VERSLUN
11.11.2013 | 23:15
VERSLUNIN
Nú er betra að hugsa, verslunin er ekki lengur einráð
á fjölmiðlamarkaði.
Innflutningur á hráu kjöti.
Eru forustumenn verslunarinnar,
á fullu við að selja okkur ómerkt útlent kjöt.
Hvaða stjórnvald er að læða á okkur reglum Evrópusambandsins.
Verum óhræddir að nota skynsemina.
Vonandi skýrir einhver þetta fyrir okkur.
--
Forystumenn verslunarinnar, eru oft að skamma bændur,
fyrir að þeir selji landbúnaðarvörur of dýrt.
Íslenskir bændur rækta góða vöru.
--
Oft er hægt að fá keypta afgangsvöru,
á lágu verði frá útlöndum.
--
Ef harðnar í ári á einhvern máta,
þá hverfur lágaverðið, og ef til vill fáum við
engan mat frá útlöndum.
-
Við skulum ekki gleyma því
Þegar Bretar, Evrópa, setti á okkur
HRYÐJUVERKALÖG.
--
Forustumenn verslunarinnar,
hamast að tala niður aðrar atvinnugreinar.
--
Hvernig færi fyrir versluninni,
ef við værum stanslaust að hamra á að íslensk verslun
væri mun dýrari en sú útlenda?
--
Mig vantaði skynjara í aftur stuðarann.
Ég fór á verkstæðið og leitaði upplýsinga.
Þar var mér sagt að skynjarinn kostaði
á milli 40 til 50 þúsund krónur.
--
Ég fór næst í bílabúðina en þar var skynjarinn ekki til.
Þar inni var tignarlegur öldungur að versla, sem mælti.
Farðu á internetið,
þar kostar önnur gerðin 3000 til 4000 kr.
og hin gerðin 4000 til 5000 kr.
(Trúlega frá Asíu.)
--
Eigum við að reyna að snýta versluninni,
með þessum tölum, dag eftir dag?
--
Nei, ekki níða verslunina
vegna hinna ýmsu erfiðleika sem við er að fást.
--
Taktu frekar allar álögur tolla og vörugjalda, af versluninni.
Verslunin fái rekstrarfé á sæmilegum kjörum,
athuga um SJÓÐ 0
Þú vilt að sjálfsögðu ekki fá endalausa lagera,
þú verður að hugsa.
--
Ef þú villt leggja á tolla, 1 til 5%, skaltu leggja tollinn,
það er hæfilegan toll, á hveiti, sykur, sement
og slíkan varning.
--
Þú munt ekki sjá okkur sligast með hveiti, sykur og sement í tollhliðinu,
við komuna til landsins frá útlöndum, ef tollurinn er hæfilegur.
--
Það á að gera verslunina okkar sem hagkvæmasta,
svo að hver ferðamaður sjái sér hag í
að versla á Íslandi.
Egilsstaðir, 11.11.2013 Jónas Gunnlaugsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.