Evrópa er ekki frjáls, frelsi byrjar á því að sannleikurinn er sagður upphátt. Í Evrópu er bannað að segja sannleikann. Múll er múll; þótt hann sé úr silki. Það er bannað að segja þetta eru ekki flóttamenn, Evrópu er ógnað af miklum fólksflutningum.

 

Seinni hluti ræðu, Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, 15. mars 2016 í Búdapest

Örlög Ungverja eru samtvinnuð öðrum evrópskum þjóðum og eru orðin svo stór hluti af bandalaginu að í dag er ekki ein einasta manneskja – að Ungverjum meðtöldum – sem getur verið frjáls ef Evrópa er ekki frjáls. Og í dag er Evrópa brothætt, viðkvæm og veikluleg eins og blóm sem étið er upp af ormi í felum.Herrar mínir og frúr,

Evrópa er ekki frjáls vegna þess að frelsi byrjar á því að sannleikurinn er sagður upphátt.

Í Evrópu dagsins í dag er bannað að segja sannleikann.

Múll er múll; þótt hann sé úr silki.

Það er bannað að segja að í dag erum við ekki að horfa upp á komu flóttamanna, heldur að Evrópu er ógnað af gríðarlegum fólksflutningum.

Það er bannað að segja að tugir milljóna eru reiðubúnir að stefna í áttina til okkar.

Það bannað að segja að innflutningur fólks færir glæpi og hryðjuverk til landa okkar.

Það er bannað að segja að fólksfjöldinn sem kemur frá ólíkum menningarheimum sé ógn við lífshætti okkar, menningu og siðvenjur og kristin gildi okkar.

Það er bannað að segja að í stað þess að samlagast þá hafa þeir sem komu hér á undan skapað sinn eigin heim, með sínum eigin lögum og hugmyndum sem slítur í sundur þúsund ára gamla samsetningu og formgerð Evrópu.

Það er bannað að segja að þetta sé ekki tilviljanakennt og ekki keðja óvæntra afleiðinga, heldur skipulögð, útfærð herferð, fólksfjöldi sem er beint til okkar.

Það er bannað að segja að í Brussel sé verið að semja áætlanir um að flytja útlendinga hingað eins fljótt og auðið er og koma þeim fyrir hér á meðal okkar.

Það er bannað að segja að tilgangurinn með að koma þessu fólki hér fyrir sé að teikna upp á nýtt trúarlegt og menningarlegt kort Evrópu og endurbyggja þjóðlegar undirstöður og þar með að útrýma þjóðríkjunum sem eru síðasta hindrun alþjóðlegu hreyfingarinnar.

Það er bannað að segja að Brussel er með leynd að taka frá okkur æ meira af fullveldi okkar og að í Brussel er fjöldi fólks að vinna að áætlun um Bandaríki Evrópu – sem enginn hefur gefið gefið leyfi fyrir.

 

Góðir áheyrendur,

óvinir frelsis í dag eru gerðir úr öðru efni en konungar og keisarar fyrri alda eða þeir sem stjórnuðu Sovétríkjunum; þeir nota ólíkar aðferðir til að neyða okkur til uppgjafar. Í dag setja þeir okkur ekki í fangelsi, þeir flytja okkur ekki í vinnubúðir og þeir senda ekki inn skriðdreka til að hertaka lönd sem eru frelsinu trú.

Í dag eru skotárásir, úthrópanir, hótanir og kúgun alþjóðlegra fjölmiðla nóg – eða hefur verið hingað til.

Íbúar Evrópu eru smám saman að vakna, þeir eru að skipa sér í hópa og ná brátt aftur fótfestu.

Það hriktir og brakar í undirstöðum Evrópu sem hvíla á niðurbældum sannleik.

Evrópubúar hafa ef til vill loksins skilið að framtíð þeirra er í húfi, ekki aðeins velmegun þeirra, þægindi og störf, heldur er öryggi þeirra og friðsamlegt líf í hættu.

Evrópubúum, sem hafa blundað í gnægðum og velgengni, hefur loksins skilist að sá grundvöllur sem við byggjum líf okkar í Evrópu á er í mikilli hættu.

Evrópa er samfélag kristinna, frjálsra og sjálfstæðra þjóða, þar ríkir jafnrétti milli kynja, heiðarleg samkeppni og samstaða, stolt og mannúð, réttlæti og miskunn.

 

Þessi hætta ógnar okkur ekki eins og stríð og náttúruhamfarir, sem kippa fótunum undan okkar á svipstundu, gera. Fjöldainnflutningur er eins og hægur og stöðugur vatnsflaumur sem skolar ströndinni í burtu.

Hann birtist undir yfirskini mannúðar en hans rétti ásetningur er að ná yfirráðum yfir svæðum og ef þeir vinna svæði þá töpum við svæði.

Aragrúi af ósáttfúsum mannréttindastríðsmönnum hafa ódrepandi löngun til að lesa yfir okkur og ásaka okkur.

Sagt er að við séum útlendingahatarar og fjandsamleg en sannleikurinn er sá að saga þjóðar okkar er líka saga af móttöku fólks og blöndun menningar.

Þeir sem hafa sóst eftir að koma hingað sem nýir fjölskyldumeðlimir, sem bandamenn, eða manneskjur sem passa hvergi annars staðar inn og óttast um líf sitt, hefur verið hleypt inn til að búa sér nýtt heimili.

En þeir sem hafa komið hingað með það fyrir augum að breyta landinu og móta þjóð okkar að sinni eigin mynd, þeir sem hafa komið með ofbeldi og gegn okkar vilja, hafa alltaf mætt mótstöðu.

 

Fyrst er aðeins verið að tala um nokkur hundruð, þúsund eða tvö þúsund manns sem koma sér fyrir á nýjum stað. En ekki nokkur einasti ábyrgur Evrópuleiðtogi myndi þora að lofa eiðsvarinn að þessi tvö þúsund myndu ekki vaxa að lokum upp í tíu eða hundruð þúsunda.

 

Aðalhættan sem steðjar að Evrópu kemur ekki frá þeim sem vilja koma hingað heldur frá ofstækismönnum alþjóðahyggju í Brussel.

Við getum ekki heimilað Brussel að setja sig ofar lögum.

Við eigum ekki að leyfa Brussel að þvinga upp á okkur beiskum ávexti alþjóðainnflytjendastefnu sinnar.

Við eigum ekki að flytja glæpi, hryðjuverk, ótta við samkynhneigð og andgyðinglega sýnagógubrennuvarga inn í Ungverjaland.

Það verða ekki nein borgarhverfi sem eru utan seilingar laganna, það verða ekki neinar fjöldaóeirðir eða innflytjendaóspektir hér og það verða engin glæpagengi sem elta uppi konur okkar og dætur.

Við skulum ekki leyfa öðrum að segja okkur hverjum við getum hleypt inn á heimili okkar og inn í land okkar, hverjir nágrannar okkar eiga að vera og hverjum við deilum landi okkar með.

Við vitum hvernig þetta gengur fyrir sig. Fyrst leyfum við þeim að segja okkur hverjum við verðum að taka við, síðan þvinga þeir okkur til að þjóna útlendingum í okkar eigin landi. Að lokum verður okkur sagt að pakka saman og yfirgefa land okkar.

Þess vegna höfnum við þvingaðri innflytjendastefnu og við látum hvorki kúgun né hótanir viðgangast.

 

Það er kominn tími til að hringja viðvörunarbjöllunni. Það er kominn tími fyrir viðnám og mótspyrnu. Það er kominn tími til að safna að okkur bandamönnum. Það er kominn tími til að draga fána stoltra þjóða að húni. Það er kominn tími til að koma í veg fyrir eyðileggingu Evrópu og bjarga framtíð hennar.

Í þessu augnamiði, án tillits til flokkadrátta, þá köllum við á alla ríkisborgara Ungverjalands að sameinast og við köllum til allra Evrópubúa að sameinast.

Leiðtogar og borgarar Evrópu verða að hætta að lifa í tveimur aðskildum heimum. Við verðum að endurvekja sameiningu Evrópu. Við, Evrópubúar, getum ekki verið frjáls hvert og eitt ef við erum ekki frjáls saman.

Ef við leggjum saman krafta okkar þá mun okkur takast þetta, ef við förum hvert í sína áttina þá mistekst okkur. Saman erum við styrkur, sundruð erum við veikleiki. Annaðhvort saman eða alls ekki – í dag er þetta það sem gildir.

 

Góðir áheyrendur,

Árið 1848 var ritað í bók örlaganna að ekkert gæti sigrað Habsborgarveldið. Ef við hefðum tekið því möglunarlaust hefði hlutskipti okkar verið ákveðið og þýska veldið gleypt Ungverja í sig.

Árið 1956 var ritað í bók örlaganna að við ættum að halda áfram að vera hernumið land undir sovéskri stjórn þar til búið væri að kæfa föðurlandsástina í síðasta Ungverjanum.

Ef við hefðum tekið því möglunarlaust hefði hlutskipti okkar verið ákveðið og sovéska veldið gleypt Ungverja í sig.

Í dag er ritað í bók örlaganna að falið, andlitslaust heimsvald þurrki út allt sem er einstakt, sjálfstætt, ævafornt og þjóðlegt.

Það vill blanda saman menningu, trúarbrögðum og þjóðum þar til okkar marghliða og stolta Evrópa verður að lokum máttlaus og auðsveip. Og ef við tökum þessu möglunarlaust þá er hlutskipti okkar ákveðið og hinn ógnarstóri belgur Bandaríkja Evrópu gleypir okkur í sig.

Verkefnið sem bíður ungversku þjóðarinnar, þjóða Mið-Evrópu og annarra evrópskra þjóða sem hafa ekki enn glatað allri almennri skynsemi, er að koma í veg fyrir, endurrita og umbreyta þeim örlögum sem okkur eru ætluð.

Við Ungverjar og Pólverjar vitum hvernig á að gera þetta. Okkur hefur verið kennt að maður horfist ekki í augu við hættuna nema maður sé nógu hugrakkur.

Því verðum við að grafa hina fornu dyggð hugrekki undan botnleðju gleymskunnar. Fyrst af öllu verðum við að herða okkur upp og við verðum augljóslega að svara langmikilvægustu spurningunni sem ákvarðar örlög okkar með svo hárri röddu að hún hljómi sem lengst og víðast.

Spurningin sem framtíð Evrópu stendur og fellur með er þessi:

„Eigum við að lifa við þrældóm eða frelsi?“ Það er spurningin – svari nú hver fyrir sig!

 

Áfram Ungverjaland, áfram Ungverjar!

000

 

Forvitnilegt, ræða Viktor Orban frá Ungverjalandi.

(Hungarian Prime Minister Viktor Orban)

000

The EU Planned the Muslim Invasion of Europe; Listen Up!

If I set up a youtube link, then the link stops working.

(This link is not working)

https://www.youtube.com/watch?v=kYk6EFsOjBo

(This link works)

https://www.youtube.com/watch?v=jO4VGsqf5Bk

Published on Jan 27, 2017

Viktor Orban Speaks and tells the truth that so many wish to keep hidden. The sinister agenda to destroy The European Nations and people,

It is known to ALL freethinking PEOPLE! There is a dangerous Muslim and Immigration problem in the United States and Europe. Sadly, many people are unaware.

Adults know what is on TV, they know what sports are on, but they are oblivious to the Muslim invasion!

Soon, they will have no choice but to face it. SHARE these videos. 

http://herad.is/y04/11/eu/2017-05-14-eu-skipulagdi-fluttninga-muslima-til-evropu/2017-05-14-eu-skipulagdi-fluttninga-muslima-til-evropu-ny.html

Egilsstaðir, 10.07.2018 Jónas Gunnlaugsson


Bloggfærslur 10. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband