Reyndu nú að muna hverjir féflettu þig.

Reyndu nú að muna hverjir féflettu þig.

Nú segjum við, „fjármálaöflin.“

Við höfum tapað 70 miljörðum á gjaldeyrishöftunum.

Þú veist að við náðum miklum eignum af fjölskyldum og fyrirtækjum.

Við fjármálafyrirtækin  þurfum að koma „eignum ykkar til útlanda.“

Við eigum þær núna.

oooo

Síðast þegar við höfðum „frían spila gjaldeyri“

hirtum við ótrúlega marga miljarða af fjölskyldum, fyrirtækjum og ríkinu.

Einhver sem hefur töluna skýri þetta fyrir okkur.

oooo

Við fjármálafyrirtækin notuðum „kreppufléttuna,

það er fyrst verðbólgu, og síðan verðhjöðnun

til að ná eignunum, og skuldsetja fólkið og ríkið.

oooo

Hvað heldur þú að það sé mörgum sinnum meira,

en þessir 70 miljarðar, sem fjármálafyrirtækin þykjast hafa tapað.

oooo

Taktu eftir því að þeir þingmenn sem ekki hlíða fjármálaöflunum,

þeir eru hundeltir af blöðum og útvarps og sjónvarpastöðvum

sem eru skuldug fjármagnsöflunum.

oooo

Þingmenn sem eru þægir, þeim er hampað.

Þeir þægu, mismæla sig, tala óhugsað, og tala vitleysu eins og við hinir.

En þeir þægu eru ekki hundeltir fyrir að vera venjulegir.

oooo

Það sýnist óþarfi að láta spila með sig endalaust.

 

Reyndu nú að muna hverjir féflettu þig.

Egilsstaðir, 11.03.2014  Jónas Gunnlaugsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Menn gleyma því í spunanum hverju við hefðum tapað ef engin höft hefðu verið sett á. Ef þau væru tekin af núna felli krónan um 30% í einni svipan. Þá geta menn byrjaða að reikna alvöru tap.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.3.2014 kl. 19:13

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Já þetta sýnist rétt hjá þér, Jón Steinar Ragnarsson.

Hefur þú kynnt þér "Kreppufléttuna" hans Tómasar Jefferssonar?

Til að ljúka því að koma eignum landsmanna út úr landinu, þurfa þeir að geta skipt íslenskum krónum í útlendan gjaldeyri. Þá sitjum við uppi með eignirnar sem landsmenn áttu, sem skuld í erlendum gjaldeyrir.

Gangi þér allt í haginn.

Jónas Gunnlaugsson, 11.3.2014 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband