Sæstrengur til útlanda
1.6.2012 | 01:49
Sæstrengur til útlanda.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/05/31/saestrengur_gaeti_reynst_ardbaer/
http://www.herad.is/y04/1/2012-06-01-saestrengur.htm
Þú seldir hluti í orkuveitum á Suðurnesjum til útlendinga, einkaaðila.
Þeir vilja ekki vera að selja orku á markaði, þar sem sveitarfélög,
hafa virkjað fyrir landsmenn og selja orkuna á kostnaðarverði.
Ekki þykir þeim skárra að selja til álvera og gróðurhúsa, á lágu verði.
Í verksmiðjunum, koma tekjur landsins, frá starfsmönnum,
sem geta búið um sig í landinu og greiða þar skatta og skyldur,
og frá uppbyggingu fyrirtækja, og greiðslu fyrirtækjanna
til samneyslunnar.
Þessar tekjur halda uppi heilbrigðis, mennta og stjórnkerfinu.
Ef einkaeigendur orkuvera á Íslandi fá þennan streng,
geta þeir selt sitt rafmagn til Evrópu,
og lítið verður eftir á Íslandi.
Þekkt er að rafmagnsverð í Noregi er mun hærra en á Íslandi,
og sveiflast eftir verði í Evrópu.
´
Ég hitti mann frá Belgíu/Hollandi, og sagði hann
að þeir hefðu ódýrt gas í jörðu,
en það væri selt inn á orkumarkað Evrópu.
Evrópa er búin að verðleggja sig frá útflutningi,
enda er atvinnuleysi mikið.
Að vísu hefur Miðríkið tekjur af peningaprentun,
en erfiðleikar eru í jaðarlöndum.
Egilsstaðir, 01.06.2012, jg
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.