Fákænn
13.8.2013 | 14:16
Sett á blog Ómars Ragnarssonar
Góð skrif Ómar.
http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/1308824/
Ég ætla að gera athugasemd við að "við séum fátækir.
Sá sem lætur fjármálafyrirtækin hafa peningaprentunina,
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1229691/
og leyfir fjármálafyrirtækjunum að færa allar eignir til sín
með kreppufléttunni á heldur að teljast fákænn.
http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/
Egilsstaðir, 13.08.2013 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 19.8.2013 kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einfalt peningakerfi.
13.8.2013 | 13:44
Einfallt peningakerfi.
Bókhald
Kvittun
Endurtekið
Þú ert með fisk og ég er með kartöflur.
Ég vil fá fisk frá þér fyrir kartöflur.
Þú vilt ekki selja fisk fyrir kartöflur.
Við veltum vöngum, hvað getum við gert?
Okkur dettur í hug að klippa út 10 miða,
Og skrifum 1 á hvern miða.
Þú færð 5 miða, og ég 5 miða.
Nú rétti ég þér 1 miða og fæ hjá þér fisk.
Þá átt þú 6 miða og ég 4 miða.
Þessi 6. miði þinn er þín kvittun fyrir
að þú eigir fiskinn inni í kerfinu.
Þarna getum við séð að miðinn er kvittun, það er bókhald.
Í dag hafa fjármálafyrirtækin tekið að sér að klippa miðana,
Og klipparinn segist lána þér miðana
sem séu verðmæti.
Miðarnir sem voru áður seðlar, eru nú rafboð í tölvum.
Að sjálfsögðu er klipparinn ekki að lána þér verðmæti
þótt hann klippi miðana.
Egilsstaðir, 13.08.2013 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Breytt 19.8.2013 kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)