Sesar fékk hylli fólksins, fyrir að fara í framkvæmdir, sem sköpuðu atvinnu fyrir fólkið, sem það fékk greitt fyrir, og þá keypt það sem heimilið þurfti. Sesar varð að finna greiðslu möguleika, að búa til bókhald fyrir lausa hönd, sem vildi gera gagn,

Sesar fékk hylli fólksins, fyrir að fara í framkvæmdir, sem sköpuðu atvinnu  fyrir fólkið, sem það fékk greitt fyrir, og  þá keypt það sem heimilið þurfti. 

Til að Sesar gæti gert þetta, varð að finna greiðslu möguleika, að búa til bókhald ef einhverstaðar var laus hönd, sem vildi gera gagn,     

Einhverntíma í firndinni, fjarlægri fortíð, vantaði einhvern bókhald fyrir verslun og viðskipti.

Reynt var að nota ýmsa kosti, til dæmis að skrifa tölur á blað. (Papírus Egiptaland, pappir Kína) 

Þá kom púkinn í okkur, og reyndar hungrið, skorturinn, engar tekjur, og allir skrifuðu miða og bókhaldið fór í vitleysu.

Menn fóru að hugsa, hvað getum við gert, hvað getum við notað fyrir miðann? 

Við þurfum að láta miðan hafa verðgildi sem fólkið skildi, og lítil hætta væri á svindli. 

Reynt var að nota hina  ýmsu málma, og  sáu fljótlega að áfram var reynt að svindla. 

Gullið, var skást, það voru fáar námur, og ef þær voru langt í burtu, kostaði mikið að ná í það. 

Nálægar námur voru keyptar eða að þær voru teknar með valdi. 

Sett var fast verð á gullið, og búinn til málmpeningur, sem hafði verðgildið sem við höfðum sett á gullið.

Þá treysti fólkið á að peningurinn hefði gildi eins og gull, sem var selt manna á milli.

Þarna höfðum við tilbúinn gjaldmiðil, fólkið gat treyst honum.  

Í dag er verið að selja gull, og er búið að selja að minsta kosti fjórum sinnum það gull sem bankarnir hafa aðgang að, og ef til vill mun meira. 

Hvað viltu kaupa? 

Gerðu svo vel, hér er miði um að þú hafir keypt gull fyrir hundrað milljónir.  

Þetta er gjörningur, og virkar oft vel, en?  

Egilsstaðir, 17.04.2020  Jónas Gunnlaugsson

 

Til gamans.

Tölvan er tólf kjarna, en þegar ég ætlaði að fara að slá textann, þá kom enginn stafur.

Ég reyndi að gera einhverjar aðgerðir, en en enginn stafur.

Þá  pastaði ég inn myndinni hér fyrir neðan, og þá gat ég skrifað.

Ég er með á annan tug wordskjala opin, og  ef til vill 20 auto saved frá því þegar tölvan dettur út, sem ég ætla að vinna helst fljótt.

Einnig eru þrír browserar, vafrar opnir, hver með   að meðaltali tíu  einingar, sem ég er að  skoða og athuga.

Þá kemur hugmynd, sem verður að skrifa, og sú næsta, og lítið gengur í að hreinsa til. 

 

Svo er kominn ljósblár ferningur, í Wordið og önnur skjöl, og tölvan fer að lesa textann.

ÉG slökkti á hátalaranum. 

Reyni að leita seinna hvernig á að slökkva á þessu. 

Farinn út að hjóla.

Image28

Egilsstaðir, 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband