http://www.herad.is/y04/1/2010-10-07-fluga-a-vegg.htm
Fluga á vegg.
Endursagt.
Fluga á vegg.
17.3.2012 | 20:19
Þetta fer að sjálfsögðu eftir reglunum hverju sinni.
Stjóri:
Heyrðu vinur, þú átt að taka miljarð að láni og leggja þá inn í bankann.
Já vertu ekki með neitt múður, þú færð vexti af innlögninni.
Auðvitað er lánið tryggt með láninu, lánið fer aldrei út úr bankanum.
Bankastarfsmaður:
Ég skil þetta ekki, lendi ég ekki í vandræðum í þessari flækju?
Stjóri:
Nei, nei, ég skal segja þér að bankinn stórgræðir á þessu.
Þegar þú leggur miljarðinn inn í bankann, þá lánum við hann út 10 sinnum, og bankinn eignast 10 miljarða.
Ef við látum 10 starfsmenn taka lán í bankanum
fáum við 100 miljarða.
Síðan látum við þessa miljarða ganga hring eftir hring, og mölum gull á þessu.
Bankastarfsmaður:
En er þetta ekki ein hringavitleysa, ég skil ekkert í þessu.
Stjóri:
Það gerir ekkert til, fólkið skilur ekkert í þessu, það er bara betra.
Við búum til peninga og eignumst allt saman.
Í versta lagi skammar fólkið ríkistjórnina, en við höldum öllu í okkar höndum.
Fjölmiðlarnir okkar mata fólkið á þeim upplýsingum sem okkur henta.
Ef einhver stjórnmálamaðurinn vinnur ekki fyrir okkur,
þá kennum við honum um allt mögulegt og ómögulegt,
þá trúir fólkið því, og hann verður óvirkur.
Það er ekkert að óttast.
Heyrðu, þetta er bara okkar í milli.
Þakka þér fyrir að aðstoða bankann okkar, sjáumst á Árshátíðinni.
Trúlega er þetta skáldsaga.
Egilsstaðir, 07.10.2010 Jónas Gunnlaugsson
000

Jónas Gunnlaugsson | 14. janúar 2019
Banki skrifar bókhald fyrir þjóðina, við köllum það peninga. Þegar einstaklingur kaupir banka, þá semur hann við annann banka, um að lána sér upphæðina, til dæmis 1000 milljarða. Næst semur hann við fjármálaráðherra um verðið, sem við höfum ákveðið að sé

Jónas Gunnlaugsson | 21. janúar 2017
How Deutsche Bank Made a $462 Million Loss Disappear (íslenska neðar ***) http://www.msn.com/en-us/money/companies/how-deutsche-bank-made-a-dollar462-million-loss-disappear/ar-AAm2w8P?li=BBmkt5R&ocid=spartandhp … The bankers in the room had seen
Bankar framleiða peninga
28.9.2014 | 07:14
Grein í Morgunblaðinu þann 27.09.2014
Baksvið Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is
Greinin er viðtal við doktor í viðskiptafræði, Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands.
Þessa grein eiga allir að lesa.
Ásgeir segir:
Bankar framleiða peninga.
Ólíkt venjulegum fyrirtækjum þurfi bankar ekki á peningum að halda til að geta stundað sína starfsemi. »Peningar eru varan sem bankarnir bjóða upp á, þeirra starfsemi felst í að lána út peninga og þeir framleiða peninga með útlánum sínum.
»Bankar þurfa ekki að taka við sparnaði til að veita lán, heldur geta þeir einfaldlega lánað út nýja peninga gegn skuldabréfi sem myndar innstæðu á reikningi lántakandans.«
Skuldabréfið skapi eign á efnahagsreikningi bankans þar sem um sé að ræða skuld við bankann, innstæða lántakandans sé skuld bankans á móti.
»Þetta felur í sér að enginn sparifjáreigandi hafi fyrst þurft að leggja peninga til hliðar fyrir láninu.«
»Menn hafa of einfalda mynd af flæði peninga í nú-tímahagkerfinu, með því að halda að við getum stýrt magni peninga í umferð einfaldlega með stýrivöxtum og bindiskyldu.«
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1352200/
Verð að hlaupa, Egilsstaðir. 07:09 28.09.2014 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 30.10.2020 kl. 08:33