Ágreiningur á milli Súnníta og Shíta hefur verið að byggjast upp síðustu 1354 ár. Þessi ágreiningur hefur fundið sér útrás: Íran er að leiða nýja Shítauppreisn í miðju hættulegasta svæðis á jörðinni – hinum olíuvættu Austurlöndum nær.

Morðið sem er í þann veginn að breyta heiminum

https://agorafinancial.com/reports/OST/NewWar/vp/OST_NewWar_092611.php?code=POSTMC00 

Engan hefði getað órað fyrir því að maturinn sem þeir voru að fara að borða myndi einn góðan veðurdag breyta gangi sögunnar. Sumir segja að það hafi verið geitakjöt í matinn. Aðrir að það hafi verið lambakjöt. Hvort heldur sem var, þá var kjötið eitrað.

Og heiðursgesturinn var Mohammed, hinn umdeildi stofnandi íslam.

Bara einn biti, það þurfti ekki meira. Hann fann bragðið af eitrinu og spýtti bitanum strax út úr sér. En það var of seint. Brátt myndi hann deyja og með því valda hatrömmum og háskalegum ágreiningi.

Það var nefnilega þannig að þegar Mohammed dó þá var ekkert samkomulag um það hver myndi taka við af honum. Og þeir hafa verið að drepa hvern annan síðan þá.

Annars vegar eru súnní-múslímar, súnnítar. Þeir eru ráðandi í Saudi Arabíu, Egyptalandi, Jórdaníu og fjölda annarra landa í Austurlöndum nær.

Hins vegar eru sjíta-múslímar, sjítar. Þeir eru ráðandi í Íran. Og núna einnig í Írak, sem og Líbanon og Sýrlandi.

Leiddu hugann að mótmælendum og kaþólikkum á Norður-Írlandi, Serbum gegn Króötum í Bosníu, eða jafnvel þrjátíu ára stríðinu sem klauf Evrópu á 16. öld.

Nema að þessi ágreiningur á milli súnníta og sjíta hefur verið að byggjast upp síðustu 1354 ár.

Það er þó ekki fyrr en núna að þessi ágreiningur hefur fundið sér útrás: Íran er að leiða nýja sjítauppreisn í miðju hættulegasta svæðis á jörðinni – hinum olíuvættu Austurlöndum nær.

Eru ekki Austurlönd nær nú þegar öll á hvolfi? Jú, þau eru það.

Það sem er öðruvísi er að allt of margir á Vesturlöndum, líka þeir í Hvíta húsinu og Pentagon, skilja alls ekki hversu djúpt þessi íslamski klofningur gæti náð eða hversu langt hann gæti gengið.

Lítum nú á þetta kort: Hin viðsjárverðu skil á milli súnníta og sjíta árið 2011

sisu-01 

Það sem er merkt með svörtu á kortinu eru landsvæði sem Shítar eru í meirihluta.

Þau eru einnig að miklu leyti kjarnasvæði olíuuppspretta og þau svæði í Austurlöndum nær sem eru hvað hernaðarlega mikilvægust.

Einn fúll hryðjuverkamaður gæti unnið mikinn skaða. Íran, eitt og sér, gæti meira að segja verið stórhættulegt afl. En geturðu ímyndað þér hvað milljónir sjíta með 1354 ára gamla stríðsöxi gætu gert?

Kröfuganga hinna 162 milljóna

Enginn veit nákvæmlega hversu margir sjítar eru núna í Austurlöndum nær.

Það er vegna þess að í öllum þessum löndum, að fjórum undanskildum, þá nenna leiðtogar súnníta ekki að telja.

Í skólum súnníta er kennt að sjítar séu ekki almennilegir múslímar. Sjítar fá ekki sæti í ríkisstjórninni. Þeir geta ekki orðið dómarar og ekki einu sinni borið vitni fyrir hæstarétti.

Í Saudi Arabíu, sem er stýrt af súnnítum, fá sjítar og súnnítar ekki einu sinni að giftast.

Öldum saman hafa sjítar verið lágstétt. En núna, í fyrsta skipti í sögunni, líta þeir svo á að nú sé þeirra tækifæri til að valda straumhvörfum.

Og hversu sterkur er straumurinn? Í Íran búa flestir: 70 milljón sjítar. Svo er „frjálsi“ hlutinn af Írak; þar eru 22 milljónir. Þar að auki eru 2 milljónir sjíta í Líbanon sem fær stuðning frá Íran. Og allt að 4 milljón sjítar eru í Sýrlandi, aðal-bandalagsþjóð Íran.

Síðan eru önnur 700.000 í Kúveit, allt að hálfri milljón sjíta í Bahrein, upp undir 400.000 í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, 300.000 í Óman og um það bil 100.000 í Katar, samkvæmt Pew-rannsóknarstöðinni í Washington.

Þar fyrir utan eru allt að 10 milljón sjítar í Yemen, aðrar 7 milljónir í Azerbaijan og 11 milljónir í Tyrklandi; að ekki sé minnst á 30 milljónirnar sem eru í Afghanistan og Pakistan.

Ekki eru allir sjítar hlynntir byltingu. En af þeim 147 til 162 milljón sjítum sem eru dreifðir frá Pakistan til Líbanon og frá Azerbaijan til Yemen þá vilja hana nógu margir til að þetta sé fljót hinnar „leyndu hefndar“ og almennt álit gegnumgangandi í öllum Austurlöndum nær.

Súnnítar hafa áhyggjur af þessu. Sérstaklega í hinni súnnítastýrðu Saudi Arabíu. Og sérstaklega núna.

000

Þarna er stanslaust stríð á milli Shíta og Súníta, hefur staðið í 1354 ár.

Súnítar hafa farið með Shíta sem lægra setta, reyndar eins og Kristna og Gyðinga

Margt bendir til að Shítar vilji rísa upp úr öskustónni.

Iran er gamla Persneska heimsveldið.

000

Sett á blogg:  Einar Björn Bjarnason

Ríkisstjórn Bandaríkjanna - hótar viðskiptaþjóðum Írans refsiaðgerðum, ef þær hætta snarlega ekki viðskiptum við Íran

 

Egilsstaðir, 24.04.2019  Jónas Gunnlaugsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband