Verðmætasköpun á landsbyggðinni fer 50% til höfuðborgarsvæðisins?

 

Hver styrkir hvern

Allir hlúa að höfuðborgarsvæðinu.

http://www.herad.is/y04/1/2012-10-23-vinna-fyrir-hofudborgina.htm

"Fyrir hverjar tvær krónur sem verða til utan höfuðborgarsvæðisins

verður önnur þeirra eftir og hin fer á höfuðborgarsvæðið.

***

Hverjar tvær krónur sem verða til á höfuðborgarsvæðinu

verða báðar eftir á höfuðborgarsvæðinu.

***

Sé t.d. litið til Norðausturkjördæmis

koma um 40% af útflutningstekjum þjóðarinnar

úr því kjördæmi."

Skrifar Hjálmar Bogi Hafliðason í Morgunblaðið  þriðjudaginn 23 október 2012.

Síðan leggur hann til "að Reykjavíkurkjördæmin, suður og norður hafi engan þingmann."

Þarna er hann trúlega að vísa til þess að höfuðborg Bandaríkjanna Washington,

hefur engan þingmann.

Gert var ráð fyrir að það, að hafa embættismennina og stjórnarstofnanirnar,

gerði meira en að bæta þingmannaleysið upp.

Ef Washington hefði bæði stjórnsýsluna og þingmenn,

"mundi halla" á aðrar borgir í Bandaríkjunum.

Það voru átök um hvaða borg yrði höfuðborg.

Til athugunar,

Egilsstaðir, 23.10.2012  jg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband