Litla , litla , krónan.

 http://www.herad.is/y04/1/2012-03-03-litla-litla-kronan.htm

Litla , litla , krónan.

“Einfaldað”

Krónuna notum við til að dreifa verðmætum um þjóðfélagið.

Allir peningar í umferð eru 100 kr.

Þegar vel veiðist, þá er allt fullt af, þorski, ýsu, síld og loðnu.

Þá notum við 50 kr til að kaupa hveiti, sykur og aðrar nýlenduvörur,

og vélar, traktora, bíla og allt sem við þurfum frá útlandinu.

Allt gengur vel, allt er í jafnvægi.

***

En…. þegar veiðin er helmingi minni,

verða tekjur sjávarútvegsins helmingi minni,

en útgjöldin þau sömu.

Við ætlum ekki að setja sjávarútveginn á hausinn,

svo að við fellum gengið um helming.

Þá fær sjávarútvegurinn helmingi fleiri krónur,

fyrir hvern dollar, eða jafn mikið verðmæti og áður.

Þarna er krónan notuð til að stilla allt þjóðfélagið,

að helmingi minni tekjum.

Þarna virkar krónan eins og hún þarf og á að gera.

Með þessu gengisfalli hefur krónan stýrt okkur frá því,

að vera fátækasta þjóð Evrópu

í að vera með þeim ríkustu.

Að sjálfsögðu þarf þjóðin að prenta sjálf töluna fyrir húsnæðislánin.

Að sjálfsögðu þarf þjóðin að stilla greiðslur af húsnæðislánum,

þannig að það hæfi fjölskyldunum.

Vextir af húsnæðislánum geta með góðu móti verið 0,5 % umsýsla.

Er ekki ástæða til að fara að hugsa.

Er ekki ástæða til að fara að læra

verð að hlaupa

Egilsstaðir, 03.03.2012 JG

http://www.herad.is/y04/1/2012-01-26-thomasjefferson.htm

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband