Fjármál
18.3.2012 | 17:31
http://www.herad.is/y04/1/2012-01-25-fjarmal.htm
Við byrjum á því að skilgreina stöðuna.
-
Svo kennum við sem flestum að skilja hvernig eignirnar voru færðar"frá fasteignunum"
yfir í "tölurnar" sem bankinn skrifaði í tölvurnar hjá sér.
-
Með smá brellu lækkaði bankinn verðið á eignunum,
og sagði að eignarhlutur fólksins væri farinn.
-
Að sjálfsögðu skiljum við að eignin fór aldrei úr fasteigninni,
yfir í tölu sem bankinn skrifaði í tölvuna.
-
Bankinn lánaði töluna sem var "ekkert," en hélt tölunni stöðugri,
en sá til þess að fasteignirnar féllu í verði
með því að hætta að prenta peninga.
-
Þá urðu allir peningalausir, og reyndu að lækka verðið á fasteignunum,
til að reyna að selja þær til að borga skuldir.
-
Þá sagði bankinn, nú dugar verðið í fasteigninni ekki lengur fyrir skuldinni,
svo að við tökum íbúðarhúsin verslunarhúsin og verksmiðjurnar.
-
Að sjálfsögðu var eignin alltaf í fasteigninni, eignin fór hvergi.
-
Til að pláss verði fyrir óbrenglaða hugsun í huga okkar, þurfum við að setjast á þúfu,
og leyfa ruslinu að renna úr heilabúinu í hugleiðslu og bæn.
-
Það þarf að koma í veg fyrir að bankarnir geti fært eignirnar
út úr bönkunum.
-
Síðan á að finna leið til að skila íbúðunum til fólksins.
-
Fyrirtæki og atvinnuhúsnæði verði einnig fært til eigenda,
fyrst og fremst sem rekstraraðila, teljist þeir hæfir,
og til fólksins, sem hlutir, að hluta ?
-
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-14-flettan.htm
-
http://www.herad.is/y04/1/2011-11-03-fjarmagn.htm
-
http://www.herad.is/y04/1/2012-01-26-thomasjefferson.htm
-
Eg. 25.01.2012jg
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.