Það er slegist um að prenta pening fyrir þig,

http://www.herad.is/y04/1/2012-03-02-leikur-med-gjaldeyrir.htm

Það er slegist um að prenta pening fyrir þig,

Þú ert duglegur, og átt land og landhelgi með miklum auðæfum,

og skapar mikil verðmæti.

Að sjálfsögðu vil ég eignast allt sem þú gerir.

Leikur með gjaldmiðil

(Var að hlusta á umræður í útvarpinu í morgun.)

Þrír setjast niður í stóla með einsmetra millibili og snúa að okkur.

Hver og einn hefur A4 blað.

Á fyrsta blaðið skrifum við dollara merki.

Á annað skrifum við evru merki.

Og að síðustu skrifum við íslensku krónuna,

í vinstri hendi óverðtryggða og í hægri hendi

verðtryggða krónu.

Hér kemur brandarinn.

Hver viljum við að eigi húsið?

***

Nú kemur þjóðin til að fá lán, til að byggja hús.

Einn fær lán hjá herra Dollar, $,

og og þá á herra Dollar húsið,

og fær einnig vexti af láninu.

Annar fær lán hjá frú Evru (merki),

og þá á frú Evra húsið,

og fær einnig vexti af láninu.

Og þriðji fær lán hjá litlu, litlu, Krónunni.

Og þá á litla, litla íslenska Krónan húsið,

og fær einnig vexti af láninu.

***

Hér skiptir máli að bankarnir prenta peninginn,

og segjast eiga upphæðina sem þeir búa til.

Á meðan Íslendingar áttu bankanna,

þá átti íslenska ríkið alla peninga

sem íslensku bankarnir bjuggu til.

Þá átti íslenska ríkið húsið.

Þá verður að athuga vel,

að hvort sem ein íslensk króna var að verðgildi 10 eða 100 fastar,

það er 10 eða 100 mjólkurlítrar,

það er verðlaus, verð lítil, eða verð mikil,,.

Þá átti íslenska ríkið, íslenska þjóðin húsið.

Ef þú tekur lán í erlendri mynt í verkefni, þá á erlendi aðilinn allt sem þú skapar.

Ef einnka aðilar eiga íslensku bankana, og lána þér í verkefni, þá eiga þeir allt sem þú skapar.

Ef íslenska ríkið á bankana, og lánar þér í verkefni, þá á íslenska ríkið allt sem þú skapar.

Meira seinna.

Egilsstaðir, 02.03.2012 Jónas Gunnlaugsson

http://www.herad.is/y04/1/2012-01-26-thomasjefferson.htm

http://www.herad.is/y04/1/2011-11-03-fjarmagn.htm

http://www.herad.is/y04/1/2011-11-12-ardur.htm

http://www.herad.is/y04/1/2011-11-12-fjarfestar.htm

http://www.herad.is/y04/1/2011-11-14-flettan.htm

http://www.herad.is/y04/1/2011-12-14-innstaedur.htm

http://www.herad.is/y04/1/2012-01-25-fjarmal.htm

http://www.herad.is/y04/1/2012-01-25-fjarmalakerfid.htm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband