Holuhraunslægðin
24.11.2014 | 14:55
Holuhraunslægðin suð-vestur af Íslandi
Þetta er mín skýring í bili,
en ég leiðrétti mig, þegar þið kennið mér meira.
http://halldorjonsson.blog.is/blog/halldorjonsson/entry/1519103/
Þú spyrð um áhrif Holuhraunseldgosins á veðrið Halldór Jónsson.
Hitinn frá gosinu hitar loftið, sem þá þrútnar út og verður við það léttara á rúmmálseiningu.
Það þýðir að loftið leitar upp.
Lofthjúpurinn er tiltölulega þunnur, nær skammt upp frá jörðinni, og verður heitaloftið þess vegna þegar upp er komið að dreifast út til hliðanna.
Jörðin snýst frá vestri til austurs, og mjakast undir loftmassann.
Einnig má segja að loftmassinn verði svolítið á eftir, snúist örlítið hægar en Jörðin.
Þannig leitar loftmassinn í vestur.
Síðan höfum við kaldann loftmassa í norðri og í vestri yfir Grænlandi.
Kalda loftið er þyngra en heitt loft og skríður niður og út frá Grænlandi.
Þetta streymi ýtir Holuhrauns lægðinni í suður.
Þessi hugsuðu áhrif ýta Holuhrauns lægðinni í suðvestur frá Íslandi.
Síðan höfum við Golfstrauminn sem kemur frá, segjum Mexíkóflóa upp með ströndum Norður-Ameríku, sunnan Grænlands í átt að Noregi og Íslandi. (Suðuroddi Grænlands er ca. Á svipaðri breiddargráðu og Ósló)
Þar sem loftið yfir Golfstraumnum hitnar og stígur upp myndast þar oft lægðir svipað og yfir Holuhrauni.
Þannig magna þessar lægðir "alsherjar lægð"og mynda sunnan átt austan við lægðina.
Þarna er mín skýring á þessum sunnan streng sem nú um stundir hitar upp Ísland.
Þetta er smá leikur leikmanns, og leiðrétti ég mig ef ég hef misskilið eitthvað.
Egilsstaðir, 24.11.2014 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.