Spuni
Eignir fjármálastofnana,
það er krónur
sem aðilar vilja nú koma út úr landinu sem gjaldeyri.
Svo kallaður gjaldeyrissjóður okkar var allur tekin að láni,
og nú vilja fjármálafyrirtækin fá gjaldeyrissjóðinn til eignar fyrir sína eigendur,
og flytja gjaldeyrinn til útlanda.
!!!Íslendingar mega eiga skuldina.!!!
ooooo
Þetta er gamla sagan,
ég lána þér pening, og hirði peninginn af þér.
Þá hef ég það sem ég lánaði þér og þú skuldar það líka.
Og það besta, ég lánaði þér ekki neitt.
Það hringsnýst allt fyrir augunum á þér.
og þú skilur ekki neitt.
Hef ég ekki kennt þér, veist þú ekki hvert vandamálið er?
Viltu öskra , berja í potta,
væri ekki nær að biðja guð um að hjálpa sér,
að hreinsa glýjuna úr augunum, og skítinn úr eyrunum.
Þá er líklegt að þú getir gætt hagsmuna þinna.
ooooo
Munum að fjármálafyrirtæki búa til alla peninga,
3% fyrir allt þjóðfélagið og 97% fyrir viðskipti með pappír,
það er verðbréf og gjaldeyri, sem framleiðir ekkert, eða lítið.
Hugsanlegt er að einhver sem hefur efnast mikið á viðskiptum
með verðbréf og gjaldeyri fái góða hugmynd og geti komið hugmyndinni
í framkvæmd vegna tekna sinna af verðbréfasölu.
Þegar við sjáum nísku okkar, þá er hægt að ímynda sér,
að við myndum ekki nýta vinnuafl og náttúrugæði.
Margir stinga nú upp á því að spara,
og leyfa vatninu ekki að koma við í virkjun
á leið sinni til sjávar.
Vatnið sem hefur runnið til sjávar, fallkraftur þess er glataður.
ooooo
Til athugunar
Ef 2500 íbúðareigendur misstu íbúðina sína vegna
KREPPUFLÉTTUNNAR,
það er fyrst með VERÐBÓLGU og síðan með VERÐHJÖÐNUN
átti fimm miljónir, það er 5.000.000 króna í íbúðinni,
áður en verðhjöðnunin var skipulögð, af fjármálakerfinu,
þá gerir það samanlagt
12.500.000.000 kr
Það er tólf þúsund og fimm hundruð miljónir.
eða tólf og hálfur miljarður.
ooooo
Ef hver íbúðareigandi átti 10 milljónir í íbúðinni,
þá er talan
25.000.000.000
Það er tuttugu og fimm þúsund miljónir
eða
tuttugu og fimm miljarðar.
Þessar upphæðir á að sjálfsögðu að greiða til baka,
og svo hæfilegar skaðabætur. *
*
ooooo
Best er að þetta sé greitt með hluta í íbúð eða íbúðarhúsi.
Alls ekki taka við greiðslu í peningum frá fjármálakerfinu.
ooooo
Þar sem fjármálakerfið hefur ekki gætt hagsmuna íbúða og íbúðahúsaeigenda,
er rétt að endurskapaður íbúðalánasjóður,
taki við húsnæðislánum.
SJÓÐUR 0 lánar til 30 eða 40 ára verðtryggt í launum,
og vextir 0,5% umsýsla.
Má athuga um 0,5% auka vexti í varasjóð.
ooooo
Það er ekkert skrítið við SJÓÐ 0
Fjármálafyrirtækin hafa alltaf lánað út úr SJÓÐI 0
Peningar skapaðir í bönkum út um öll lönd hafa verið skapaðir í SJÓÐI 0
ooooo
Þú lést þér ekki nægja að skrifa töluna og segjast eiga töluna,
Þú lést einnig eign heimilisins hverfa með verðhjöðnuninni.
Er ég þú, eða ert þú ég,
betra er að segja við.
Egilsstaðir, 02.02.2014 Jónas Gunnlaugsson
**
Hér þarft þú að muna að ef eignin kostaði 30.000.000 miljónir,
og eigandinn átti 5.000.000 miljónir sem hann var látin tapa í verðhjöðnuninni,
þá eignaðist fjármálastofnunineinnig 25.000.000 miljónir
sem hún lánaði, lánaði ekki, hún skrifaði aðeins töluna.
ooo
Þarna eignaðist fjármálastofnunin alla eignina, 30.000.000 miljónir.
ooo
Ef eignin kostaði 30.000.000 miljónir, og eigandinn átti 10.000.000 miljónir
sem hann var látin tapa í verðhjöðnuninni,
þá eignaðist fjármálastofnunin einnig 20.000.000 miljónir
sem hún lánaði, lánaði ekki, hún skrifaði aðeins töluna.
ooo
Þarna eignaðist fjármálastofnunin alla eignina, 30.000.000 miljónir.
ooo
Þarna eignast fjármálastofnunin eignina af því að þú fórst í það að byggja eign,
til dæmis íbúð eða hús.
ooo
Þín hugmynd að fara að byggja hús, varð til þess að fjármálastofnunin eignaðist hús.
ooo
Muna að peningur er bókhald, tölur,
sem fjármálastofnunin færir í bókhaldið á reikningnum þínum.
ooo
Ef til vill mætti nota orðið skiptimynt um peninga,
skiptibókhald.
Vinnusalinn fær tölur, mynt, kvittanir fyrir sitt vinnuframlag,
og efnissalinn fær tölur, mynt, kvittanir fyrir sitt byggingarefni.
ooo
Þessa mynt geta aðilar, vinnusalinn og efnissalinn nýtt áfram
til að framfleyta sér og skapa áfram vinnu og vörur.
Egilsstaðir, 20.08.2014 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.