Kreppufléttan 2013 og miðbankinn
29.12.2013 | 12:16
Kreppufléttan
Við ætlum að læra um KREPPUFLÉTTUNA.
Við ætlum að skilja KREPPUFLÉTTUNA.
Við ætlum að laga KREPPUFLÉTTUNA.
Við ætlum að búa til forrit sem keyrir SJÓÐ 0
nýja peningakerfið okkar.
Við hugsum og framkvæmum með ástúð og umhyggju.
Við höfum kærleikann að leiðarljósi.
***
Af hverju höfum við látið þetta yfir okkur ganga?
Svari hver fyrir sig.
Það er kominn tími til breytinga.
Hvernig skildi gömlu flokkunum ganga í kosningunum,
nú þegar allir skilja að KREPPUFLÉTTAN,
hirti eigur fólksins,
og það er ekki búið
að skila þeim ÖLLUM til baka.
Egilsstaðir, 29.12.2013 Jónas Gunnlaugsson
Miðbankinn
Endurtekið.
Ég skrifa tölu í gjaldeyri í tölvuna mína og lána upphæðir um alla veröld.
Þeir byggja borgir, vegi, brýr, hafnir, samgöngutæki, verksmiðjur, orkuver
og nýta auðlindir og svona er hægt að halda áfram.
Þetta er allt í skuld hjá mér, ég á þetta allt saman.
Fjármálakerfið byggir á að ég veiti þér lán, þú stritar og ég á allt saman. Gáfulegt?
Ef mig langar að auka völd mín, þá hætti ég að skrifa tölur og lána út.
Þá myndast ekki lengur lausafé.
Þá kemur kreppa, þá þurfa allir að selja, og þá lækkar verðið á eignunum.
Þá eiga fæstir veð fyrir skuldunum, og þá get ég tekið til dæmis orkulindirnar,
til mín upp í skuld.
Orkulindirnar gefa mikið vald.
Fólkið í löndunum þar sem ég er að leysa auðlindirnar til mín,
sér ekki hvað ég er að gera.
Það hamast við að berja hvert annað fyrir að hafa orsakað kreppuna.
Eru ekki íslendingar að selja orkulindirnar núna?
Þú þarft leiðsögn, við þurfum leiðsögn, hvar skildi hún vera?
Egilsstaðir, 17.05.2010 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.