Hefur Evrópa tínt vitinu?

Að gefa Guði á kjaftinn.

 

Ég fór að hugsa um þetta sem skáldið sagði um mýktina.

Hvað var mörgum börnum eytt vegna óöryggis hjá fjölskyldunum?

Er eitthvað mjúkt við það að fjárfestar á Íslandi, hirtu íbúðirnar frá fjölskyldunum með kreppufléttunni?

Er eitthvað mjúkt við það að eyða einum fimmta eða einum fjórða af fóstrunum?

Er eitthvað mjúkt við það að Evrópsk menning, viti ekki að hún er að eyða íbúum Evrópu?

Er eitthvað mjúkt við það að menning Evrópu sé orðin Guðlaus?

Er eitthvað mjúkt við það að önnur menning komi og fylli Evrópu af fólki?

Hefur Evrópa tínt vitinu?

Hvar eru menntastofnanirnar?

Hver er leiðin til baka, til Guðs?

Auðvitað, vita það allir.

Sett á bloggið hjá Páli Vilhjálmssyni

http://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2162673/#comments 

Já, Jónas, Evrópa hefur týnt vitinu.

Og bezta leiðin til baka er sú, sem er leiðin til Guðs.

Jón Valur Jensson, 27.12.2015 kl. 14:03

Egilsstaðir, 27.12.2015 Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Jónas og gleðilega hátíð.

Það er vel hægt að vera sammála hverju einasta orði í þessari bloggfærslu að spurningamerkjunum undanskildum.

Það er með þessar spurningar, eins og "gúrúinn" vildi meina að ætti við um allar spurningar, það borgar sig ekki að spyrja. Hvað þá að það sé nokkur fengur í því að fá svör, því við hvert og eitt svar verða að minnsta kosti til tvær nýjar spurningar.

Síðan er það þetta með menntastofnanirnar og kerfið sem þær þjóna, að þar eru ekki framleiddar gáfur til að snúa til baka, sama kvaða vitleysu hefur verið hrundið í framkvæmd. Þess í stað bjástrar hámenntað fólkið með síauknum hraða við að bæta nýrri vitleysu aftan við þá fyrri í von um að það lagi eitthvað.

Þetta er svo ofan á allt saman kallaður hagvöxtur.

Með bestu kveðju, Magnús.

Magnús Sigurðsson, 27.12.2015 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband