Skáldjöfrar og skáldið í hverjum manni, orkan og efnið, heilmyndin, hver lífvera, áköllum hinn hæsta með bæn og lofsöng í óperu symfóníu ljóss og lita.

Þetta er allt í skáldsöguna mína og sannara en lífið.

Lestu um verðbólgu og verðhjöðnunar fléttuna. 

Thomas Jefferson sagði okkur þetta allt saman. 

(13 April 1743 – 4 July 1826)

Braskararnir bjuggu til skort á húsnæði og þá verðbólgu. Byggingakostnaður á húsnæði var, hugsaðar tölur, 20 milljónir en verð til húsnæðis kaupenda var 60 milljónir, við þrefölduðum verðið. 

ibud

Við settum allar lausar íbúðir í leiguíbúðir og settum svo eina íbúð í sölu fyrir 20 kaupendur. Þá þurftu kaupendur að bjóða hærra og hærra verð til að fá íbúðina og þannig varð húsnæðis verðbólgan til. 

Nú eru embættismenn að hækka vexti til að stöðva verðbólgu sem braskarar bjuggu il og setja þá á hausinn bygginga félögin og fólkið sem keypti húsin. 

Orkupakkalögin voru til að braskarar gætu eins og fréttin sagði, hringt frá Þýskalandi og keypt rafmagnið frá vindmillunum í Danmörku, og létu stöðva vind rafstöðvarnar til að búa til skort í Evrópu og þá hærra verð. 

Í Kaliforníu voru reglurnar feldar niður og braskarar og einka fyrirtækin slóu út rafmagns rofunum og sögðu að það væri skortur og fólk og fyrirtæki yrðu að borga milljarða dollara meira fyrir rafmagnið. Starfsmenn fyrirtækjanna sögðu að það væri öskrað á þá af hluthöfum ef þeir notuðu ekki einhver brögð, gróða flækjur til að auka gróða hluthafa. 

Aftur um húsa skuldir. Bankar og fjármálafyrirtæki hafa komist upp með að taka eignirnar og þykjast eiga þær. 

Allar skuldir á eign verða færðar á Sjóð-0. 

Bankar skrifa aðeins tölur, bókhald og lána aldrei neitt. 

Þegar kostnaður við byggingu hússins hefur verið greiddur smiðunum og efnissölunum, er engin skuld á húsunum. 

Þá er húsið eign framkvæmdagetu þjóðarinnar. 

Framvegis skrifum við lögeyririnn frá sjóði-0 sjálfir og tökum ekki lán. 

Við getum sagt að bókhaldsstofa, bankinn hafi fært, skrifað upphæð frá Sjóði-0 og upphæðin bókhaldið greitt til byggingaraðila, sem greiddi verkamönnum og efnissölum. 

Þjóðin, Ríkið, taki húsin og sveitarfélögin, verkalýðsfélögin og bankastarfsmenn komi skikki á sjóð-0. 

Fólkið greiði spurning, 25% af launum í greiðslu fyrir viðhald og eignamyndun. 

Mikið viðhald vegna slærar umgengni, þá minni eignamyndun.

Ég hugsa að betra sé að fólkið sé skrifað sem stoltir eigendur, enda er það sannleikur, fólkið er eigandinn.  

Við fólkið í landinu látum ekki stela af okkur eignunum. 

Auðvitað gerum við góðu hlutina. 

Við gömlu víxlararnir erum líka fólkið og við öll leitum uppi nýja og miklu betri veröld. 

Engin vandamál aðeins góðar lausnir. 

Skáldjöfrar og skáldið í hverjum manni, orkan og efnið,  heilmyndin, hver lífvera, áköllum hinn hæsta með bæn og lofsöng í óperu symfóníu ljóss og lita. 

000

Thomas Jefferson sagði okkur þetta allt saman.

(13 April 1743 – 4 July 1826)

“Ef Ameríska þjóðin lætur einkabanka stýra myntútgáfunni, peningaprentuninni,  

þá munu bankarnir og fyrirtæki þeim tengd, ræna þjóðina allri velmegun,  

í fyrstu með verðbólgu, og síðan með verðhjöðnun, og þá munu afkomendur okkar

verða heimilislausir í landinu sem feður okkar byggðu upp. 

Egilsstaðir, 27.03.2023   Jónas Gunnlaugsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband