kreppufléttan
25.10.2013 | 21:32
Að meta kreppufléttuna
Við viljum að kreppufléttan, fari fyrir dómstóla.
Kreppufléttan er, að fyrst með verðbólgu og síðan með verðhjöðnun,
nær fjármálakerfið stórum hluta af eignum í landinu.
Komi í ljós að það, að fella eignirnar í verði en halda skuldunum,
það er peningabókhaldinu frá SJÓÐI 0 á allt öðru og hærra gengi,
sé ólöglegt, þá beri að skila fólkinu
eignum sínum til baka.
Komi í ljós fyrir dómstólunum, að fjármálakerfið lánar ekkert,
en hefur tekið að sér peningabókhaldið, peningasköpun,
þá séu vextir vegna svokallaðra lána ólöglegir.
Komi í ljós að fjármálakerfið hafi peningaprentunina,
það er peninga sköpun, peningasköpunarbókhaldið,
þá sé skoðað hvernig því sé best fyrirkomið
í framtíðinni.
Egilsstaðir, 25.10.2013 Jónas Gunnlaugsson
smá leikur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endurreisum heimilin
25.10.2013 | 10:03
Framsókn
Framsókn vann góðan kosningasigur í kosningunum 27.04.2013
Þá skrifaði ég þessar setningar.
--
"Fylgjast vel með.
Spurning
Er líklegt að flokkarnir vilji una við það
að einn flokkurinn komi fram stefnumálum sínum,
og verði stór áfram.
Það kemur fljótlega í ljós."
Eg, 28.04.2013 jg
--
Hvað er að koma á daginn.
Reynt er að reyta fylgið af Framsókn,
með því að koma í veg fyrir að fólkið fái eignirnar sínar aftur.
Og nú á að segja,
Sjáið þið,
Engar endurgreiðslur.
--
Nú verðum við að sýna flokkunum, að svona vinnubrögð
ganga ekki lengur.
Fylgjumst með því að eignum fólksins verði skilað.
Endurreisum heimilin.
Egilsstaðir, 25.10.2013 Jónas Gunnlaugsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)