. Býst við að ég kjósi Framsókn með Sigmund sem formann, annars ekki. Það eru nokkuð margir sem hugsa á svipuðum nótum og ég.

Ef framsóknarmenn hafa ekki vit á að styðja Sigmund, þá er flokkurinn búinn að vera sem stjórnmálaafl.

Haukur Árnason, 14.9.2016 kl. 20:14

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þakk fyrir athugasemdina Haukur Árnason.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig spilast út úr þessu hjá Framsóknarmönnum.

Egilsstaðir, 15.09.2016  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 15.9.2016 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband