Það er að sjá að heilu þjóðunum verði "hennt út um gluggann."

Ég og Húsari vorum að skoða staðreyndir, nú trúar staðreyndir

til að geta leitað lausna.

Hér í athugasemdum.

Þarna var Merkel að verja stöðu sína hjá kristilegum CDU, en nefndi hún að Múslimar fjölga sér um 8.1 á fjölskyldu, en Þjóðverjar um 1,3 á fjölskyldu.

000

Við þurfum að skoða staðreyndirnar,

með "nústaðreyndartrúarmanninum" í okkur,

en leita lausna með "skaparanum" í   okkur,

sem stundum er vandfundinn.

 

En, segðu mér, er þetta ekki allt komið til,

þegar við töldum konunum trú um

að þær þyrftu að vera "menn með mönnum."

 

Þegar konurnar fæddu þjóðirnar

og gáfu sálunum möguleika að koma til jarðarinnar

í mannslíkama til að þroska sig,

þá gat "sköpunin, þróunin" tekið risa stökk.

 

Núna, ég gæti notað orð úr Bíblíunni,

hvernig fer þegar við eltum sykur og sex.

 

Það virðist sem við höfum tínt áttum,

það er grundvelli þess að vera til.

 

Getur ekki verið að við þessir sykruðu og sexuðu,

berum ábyrgðina.

 

Þú talar um að Merkel verði "hennt út um gluggan."

Það er að sjá að heilu þjóðunum verði "hennt út um gluggann."

 

Sagði ekki gamla bókin,

að ef við legðumst í "sykurinn og sexið,"

Þá færi allt til andskotans.

 

Til að rata til baka inn á réttar brautir,

þá þyrftum við að hlusta á rétta orðið

og fara eftir því.

 

Egilsstaðir, 19.12.2015 Jónas Gunnlaugsson

 000

Húsari segir.

Ég sé konur fyrir mér sem aflvaka þess sem gera skal.
Í Íslendingasögunum sést þetta hvað best þó engum
heilvita manni detti í hug að telja þær þá er návist þeirra
að baki atburðum þar og þær mæla skapanna málum svo ekki er 
um að villast.

Agaleysi Íslendinga sem sést best í því að fara eftir 
lögum eftir því hvað hentar þeim með ófyrirsjáanlegum 
afleiðingu sem og að þeir hafa ekki náð áttum eftir hrunið 
og eiga langt í það hefur fært þjóðfélagið nær stjórnleysi 
og því er ásýnd 'réttlætis' jafnvel orðin skiptimynt
að þessu leyti.

Samfélagið mun þó leita jafnvægis og hringaksturinn 
heldur áfram. Maðurinn lærir ekki af reynslunni 
frekar en fyrri daginn en fæst við breytt samfélag nú sem 
hann gerði hvort heldur á 16. eða 20. öld.

Átakalínurnar eru um ábyrgðina og hvar hún liggur en 
takist mönnum að varpa henni yfir á aðra þá gera þeir það.
Sjálfur ber maðurinn aldrei neina sök! Einungis félagslegt 
taumhald getur breytt því en þá oftast tímabundið.

Það er vitlaust gefið eins og skáldið sagði og því verður
þetta flökt til og frá þar sem menn reyna að stökkva á milli 
stétta eða sem næst viðmiði sínu sem ávallt er fjær og 
fjarstæðukennt eftir því hver stéttin er eða hver dæmir.

Lífið er eilíft kraftaverk og löngu ljóst að okkur sést 
yfir eitthvað og það illilega.

"Það er fleira milli himins og jarðar, Hóratíus, en 
heimspekina okkar dreymir um." (William Shakespeare)

Augljóslega ert þú þessarar skoðunar og það er ég líka.

Hvernig það er hef ég ekki hugmynd um en augljóslega þó 
liggja heimar samhliða og hreint ekki útilokað að 
menn verði að ljúka hlutverki sínu hér í næsta lífi.

Mörg fyrirbrigði eru þess eðlis að það hefur lítinn tilgang að 
greina frá þeim því reynslan er ólygnust og sá sem ekki hefur 
sjálfur reynslu af slíku lítur á allt slíkt sem hreinasta þrugl.

Leiðin til baka verður ekki farin nema menn vilji gangast undir 
það jarðarmen og allt sem það kostar.

Menn gera þetta nauðugir viljugir síðari hluta ævinnar 
og hafa þá oftast fundið Guð sinn og þau náðarmeðul sem 
með fylgja ásamt og með því að treysta þeirri röddu sem 
greinir sig frá þeirra eigin og fylgja henni því þeir
vita að sú er ein leið til lífsins og spegla að lokum 
lífið í dauðanum og dauðann í lífinu því þetta er hvort 
eð er sama spegilmynd og hvort tveggja vísar tilupphafs alls lífs.

Húsari. (IP-tala skráð) 20.12.2015 kl. 02:31


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband